Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásgeir segist saklaus af ritstuldi: „Ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni“

Ásgeir segist saklaus af ritstuldi: „Ég hef verið þjófkenndur í fyrsta skipti á ævinni“
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Öll spjót standa nú á Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra Íslands vegna ásak­ana um rit­stuld. Segist hann í yfir­lýs­ingu vera alsak­laus af þeim ásök­unum.

„Síðustu dagar hafa verið mjög sér­stakir hjá mér þar sem ég hef verið þjóf­kenndur í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki viljað bregð­ast við fyrr en ég hefði fengið ráð­rúm til þess að lesa bók Berg­sveins Birg­is­sonar Leitin að svarta vík­ingnum og bregð­ast efn­is­lega við þeim ásök­unum sem hann hefur sett fram. Ég mun því fjalla ítar­lega um málið síðar. Ég vil þó nefna nokkra hluti nú þegar.

Bók Berg­sveins Birg­is­sonar Leitin að svarta vík­ingnum er ekki hefð­bundin sagn­fræði. Hún er það sem höf­undur kallar sjálfur í for­mála „rök­saga“ eða „ímyndun grund­aða á þekk­ingu“. Þá eða eins og segir í eft­ir­mála að verkið sé „formtil­raun, við­leitni til að brúa bilið milli fræði­manns og rit­höf­undar og nota bæði heila­hvelin sam­tímis. Útkoman er blend­ingur.“ Í þessu sam­hengi má einnig halda því til haga að í rit­dómi um bók­ina sem Gunnar Karlsson rit­aði í Sögu Tímarit Sögu­fé­lags­ins árið 2019 eru gerðar athuga­semdir við heim­ilda­notkun og túlk­anir bók­ar­innar og segir að rit­verk af þessum toga séu „býsna ósam­bæri­leg við sagn­fræði“. Gunnar telur það alls ekki aug­ljóst að hún geti talist fræði­rit. Ég fæ heldur ekki betur séð en að það við­horf sé ríkj­andi meðal ann­arra sagn­fræð­inga. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér rit­dóma um bók­ina á öðrum tungu­málum. Ég vil taka sér­stak­lega fram eftir að hafa lesið bók Berg­veins að hún er mjög skemmti­leg og upp­lýsandi um margt – og að mínu áliti frá­bært fram­tak af hans hálfu,“ segir Ásgeir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu sinni á Facebook.

Ásgeir segir einnig að bók sín sé ekki fræði­bók heldur svo­kall­aðir „leik­manns­þankar.“

„Hvaða mína bók varðar Eyjan hans Ingólfs þá er hún ekki fræði­rit og hefur aldrei verið kynnt sem slík. Hún er til að mynda ekki með heim­ilda­skrá. Ég get þeirra heim­ilda sem ég nota í neð­an­máls­greinum en þessa bók má alls ekki líta á sem tæm­andi fræði­rit um land­nám Íslands. Sagn­fræð­ingar hafa ágætis orð fyrir bækur af þessu tagi sem „leik­manns­þankar“. Þessi bók er sprottin upp af ein­lægum sögu­á­huga mínum.“

Þá tekur hann aukreitis fram að hann hafi ekki gefið bók­ina út í gróðra­skyni, hann sé sáttur ef hún kemur út á núlli.

„Ég vil líka taka fram að ég von­ast ekki eftir neinum efna­legum ávinn­ingi með ritun þess­arar bókar. Ég verð aðeins ánægður ef bókin stendur undir fram­leiðslu­kostn­aði.“

Að lokum segir Ásgeir að það hefði verið afar heimsku­legt af sinni hálfu að stunda rit­stuld, stöðu sinnar vegna.

„Ég vil í lokin aðeins taka fram að ég hef aldrei áður verið vændur um stuld. Enda væri það ákaf­lega heimsku­legt stöðu minnar vegna að reyna slíkar kúnstir með bók líkt og Leitina að Svarta vík­ingnum sem var met­sölu­bók á Íslandi. Ég hef heldur engan áhuga á því að lýsa yfir eign­ar­rétti á einu eða neinu sem teng­ist Landnámu. Þá bók á þjóðin öll saman.“

Sjá einnig: Hannes styður Ásgeir – Var sjálfur dæmdur fyrir rit­stuld

Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi