Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Góð vika / Slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika

Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess að geta heim­ilda.

„Mér er málið skylt þar sem ég skrif­aði bók sem fjallar um sama efni og heitir Den svarte vik­ingen (2013, Spartacus), og kom út þrem árum síðar í íslenskri gerð undir titl­inum Leitin að svarta vík­ingnum (2016, Bjartur, hér eftir kölluð LSV). Svo ánægju­legt sem það ann­ars er fyrir höf­und að sjá til­gátur sínar og hugs­anir reif­aðar í bókum ann­arra, er það að sama skapi martröð að sjá aðra setja fram til­gátur manns án þess að umræddra verka sé getið,“ skrif­aði Berg­sveinn í aðsendri grein í Vísi.

Ásgeir neit­aði þessum ásök­unum á Facebook.

„Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaf­lega heimsku­legt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að svarta vík­ingnum sem var met­sölu­bók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eign­ar­rétti á einu eða neinu sem teng­ist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.“

En bíddu, átti Ásgeir þá nokkuð góða viku? Já, bókin hans er nefni­lega upp­seld hjá útgef­anda. Og þar með sann­ast hið forn­kveðna, slæm umfjöllun er betri en engin umfjöllun. Man ekki alveg hvaðan þessi setn­ing er, senni­lega úr Íslend­inga­bók­unum.

Slæm vika

Hinn nýi dóms­mála­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, hefur ekki átt góða viku. Síðan hann réð Hrein Loftsson og Brynjar Níelsson til starfa sem aðstoða­menn sína fyrir tveimur vikum, hafa háværar gagn­rýn­is­raddir dunið á honum. Þykir mörgum sem þrír eldri karl­menn séu ekki best til þess fallnir að vinna að jafn við­kvæmum málum og heyra undir dóms­mála­ráðu­neytið. Brynjar Níelsson hefur í gegnum tíð­ina komið sér í frétt­irnar með því að viðra skoð­anir sínar á ýmsum mál­efnum og hafa þær margar verið ansi umdeildar. Má þá meðal ann­ars nefna gagn­rýni hans á Metoo-bylt­ing­una og sótt­varn­ar­að­gerðir gegn Covid-19, svo fátt eitt sé nefnt.

Þetta sagði Brynjar nýlegar um sótt­varn­irnar: „Það er þekkt í sög­unni að stjórn­völd hafi fundið með til­tölu­lega auð­veldum hætti rétt­læt­ingu fyrir að tak­marka frelsi og rétt­indi borg­ar­anna. Og síðan er gengið á lagið. Nú má búast við skæðri flensu þótt eng­inn viti það með vissu. Því þurfum við áfram að vera með meiri íþyngj­andi tak­mark­anir en aðrir. Allt okkar líf snýst jú um Land­spít­al­ann og vellíðan fólks þar. Það er eins og eng­inn annar geti sinnt heil­brigð­is­þjón­ustu nema LSH.“

Eins og áður segir var ráðn­ing Brynjars harð­lega gagn­rýnd í sam­fé­lag­inu. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, skrifar Twitter-færslu við frétt Vísis um ráðn­ingu Brynjars Níels­sonar í starf aðstoða­manns Jóns Gunn­ars­sonar, inn­an­rík­is­ráð­herra.

„For­sæt­is­ráð­herra sagði í gær að bar­áttan gegn kyn­bundnu ofbeldi og bætt staða brota­þola verði í for­gangi hjá rík­is­stjórn­inni. Þetta er teymið sem á að stýra bar­átt­unni.“

Sóley Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti borg­ar­stjórnar fyrir Vinstri græn og ann­ál­aður femínisti, gagn­rýndi sinn gamla flokk á Twitter.

„Nei, þetta er komið gott @vinstrigraen. Það er bein­línis and­femínískt að setja mála­flokk kyn­ferð­is­brota í hendur þess­ara manna. Önnur eins van­virð­ing við þolendur og aktí­vista er vand­fundin.“

Lenya Rún Taha Karim, þing­maður Pírata sam­kvæmt fyrri taln­ingu ú alþing­is­kosn­ing­unum, en fram­bjóð­andi Pírata sam­kvæmt seinni taln­ing­unni, tjáir sig einnig um málið á Twitter.

„Vil biðja alla Íslend­inga afsök­unar ég hélt ég hefði skilið eftir mig alla­veg­ana það að ég hefði hent Brynjari Níels út af þingi.“

Þetta er sem sagt ekki búin að vera neitt sér­stak­lega góð vika hjá Jóni og enn bætt­ist á vand­ræðin þegar Hreinn Loftsson sagði af sér sem aðstoða­maður hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ