Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Svona var atburðarrásin þegar Eiður Smári var rekinn

Eiður Smári Guðjónsen
Eiður Smári Guð­jón­sen

Vanda Sigur­geirsdóttir, formaður Knattspyrnu­sambands Íslands, hringdi í alla meðlimi stjórnar KSÍ og ræddi við þá um málefni Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrr­verandi aðstoðar­þjálfara karla­lands­liðsins, í aðdrag­anda þess að stjórnin tók þá ákvörðun að Eiður léti af störfum.

Þetta kemur fram í fundar­gerð KSÍ sem gerð hefur verið opinber en það var eftir þann fund, 23. nóvember síðastliðinn, sem Eiður Smári var rekinn. „Áfram Ísland,“ sagði Eiður í yfir­lýsingu inni á vef KSÍ vegna starfs­lokanna.

Starfslok Eiðs Smára Guðjohnsens og umræddan gleðskap lands­liðsins hafa mikið verið til umræðu undan­farið. Eiður var rekinn fyrir viku síðan en í tilkynningu frá KSÍ var sagt að uppsögnin væri gerð með samkomu­lagi stjórnar og Eiðs.

Sjá einnig: Eiður Smári hættur með lands­liðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefjandi“

Líkt og Mannlíf greindi frá tengist brott­reksturinn hins vegar áfengis­neyslu í KSÍ-partý eftir leik lands­liðsins gegn N-Makedóníu um miðjan mánuðinn. Vanda formaður var í partýinu og samkvæmt funda­gerðinni hringdi hún í alla stjórnar­menn eftir heim­komuna. Eiður Smári var svo rekinn eftir fund stjórnar.

Vanda hefur ekki viljað ræða málefni og brott­rekstur aðstoðar­þjálfarans. Eiður hefur verið í þjálfara­teymi A-landsliðs karla frá desember 2020, en hann lék á sínum tíma 88 leiki fyrir liðið og skoraði í þeim 26 mörk. Í sumar var Eiður sendur í tíma­bundið leyfi frá störfum, eftir að Mannlíf greindi frá myndbandi sem var í dreifingu af þjálf­aranum á samfélags­miðlum.

Sjá einnig: Myndband af Eiði Smára í miðbænum – Hneykslaði vegfarendur með athæfi sínu

Myndband af Eiði í dapurlegu ástandi að létta á sér í miðborg Reykja­víkur fór sem eldur um sinu á samfélags­miðlum. Eiður sást þar með buxurnar á hælunum, að létta á sér á almanna­færi. Hann virðist vera í því ástandi að átta sig illa á umhverfi sínu. Fólki sem varð vitni að atburðinum var brugðið en Eiður er í senn þjóðhetja og starfaði sem þjálfari landsliðs karla og álits­gjafi Símans. Þá var einnig umtalað að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsendingu sem knattspyrnu­sérfræðingur í þættinum Vaktin í Sjónvarpi Símans. líkt og Mannlíf greindi frá.

Sjá einnig: Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsendingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Hér fyrir neðan má sjá fundar­gerð stjórnar KSÍ frá hinum örlaga­ríka fundi 23. nóvember:

„Vanda Sigur­geirsdóttir formaður KSÍ opnaði umræðu um lands­liðsmál. Rætt var um ferð A landsliðs karla til Rúmeníu og Norður-Makedóníu. Áður hafði formaður hringt í alla stjórnar­meðlimi og greint þeim frá þeim málum sem til umræðu komu. Þar var rætt um starf og stöðu aðstoðar­landsliðs­þjálfara A-liðs karla í kjölfar atvika sem hafa komið til kasta sambandsins. Fyrir liggur áminning í starfi til umrædds starfs­manns frá því sl. sumar. 

Niður­staða málsins varð sú að stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen komust að samkomu­lagi um starfslok hans sem aðstoðar­þjálfari A landsliðs karla. Samkomu­lagið snýr að því að virkjað verður endur­skoðunar­ákvæði í ráðningar­samningi sem gerður var milli hans og KSÍ og mun hann láta af störfum 1. desember næst­komandi. Stjórn KSÍ þakkar Eiði Smára fyrir hans störf og óskar honum velfarnaðar í fram­tíðinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning