Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Flemming myrti báðar mæður Alex: „Engum datt í hug að það væri slæm hugmynd að ég flytti til pabba“

Flemming myrti báðar mæður Alex: „Engum datt í hug að það væri slæm hugmynd að ég flytti til pabba“

Á morgun hefj­ast rétt­ar­höld yfir hinum danska Flemming Mogensen sem er ákærður fyrir að hafa myrt Íslend­ing­inn Freyju Egils­dóttur, 29. jan­úar á þessu ári í Malling á Jótlandi í Danmörku. Það var DV sem greindi fyrst frá þessu.

Freyja Egils­dóttir.

Flemming og Freyja voru gift og áttu tvö börn saman þegar hinn hrylli­legi atburður átti sér stað.

Flemming var fund­inn sekur um morð á annarri barns­móður sinni, Kristina Hansen, árið 1995, en hún var aðeins tví­tug að aldri.

Flemming Mogensen.

Fyrir stuttu sýndi TV2 Østjyl­land heim­ild­ar­mynd um Alex Mogensen, son Flemm­ings, en heim­ild­ar­myndin ber nafnið Min far dræ­bte min mor og sted­mor.

Heim­ild­ar­myndin bygg­ist upp að mestu á sam­tölum við Alex; mann sem hefur nú misst móður sína og stjúp­móður en báðar féllu þær fyrir hendi föður hans.

Mikið verra verður það varla.

Í áður­nefndri heim­ild­ar­mynd ræðir Alex um rosa­leg reiði­köst föður síns. Alex segir föður sinn hafa verið skap­mik­ill með afbrigðum; ekki hafi þurft nema eitt­hvað smott­erí til að hann tryllt­ist; Alex segir föður sinn ekki endi­lega hafa verið reiður út í ein­hvern sér­stakan eða eitt­hvað sér­stakt: Bara verið reiður út í heim­inn:

„Maður missti kannski hnífa­pör á gólfið og hann brjál­að­ist,“ segir Alex í mynd­inni og bætir við að það hafi þurft að tipla á tánum í kringum hann til að ekk­ert færi úr bönd­unum.

Alex gefur í skyn að Flemming hafi glímt við and­lega erf­ið­leika; að þegar hann var undir miklu álagi hafi það komið út í svaka­legum reiði­köstum; einnig að Flemming hafi glímt við sjálfs­vígs­hugs­anir og mikla sekt­ar­kennd vegna morðs­ins á móður Alex.

Þegar Alex var um tíu ára gam­all flutti hann frá föð­urafa sínum og ömmu, sem höfðu haft for­ræði yfir honum, til föður síns, Flemm­ings, sem var þá laus úr fang­elsi og byrj­aður að búa með Freyju:

„Það var greini­lega engum sem datt í hug að það væri slæm hug­mynd að ég flytti til föður míns. Það var greini­lega bara mjög eðli­legt að hann fengi mig“ segir Alex í mynd­inni.

Hann lýsir föður sínum á frekar ein­faldan og skýran hátt:

„Fúll og reiður.“

Þá er líka rætt við Jette Hansen í mynd­inni; móður Kristinu, sem segir að þau hafi verið afar ást­fangin; þau urðu par þegar Kristina var ein­ungis 17 ára, en Flemming er sex árum eldri.

Jette segir að eftir því sem tím­inn leið hafi farið að bera meira á háværum og miklum rifr­ildum þeirra á milli; og að lokum hafi þau slitið sam­búð­inni þegar Alex var tveggja ára.

Jette segir einnig að þegar hún líti til baka og skoði í hug­anum þá hrylli­legu atburði sem hafi ein­kennt líf Flemm­ings, þá hafi fátt bent til þess að svona færi þegar hann var yngri og hún hitti hann í fyrsta sinn.

Hún segir að það hafi eðli­lega verið henni mikið áfall að átta sig á því að Flemming hafi búið yfir svo dökkri hlið.

Alex segir að það hafi ekki verið mörg ár sem sam­band Freyju og Flemming var gott og heil­brigt. Hann hafi ekki verið svo gam­all þegar hann fór að taka eftir rifr­ildum þeirra og hrein­lega átökum þeirra á milli; að þegar þau hafi rif­ist hafi hávað­inn oft orðið óþægi­lega mik­ill:

„Auðvitað voru stundir sem voru góðar en þær voru ekki margar. Ég hef lært hvernig maður á að gera hlut­ina með því að skoða hvað faðir minn og Freyja gerðu og síðan gera hlut­ina algjör­lega á annan hátt; á við um margt; upp­eld­is­að­ferðir og hvernig á að haga sér í ást­ar­sam­bandi og hvernig maður á að koma fram við annað fólk. Ég hef lítið jákvætt að segja um árin sem ég bjó hjá þeim. Við Freyja höfðum það oft ágætt saman: Svo hafa verið margar, miklar og mis­mun­andi til­finn­ingar, en síð­ustu 3-4 árum töl­uðum við mikið um föður minn, og sam­band þeirra og hvernig við gætum hjálpað honum,“ segir Alex meðal ann­ars í mynd­inni Min far dræ­bte min mor og sted­mor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ