Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eva svarar Dr. Skúla: „Fullyrðingar læknisins algjörlega út úr kortinu“

Eva svarar Dr. Skúla: „Fullyrðingar læknisins algjörlega út úr kortinu“
Eva Hauks­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Dr. Skúli Tómas Gunn­laugs­son segir rann­sókn lög­regl­unnar á þátt sínum í dauða sex sjúk­linga sinna á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja vera byggða á mis­skiln­ingi. Eva Hauks­dóttir, dóttir Dönu Jóhans­dóttur sem lést í umsjá Dr. Skúla segir það ekki stand­ast skoðun.

Mannlíf hefur und­an­farna mán­uði fjallað ítar­lega um málið sem á sér enga hlið­stæðu á Íslandi. Dr. Skúli hefur rétt­ar­stöðu grun­aðra ásamt öðrum lækni og hjúkr­un­ar­fræð­ingi en alls lét­ust 6 sjúk­lingar að því er virð­ist með aðstoð þess­ara heil­brigð­is­starfs­manna en rann­sókn lög­reglu mun að öllum lík­indum kom­ast að sann­leik­anum í mál­inu.

Eva Hauks­dóttir, dóttir eins af þeim sjúk­lingum sem lét­ust í umsjón Dr. Skúla, svarar á heima­síðu lög­fræði­þjón­ustu sinnar hlit.is, fregnum Rúv um að Skúli telji málið byggt á mis­skiln­ingi. Telur hún að Skúli hafi annað hvort lekið fylgi­gögnum úr dóms­úr­skurði til Rúv eða að opin­berir starfs­menn hafi brotið gegn trún­að­ar­skyldu sinni.

Skúli Tómas Gunn­laugs­son

„Rík­is­út­varpið hefur það eftir lækn­inum að mik­ill mis­skiln­ingur ríki um málið. Svo virð­ist sem upp­lýs­ingar um afstöðu lækn­is­ins séu fengnar úr fylgi­gögnum með dóms­úr­skurði þar sem Lands­réttur hafn­aði kröfu lög­reglu um far­bann. Að kröfu lög­reglu er úrskurð­ur­inn ekki birtur almenn­ingi svo RÚV hefur þá fengið hann frá sak­born­ingi eða þá að opin­berir starfs­menn hafa brotið gegn trún­að­ar­skyldu sinni.“

Eva heldur áfram.

„Í frétt RÚV er gerð grein fyrir þeirri afstöðu lækn­is­ins að engri lífsloka­með­ferð hafi hann beitt í málum þeirra sjúk­linga sem um ræðir. Þetta sé allt saman mis­skiln­ingur, hið rétta sé að líkn­andi með­ferð hafi verið skráð sem lífsloka­með­ferð. (Lífsloka­með­ferð er loka­stig líkn­ar­með­ferðar og á ekki við nema sjúk­lingur sé sann­ar­lega dauð­vona). Stað­hæfir lækn­ir­inn að eng­inn rök­studdur grunur sé uppi um sekt hans í mál­inu. Engin mark­tæk sönn­un­ar­gögn liggi fyrir.“

Eva seg­ist ekki geta tjáð sig um mál ann­arra brota­þola í mál­inu en móður sinnar heit­innar, þegar kemur að meintum mis­skiln­ingi sem lækn­ir­inn talar um. Hún bendir á í svari sínu brot úr áliti land­læknis um málið.

„Andmæli og útskýr­ingar STG á þá leið að hann hafi ekki áformað eða beitt lífsloka­með­ferð (LLM) heldur ein­kenna­með­ferð eða líkn­ar­með­ferð (LM) og að um mis­skiln­ing sé að ræða fá ekki stuðn­ing í gögnum. Land­læknir fellst ekki á þá skýr­ingu að tækni­legt atriði hafi ráðið skrán­ingu LLM í stað LM. Þvert á móti liggur fyrir að hug­takið lífsloka­með­ferð var skráð því nafni í sjúkra­skrá við inn­lögn og í vott­orði sem STG skrif­aði 28.9.2019. Þá var með­ferð DJ frá fyrsta degi síð­ustu leg­unnar í eðli sínu sam­svar­andi lífsloka­með­ferð að eðli og fram­kvæmd.“

Segir Eva enn­fremur að það verði að telj­ast „afar sér­stakt að lög­regla sé með mál til rann­sóknar í meira en ár (þ.e. frá nóv­em­ber 2020) án þess að rök­studdur grunur liggi fyrir um refsi­vert brot. Enda eru þessar full­yrð­ingar lækn­is­ins algjör­lega út úr kort­inu.“ Hún heldur svo áfram.

„Í til­viki móður minnar er uppi rök­studdur grunur um að hún hafi lát­ist af völdum þeirrar með­ferðar sem hún sætti á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Þannig segir í áliti land­læknis:“

„Vist­un­ar­mat var sam­þykkt 9.7.2019 skv. áritun á skjöl þar að lút­andi en ekk­ert er að finna í gögnum sem styður að reynt hafi verið að þrýsta á um vistun eða finna leiðir til þess að bæta lík­am­legt eða and­legt ástand hennar og und­ir­búa hana fyrir lang­tíma­vistun á hjúkr­un­ar­heim­ili. Þvert á móti virð­ist áhersla með­ferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eft­ir­liti með ástandi hennar eða lífs­uppi­hald­andi með­ferð hætt. Þetta hafði þær afleið­ingar að mati land­læknis að í ell­efu vikna langri legu hrak­aði DJ; hún var með legu­sár, nær­ing­ar­skort og sýk­ingar allt fram til and­láts­ins, sem verður að telja lík­legt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar með­ferðar sem hún hlaut.“

Alma Möller, land­læknir Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Bendir Eva á að uppi sé sam­kvæmt þessu, rök­studdur grunur um refsi­verð brot sem mögu­lega leiddu til dauða sjúk­lings. „Og ætli sé þá eitt­hvað sem tengir lækn­inn við málið og gefur lög­reglu til­efni til að beina sjónum sínum að honum? Jú, hann var nefni­lega ábyrgur fyrir með­ferð sjúk­lings­ins. Það var hann sem tók allar helstu ákvarð­anir um með­ferð móður minnar, þ.m.t. lífsloka­með­ferð. Ekki nóg með það heldur stóð hann í vegi fyrir því að hjúkr­un­ar­fólk beitti þeim ráðum sem það taldi rétt til að lina kvalir hennar. Hann mælti líka gegn því að tekið yrði til­lit til óska aðstand­enda um aðgerðir sem mögu­lega hefðu getað bjargað lífi hennar.“

Hvað varðar full­yrð­ingu Dr. Skúla um skort á sönn­un­ar­gögnum í mál­inu og að þeim hefði verið aflað ein­hliða, án sam­ráðs við hann, seg­ist Eva ekki vita nákvæm­lega hvaða gögn lög­reglan er með í hönd­unum en hún viti aðeins um þau skjöl sem hún sendi þeim sjálf. Það er sjúkra­skrá sjúk­lings­ins ásamt athuga­semdum aðstand­enda, grein­ar­gerð óháðs sér­fræð­ings sem land­læknir fékk sem umsagn­ar­að­ila, grein­ar­gerðir starfs­fólks HSS, þ.á.m. lækn­is­ins sjálfs og Álits­gerð land­læknis. „Grein­ar­gerð óháðs umsagn­ar­að­ila er 32 bls. fyrir utan heim­ilda­skrá og 14 bls. við­bót sem hann lagði fram í til­efni af andsvörum lækn­is­ins. Í þeirri skýrslu er gerð grein fyrir fjöl­mörgum þáttum í með­ferð móður minnar, undir stjórn lífsloka­lækn­is­ins, sem flokk­ast sem van­ræksla. Slík brot varða refs­ingu sam­kvæmt lögum um heil­brigð­is­starfs­menn. Einnig segir í nið­ur­stöðukafla: Mistökin eru enn­fremur í því að í kjöl­farið er DJ skrifuð á lífsloka­með­ferð en fyrir slíkri með­ferð voru ekki for­sendur, þar sem ekki var sýnt fram á að and­lát hennar væri yfir­vof­andi.“

Varðandi sam­ráðs­leysi lög­regl­unnar við rann­sókn máls­ins segir Eva: „Að sjálf­sögðu var þess­ara gagna aflað ein­hliða án sam­ráðs við sak­born­inga. Þannig fer lög­reglu­rann­sókn fram; það er ekki borið undir sak­born­inga hvort þeim hugn­ist að sönn­un­ar­gögn séu skoðuð. Sak­born­ingar hafa aftur á móti rétt til að leggja fram önnur gögn sem þeir telja að hafi þýð­ingu í mál­inu. Þótt lækn­ir­inn hafi ekki teflt fram neinum gögnum sem styðja full­yrð­ingar hans um mis­skiln­ing af hálfu lög­reglu, aðstand­enda sjúk­linga, land­læknis og allra sér­fræð­inga sem að mál­inu hafi komið, rýrir það ekki sönn­un­ar­gildi þeirra skjala sem fyrir liggja.“

Í loka­orðum sínum talar Eva um stöð­una á mál­inu í dag og skýtur fast á þá ákvörðun að leyfa Dr. Skúla að starfa á Land­spít­al­anum þrátt fyrir rann­sókn­ina.

„Lífsloka­lækn­ir­inn er grun­aður um stór­felld brot í starfi gagn­vart ell­efu sjúk­lingum. Sum mál­anna eru rann­sökuð sem mögu­leg mann­dráps­mál enda liggur fyrir rök­studdur grunur byggður á sjúkra­gögnum, ítar­legum rann­sóknum sér­fræð­inga og skrif­legum og munn­legum fram­burði lækn­is­ins sjálfs. Áhuga vekur að það var ekki fyrr en eftir að lækn­ir­inn mætti í skýrslu­töku (og útskýrði vænt­an­lega allan þennan mis­skiln­ing) sem lög­reglan fór fram á far­bann.

Lífsloka­lækn­ir­inn er nú í end­ur­hæf­ingu á bráða­lyf­lækn­inga­deild Land­spít­al­ans. Þar er hann að sögn yfir­manna undir eft­ir­liti og því von­andi skað­laus. Væri ekki líka alveg upp­lagt að senda grun­aða barn­a­níð­inga í end­ur­hæf­ingu sem starfs­menn leik­skóla? Undir eft­ir­liti að sjálf­sögðu.“

Svar Evu má lesa í heild sinni hér: LÍFSLOKALÆKNIRINN OG MEINTUR MISSKILNINGUR

Sjá einnig: Lög­reglan rann­sakar sex and­lát tengd Dr. Skúla – „Boltinn er núna hjá mats­mönn­unum“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð