Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

10 kvikmyndir til að hefja nýtt ár

10 kvikmyndir til að hefja nýtt ár

Nú árið er liðið í ald­anna skaut eins og skáldið sagði. Mér datt ekki í hug neitt snjallt að segja þannig að ég ákvað að slá aðeins um mig. Sem sagt, nú er nýtt ár að ganga í garð með nýjum áskor­unum, nýjum augna­blikum, minn­ingum og sjálf­sagt nýjum sótt­varn­ar­að­gerðum. Nú þegar um 3% þjóð­ar­innar eru ann­að­hvort í sótt­kví eða ein­angrun og restin í hátíð­ar­kóma er til­valið að hjálpa fólki við að starta nýju ári. Hér er listi yfir 10 kvik­myndir til byrja árið með stæl.

1. Amélie (Le fabuleux destin d’Amélie Poulain) (2001)

Er eitt­hvað betra en að byrja árið á krútt­mynd allra krútt­mynda? Þessi franska perla skaut hinni gull­fal­legu og hæfi­leik­a­ríku leikkonu Audrey Tautou upp á stjörnu­him­in­inn árið 2001 en hún hlaut 5 Ósk­ar­stil­nefn­ingar sem er óvenju­legt fyrir kvik­mynd sem ekki er amer­ísk. Kvik­mynd­inni er leik­stýrt af hinum frá­bæra Jean-Pierre Jeunet sem einnig er mað­ur­inn á bak við gull­mola eins og Delicatessen, City of Lost Children og svo Alien: Resurrection.
Myndin fjallar um draum­órastelpuna Amélie sem ákveður að til­einka líf sitt því að hjálpa fólk­inu í nærum­hverfi hennar. Hún áttar sig svo á því að með því van­rækir hún sitt eigið líf og leit sinni að ást­inni. Myndin er í senn fyndin, fal­leg og róm­an­tísk, kjörin fyrir pör og róm­an­tískar sálir. Til gam­ans má geta að Amélie er í 119 sæti yfir bestu kvik­myndir allra tíma á imdb.com.

2. Se7en (1995)

Skiptum algjör­lega um gír. Se7en er spennu­mynd allra spennu­mynda. Eftir að hún sló í gegn birt­ist ara­grúi kvik­mynda sem aug­lýstu sig sem „í anda Se7en“ en í raun voru það bara „wannabe“ Se7en. Hinn stór­kost­legi leik­stjóri David Fincher sló ræki­lega í gegn með þess­ari mynd en hún er aðeins önnur kvik­myndin sem hann leik­stýrði (sú fyrsta var Alien 3!). Fram að henni hafði hann gert fjöld­ann allan af tón­list­ar­mynd­böndum fyrir lista­menn eins og Madonnu, Iggi Pop og Billy Idol. Er hann einnig mað­ur­inn á bak við snilld­ar­kvik­myndir á borð við The Game, Fight Club, Zodiac og þætt­ina Mind Hunter. Se7en kom eins og storm­sveipur árið 1995 en hún fjallar um leit tveggja rann­sókn­ar­lög­reglu­manna að einum við­bjóðs­leg­asta raðmorð­ingja kvik­mynda­sög­unnar. Án þess að fara lengra í plottið get ég sagt að loka­at­riði mynd­ar­innar er eitt það allra besta í sögu kvik­mynd­anna. Leikarar mynd­ar­innar eru alls ekki af verri end­anum, þvert á móti; Brad Pitt, Morgan Freeman, Kevin Spacey og Gwyneth Paltrow. Se7en er númer 21 á lista imdb.com yfir bestu kvik­myndir allra tíma. Ekki fyrir við­kvæma!

3. Coco (2017)

Já, ég veit, þetta er teikni­mynd, en mér er sama. Að mínu mati er Coco besta teikni­myndin síðan Lion King kom út. Hún hefur allt, húmor, spennu, feg­urð og frá­bært plott. Coco kom út árið 2017 og vann tvenn Ósk­arsverð­laun. Henni er leik­stýrt af þeim Lee Unkrich og Adrian Molina. Myndin ger­ist í Mexíkó og fjallar um hinn gítar­óða Miguel sem er ungur drengur með stóra drauma um að verða tón­list­ar­maður. En fjöl­skylda hans bannar alla tón­list vegna þess að langa­langafi hans hafði tekið tón­list­ina fram yfir fjöl­skyld­una á sínum tíma. Á degi hinna dauðu verður Miguel fyrir því óláni að fara yfir í hand­an­heim­inn (án þess þó að deyja) en hann kemst ekki til baka nema með hjálp langa langafa síns og Fridu Calo og fleiri íbúa hand­an­heims­ins. Það sem gerir þessa teikni­mynd svo frá­brugðna flestum öðrum teikni­myndum er sögu­þráð­ur­inn. Hann er þéttur, bráð­snjall og ljúfsár og svo er frá­bært plott í lokin. Lita­feg­urðin í henni skemmir einnig alls ekki fyrir sem og tón­listin sem er stór­kost­leg. Með aðal­hlut­verk fara Anthony Gonzales, Gael García Bernal, Benjamin Bratt og Alanna Ubach. Coco er númer 72 á lista imdb.com yfir bestu kvik­myndir sög­unnar. Tilvalin fjöl­skyldu­mynd en þú getur líka horft á hana ein/n.

4. On the Waterfront (1954)

Hér er ein úr geymsl­unni. On the Waterfront er svo­lítið týndur fjár­sjóður, en hún kom, sá og sigr­aði á ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni árið 1955; kvik­myndin hlaut 8 verð­laun og er númer 183 á lista imdb.com. Ungur og upp­renn­andi Marlon Brando hlaut fyrri Óskarinn sinn fyrir hlut­verk sitt í mynd­inni. On the Waterfront segir sög­una um Terry Malloy (Brando) sem er fyrr­ver­andi box­stjarna og far­inn að vinna á höfn­inni og bar­áttu hans við spillta verka­lýðs­for­ystu sem bróðir hans til­heyrir. Svo fer hann að falla fyrir syrgj­andi systur eins af sam­starfs­mönnum sínum. Myndinni er leik­stýrt af Elia Kazan sem er þekkt­astur fyrir kvik­myndir á borð við Gentlemen´s Agreement, A Streetcar named Desire, America America og East of Eden. Kvik­myndin er ein­stak­lega vel leikin og sögu­þráð­ur­inn stór­góður og eig­in­lega tíma­laus, því enn þann dag í dag er fólkið á gólf­inu að kljást við spill­ingu á toppnum. Marlon Brando fer á kostum í henni en einnig eru Lee J. Cobb, Karl Malden og Rob Steiger með hlut­verk í mynd­inni. Stórgott val ef vel á að gera við sig.

5. 28 days later (2002)

Þessi skaut mér skelk í bringu í byrjun ald­ar­innar og gerir enn. Hinn eit­ur­svali Cillian Murphy leikur hér ungan mann sem vaknar eftir að hafa legið í dái á spít­ala og heldur að hann sé eins og Palli, einn í heim­inum. Götur London eru auðar og eng­inn virð­ist á svæð­inu. En því miður fyrir hann er sú ekki raunin. Það sem ungi mað­ur­inn veit ekki, er að á meðan hann lá í dái hefur dul­ar­full veira farið yfir mann­kynið á ógn­ar­hraða. Ein­kennin eru ekk­ert ósvipuð þeim sem fólk finnur nú á Covid-tíma fyrir utan eitt smá­at­riði. Ein­kennin eru hiti, haus­verkur, sviti, bein­verkir og mannætu„tendensar“. Ungi mað­ur­inn reynir hvað hann getur til að lifa af í nýjum veru­leika með hjálp nokk­urra sem hafa ekki enn fengið veiruna. Enginn annar en Danny Boyle leik­stýrir þess­ari stór­góðu kvik­mynd, en hann er hvað þekkt­astur fyrir mynd­irnar A Shallow Grave, Tra­in­spott­ing, Sunshine, A Slumdog Milli­onaire, 128 Hours og Yester­day. Naomie Harris og Christopher Eccleston leika með Murphy og standa sig með prýði. Tilvalin mynd fyrir þá sem þurfa að koma blóð­inu af stað.

6. Skytturnar (1987)

Ég verð nú að hafa að minnsta kosti eina íslenska kvik­mynd með, er það ekki? Ég vil samt ekki benda fólki á týpískar kvik­myndir eins og Með allt á hreinu, Sódóma Reykja­vík eða Englar alheims­ins, sem allar eru stór­kost­legar en svo­lítið útjaskaðar. Skytt­urnar er fyrsta kvik­mynd Friðriks Þórs Frið­riks­sonar í fullri lengd, en aðrar þekktar kvik­myndir sem hann leik­stýrir eru til að mynda Börn nátt­úr­unnar, Bíódagar, Djöfla­eyjan og Englar alheims­ins. Í Skytt­unum eru fylgst með tveimur minni­poka­mönnum, þeim Grími og Bubba, í einn dag, þar sem þeir fara á putt­anum frá Hval­firði þar sem þeir voru að vinna við hval­skurð, til Reykja­víkur þar sem þeir hyggj­ast mála bæinn blóð­rauðan. Sagan er ein­föld en spenn­andi og hrynj­and­inn er fínn þar sem áhorf­and­inn fylgist með félög­unum sökkva sífellt dýpra í vand­ræði. Aðal­leik­ar­arnir eru þeir Þórarinn Óskar Þór­ar­ins­son og Eggert Guð­munds­son en þeir smellpassa báðir í hlut­verk félag­anna. Atriðin í bílnum og á skemmti­staðnum eru óborg­an­leg.

7. Eyes Wide Shut (1999)

Síðasta kvik­mynd sénís­ins Stanleys Kubrick er hin furðu­lega Eyes Wide Shut og verð ég að segja að það finnst mér stór­góð kveðju­gjöf leik­stjór­ans til áhorf­enda. Þetta er kannski ekki besta mynd Kubrick en þetta er sú kvik­mynd eftir hann sem ég vil horfa á á fyrstu dögum nýs árs. Eyes Wide Shut er kyn­þokka­full, dul­ar­full, skrítin og stríðin. Ég segi stríðin, því Kubrick tekst á frá­bæran máta að kitla áhorf­endur með hálf­gerðu lof­orði um kyn­lífs­senu sem kannski aldrei verður. Hún fjallar sem sagt um lækn­inn William Harford, sem leik­inn er af Tom nokkrum Cruise, sem fer á furðu­legt ferða­lag eina nótt á Man­hattan, eftir að kona hans, sem leikin er af Nicole Kidman, segir honum frá fantasíu sinni þar sem hún gerir sér dælt við annan mann. Lækn­ir­inn kemst eftir flóknum leiðum inn í dul­ar­fullt kyn­lífspartí þar sem allir bera grímur (karni­val­grímur, ekki Covid-grímur) en þar eru engar fjar­lægð­ar­tak­mark­anir. Í partí­inu lendir lækn­ir­inn í vondum málum en meira vil ég ekki segja. Aðrir leik­arar sem vert er að nefna eru Todd Field, Sydney Pollack og Julienne Davis. Tilvalin kvik­mynd fyrir Netflix- og Chill-stefnu­mót eða fyrir fólk sem hefur gaman af eró­tík og spennu í bland. Takið sér­stak­lega eftir tón­list­inni í mynd­inni, hún er ein­föld en sterk.

8. The Rocky Horror Picture Show (1975)

Talandi um eró­tík og spennu, næst á list­anum er költ­mynd allra költ­mynda, The Rocky Horror Picture Show. Áður en kvik­myndin var tekin upp var verkið sýnt á leik­sviði víða undir sama nafni. Leik­stjór­inn Jim Sharman er þekktur ástr­alskur leik­hús­leik­stjóri og hefur í raun og veru ekki leik­stýrt mörgum kvik­myndum og er Rocky Horror lang­vin­sælasta myndin hans. Kvik­myndin kom út árið 1975 en sló þó ekki í gegn fyrr en tveimur árum síðar, leik­ur­unum til óvæntrar gleði. Hefur kvik­myndin verið sýnd í svoköll­uðum mið­næt­ur­sýn­ingum í bíó, víðs vegar í Ameríku, sleitu­laust í 43 ár. Leik­ara­valið er ein­stak­lega gott en með aðal­hlut­verk fara Susan Sarandon, Barry Bostwick, Tim Curry, Meat Loaf, Nell Campell, Patricia Quinn, Jonathan Adams, Charles Gray og höf­undur verks­ins, Richard O’Brien. Ég bara gat ekki valið á milli hlut­verka. Myndin, sem er söngva­mynd, er ást­ar­óður til B-mynd­anna. Hið íhalds­sama par, Brad og Janet, eru á leið til vinar síns þegar það springur á bílnum hjá þeim. Þau leita skjóls í kast­ala nokkrum í nágrenn­inu þar sem þau verða vitni að ýmsu mis­jöfnu og lenda í ævin­týrum, ástar sem og öðrum. Óhætt er að segja að þessi kvik­mynd eigi eftir verða áhorf­endum minn­is­stæð langa, langa lengi (svo ég vitni í verkið sjálft). Lögin í mynd­inni er gríp­andi og text­inn frá­bær. Húmorinn er einnig stór­góður í verk­inu og svo eru skila­boðin svo fal­leg; „don´t dream it, be it“. Ekki fjöl­skyldu­mynd.

9. Memento (2000)

Áður en Christopher Nolan sló í gegn með The Dark Knight – Batman-mynd­unum gerði hann eina snilld sem virð­ist oft gleym­ast. Memento fjallar um mann, sem leik­inn er af Guy Pierce, sem reynir að kom­ast að því hver myrti kon­una hans. Það er bara einn galli og það ekk­ert lít­ill galli. Hann hefur ekk­ert skamm­tíma­minni. Hann verður því að treysta á minnismiða sem hann verður að skrifa á mjög reglu­lega yfir dag­inn. Þetta er öðru­vísi „Whodunit“-kvik­mynd svo ekki sé meira sagt, frum­leik­inn er alls­ráð­andi og spennan í hámarki allan tím­ann. Svo er hún lista­vel leikin. Með önnur aðal­hlut­verk fara þau Carrie-Ann Moss og Joe Pantoli­ano. Myndin er númer 55 á lista imdb.com yfir bestu kvik­myndir sög­unnar. Ég ábyrgist að þessi mynd mun slá í gegn hjá þér ef hún hefur hingað til farið fram hjá þér. Öfund!

10. 12 Angry Men (1954)

Síðasta myndin á lista mínum er þessi gamla, en stór­góða kvik­mynd, 12 Angry Men sem leik­stýrt var af Sidney Lumet sem er einnig þekktur fyrir myndir á borð við A Dog Day Afternoon, Serpico og Network. Myndir ger­ast vart ein­fald­ari í umgjörð en hún ger­ist á einum degi í her­bergi 12 manna kvið­dóms í morð­máli. Allir nema einn þeirra eru á því að hinn meinti morð­ingi sé sekur, en það er þessi eini sem ekki gefur sig. Þeir verða sífellt reið­ari við hann en þurfa svo að horfast í augu við rökin sem hann kemur með og smám saman fara fleiri að efast um sekt þess ásak­aða. Ef þú elskar rök­ræður þá er þetta hin full­komna mynd fyrir þig. Já, og leik­ur­inn, maður minn! Það er erfitt að finna betur leiknar myndir en 12 Angry Men en í aðal­hlut­verkum eru þeir Henry Fonda, Lee J. Cobb, Martin Balsam og Jack Warden að öllum hinum kvið­dóm­endum ólöst­uðum. Myndin er hvorki meira né minna í 5. sæti lista imdb.com, geri aðrar betur! Já, reyndar gera fjórar aðrar myndir betur, en þessi er samt hel­víti góð. Myndin var svo löngu síðar end­ur­gerð, en bara ekki, ekki sjá hana. Góða skemmtun!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ