Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Valdimar segir viðkvæmar upplýsingar um landsmenn í hættu: „Ekki nóg að uppfæra tölvukerfi“

Valdimar segir viðkvæmar upplýsingar um landsmenn í hættu: „Ekki nóg að uppfæra tölvukerfi“

Hætta er á að per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um lands­menn leki úr tölvu­kerfum vegna svo­kall­aðs Log4j veik­leika. Þetta segir Valdimar Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri net­ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­is­ins Syndis í sam­tali við Vísi í dag. Hann segir brýnt að fyr­ir­tæki og stofn­anir vakti kerfin sín allan sól­ar­hring­inn og láti greina hvort þær hafi verið sýktar af tölvu­þrjótum.

Tölvukerfi fjölda fyrirtækja talin í hættu

Log4j veik­leik­inn upp­götv­að­ist fyrst þann 9. des­em­ber og reynd­ist strax mikið áhyggju­efni, þar sem hann hefur áhrif á hin ýmsu for­rit. Þeirra á meðal eru iCloud, Steam og Minecraft. Veik­leik­inn getur gert tölvu­þrjótum kleift að ráð­ast inn í tölvu­kerfi og dreifa þar vírusum, stela gögnum og ýmis­legt fleira miður skemmti­legt.

Tölvu­kerfi fjölda fyr­ir­tækja eru talin í hættu. Millj­ónir for­rita nota Log4j.

Rík­is­lög­reglu­stjóri lýsti yfir óvissu­stigi almanna­varna vegna Log4j veik­leik­ans í gær. Var það gert í sam­ráði við Cert-is og Fjar­skipta­stofu.

Valdimar Ósk­ars­son segir í sam­tali við Vísi að þegar sé búið að gera til­raunir til að brjót­ast inn í tölvu­kerfi hér á landi í gegnum veik­leik­ann. Hann segir tölvu­deildir fyr­ir­tækja nú hafa hraðar hendur við að reyna að finna út hvort veik­leik­inn sé búinn að koma sér fyrir í kerfum þeirra.

Upplýsingar um landsmenn í hættu

Valdimar segir málið grafal­var­legt og að ástæðan fyrir því að lýst hafi verið yfir óvissu­stigi almanna­varna sé að upp­lýs­ingar um lands­menn séu í hættu.

„Mestar líkur eru á að gögn fyr­ir­tækja séu tekin í gísla­töku og menn þurfi þá að leysa þau úr gísl­ingu. Eða sem er verra að per­sónu­grein­an­legum gögnum er lekið eins og t.d. sjúkra­skrám. Við sjáum að það er verið að reyna að mis­nota þennan veik­leika hjá okkar við­skipta­vinum enn sem komið er hefur það hins vegar ekki heppn­ast en það er bara tíma­spurs­mál.“

Valdimar segir Syndis vera að útbúa spurn­inga­lista fyrir stjórn­endur fyr­ir­tækja sem þeir geti svo lagt fyrir tækni­menn fyr­ir­tæk­is­ins svo hægt sé að ganga úr skugga um að allt sé í lagi.

„Árás­irnar ger­ast oft þannig að þessir aðilar velja sér tíma þar sem er minnst eft­ir­lit og sem minnst við­bragð því við­bragðið við árásinni skiptir gríð­ar­lega miklu máli. Ég hvet fyr­ir­tæki til að vera virki­lega mikið á varð­bergi næstu vik­urnar alla vega. Menn þurfa að vera að vakta kerfin sín helst allan sól­ar­hring­inn alla daga vik­unnar,“ segir Valdimar.

Ekki nóg að uppfæra

Hann segir ekki nóg að upp­færa tölvur og tölvu­kerfi. Ef óprút­tnir aðilar hafi komið sínum kóðum fyrir í tölvu­neti fyr­ir­tækja hverfi þeir kóðar ekki þótt kerfin séu upp­færð. Eina leiðin sé að greina hvort óeðli­legum hug­bún­aði hafi verið komið fyrir á kerf­unum. Reynist það hafa gerst verði að fara í erf­iða vinnu til að fjar­lægja hug­bún­að­inn. Hann segir það geta reynst erfitt að finna slíkan hug­búnað því kóða­klasi Log4j geti leynst djúpt í tölvu­kerf­unum.

Vinsæli tölvu­leik­ur­inn Minecraft var einn af fyrstu stöð­unum þar sem veik­leik­ans varð vart. Það er sér­stakt áhyggju­efni, því að í gegnum svo vin­sælan leik getur veik­leik­inn borist í heim­il­is­tölvur með auð­veldum hætti.

„Minecraft- spil­ari náði að taka yfir tölvu mót­spil­ara og náði fullum yfir­ráðum á þeirri vél. Þetta segir okkur það að heim­il­is­tölvur geta verið veikar og því afar mik­il­vægt að upp­færa þær,“ segir Valdimar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ