Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rósa Ingólfs árið 1982: „Rauðsokkur og kommúnistar eru samansafn af ljótustu konum Íslands“

Rósa Ingólfs árið 1982: „Rauðsokkur og kommúnistar eru samansafn af ljótustu konum Íslands“

Rósa Ing­ólfs­dóttir var afar hæfi­leik­a­rík, fjöl­hæf, lit­rík og skemmti­leg mann­eskja sem kom víða við.

Án alls vafa fræg­asta sjón­varps­þula sem Ísland hefur af sér alið, af mörgum eft­ir­minni­legum sjón­varps­þulum sem fyrir margt löngu hurfu af skjánum; sumum til gleði og öðrum ekki.

Rósa var alla tíð ófeimin við að tjá skoð­anir sínar á opin­berum vett­vangi; sumar þeirra vöktu athygli um allt land.

Hún olli upp­námi árið 1982 þeg­ar hún lét eftir sér hafa opin­ber­lega að rauð­sokk­ur og komm­ún­ist­ar væru ljót­ustu kon­ur lands­ins:

„Mér finn­ast þessar rauð­sokkur og þær sem hafa fylkt sér undir merki komm­ún­ism­ans, vera ein­fald­lega sam­an­safn af ljót­ustu konum Íslands.

Ef litið er á myndir af þessum konum, þá er ekki annað hægt en að taka eftir þessu. Þær eru bein­línis ljótar, þær ljót­ustu sem fyr­ir­finn­ast hér á landi; eru eitt­hvað svo ókven­legar, Ijótar og lura­legar.“

Þessi frægu orð sagði Rósa í helg­ar­við­tali við DV árið 1982.

Hún vakti reiði margra með því að lýsa því yfir að konur sem þá börð­ust fyrir jafn­rétti væru bein­línis ófríðar, ljótar:

„Þær reyna ekk­ert að laga sig skemmti­lega til og eru aldrei fínt upp­færðar. Mér finn­ast þetta bara vera konur sem eru að svíkja eðli sitt. Ég vil hafa konur kven­legar. Þær eiga að vera konur í útliti. Þær eiga ekki að reyna að vera karlar,“ sagði Rósa í við­tali sem hinn þraut­reyndi fjöl­miðla­maður og ljóð­skáld, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þáver­andi blaða­maður.

Misserin á undan hafði Rósa verið í stóru hlut­verki í djörfum aug­lýs­ingum inn­heimtu­deildar Rík­is­út­varps­ins, sem tefldi fram kyn­þokka­fullum konum og geim­verum, í því skyni að inn­heimta áskrift­ar­gjöldin að rík­is­fjöl­miðl­inum; aug­lýs­ing­arnar vöktu mikla athygli og sums staðar gremju:

„Ég er ofsa­lega sam­mála orðum Hannesar Hólm­steins þegar hann sagði að kon­urnar hugs­uðu í hring en karl­mað­ur­inn í línu. Og það er munur, það er stór munur á konu og karli. Konur eru allt öðru­vísi en karlar. Þær eru miklu meiri til­finn­inga­verur og eru meira inni í sjálfum sér. Karl­arnir eru ákveðn­ari og örugg­ari. Konurnar eru flækju­kennd­ari. Ég myndi segja að karl­arnir væru rök­rétt­ari og rök­fast­ari en kon­urnar. Konurnar eru bara nokk­urs konar víra­virki.“

Hún sagði að með þessum orðum ekki vera að segja að konur séu illa gefnar:

„Konur eru mjög vel gefnar, alveg til jafns við karl­menn. En bara til­finn­ing­arnar. Þær eru svo mikið öðru­vísi. Þess vegna finnst mér að konur eigi ekki að setja sér stjórn­mála­legt mark­mið. Stjórn­mála­legur frami er ekk­ert tak­mark fyrir konur og þetta er per­sónu­leg skoðun mín. Stjórn­mál eru ekki það rétta fyrir konur,“ sagði Rósa.

Hún vildi að konan sé heima og hugsi um heim­ilið og barn eða börn:

“Karlinn vinnur úti og kemur heim eftir mik­inn vinnu­dag og auð­vitað sam­ein­ast þau þá. Hjóna­bandið er nátt­úr­lega ekk­ert annað en sam­ein­ing. En ég er á móti því, sem mikið hefur verið rætt um að und­an­förnu, að karl­inn eigi að gera þetta og hitt þegar hann kemur heim úr vinn­unni. Hann geti alveg séð um mat­inn, þurrkað af og haldið hús­inu við og svo fram­vegis. Ég er mikið á móti þessu hug­ar­fari. Mér finnst eins og með þessu sé verið að gera karl­mann­inn að ein­hverjum þræl,“ sagði Rósa Ing­ólfs­dóttir fyrir 39 árum síðan.

Hún lét eftir sér hafa að „ég varð ekki fyrir aðkasti vegna skoð­ana minna. En ég skynj­aði ótta­blandna virð­ingu og var beitt þöggun.“

Rósa sagð­ist vera stolt af inn­heimtu­aug­lýs­ing­unum sem hún samdi frá grunni og lék hlut­verk í þar sem kyn­þokki hennar var ræki­lega und­ir­strik­aður; meðal þess sem hún gerði var að setja tækni­menn í gervi geim­vera:

„Þetta var gagn­rýnt og þótti djarft. Ég sá hluta af þessum aug­lýs­ingum í upp­rifjun Sjón­varps­ins í til­efni af 50 ára afmæli þess og ég er afar stolt af þeim.“

Rósa bakk­aði ekk­ert með það: Sagðist alltaf standa við orð sín; líka þau að konur í hópi rauð­sokka og komm­ún­ista hafi verið ljótar:

„Þar var ég þó ekki að tala um mann­eskj­urnar heldur hópana sem slíka. Allar mann­eskjur eru fal­legar, hver á sinn hátt. Þessir hópar klæða sig lura­lega og líta því illa út. Það sést aldrei rauð­sokka í bleiku sem er lit­ur­inn sem und­ir­strikar þokka kvenna,“ sagði Rósa; og stendur líka við þá skoðun sína að karlar eigi að stjórna þjóð­fé­lag­inu:

„Ég er gam­al­dags og hugsa mikið og les mikið. Það er nið­ur­staða mín og sann­fær­ing að konur eigi að standa við bakið á mönnum sínum, en ekki trana sér fram í stjórn­málum eða ann­ars staðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ