Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Ásmundur ætti að krefjast svara um landsbyggðarrasisma en ég vil söngleikjamynd um sögu Samherja“

„Ásmundur ætti að krefjast svara um landsbyggðarrasisma en ég vil söngleikjamynd um sögu Samherja“

Í þræl­góðum pistli fjallar Ísak Hin­riks­son um þátt­inn Verbúð og Ásmund Frið­riks­son, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, undir yfir­skrift­inni:

Hrekkja­lómur hrærður yfir Ver­búð.

Gefum Ísaki orðið, en hann er náms­maður, kom­inn af bænda­fólki, sjó­mönnum og menn­ing­ar­vitum, að eigin sögn:

„Rík­is­sjón­varpið sýndi á annan í jólum fyrsta þátt Verbúðar úr smiðju Vest­ur­ports.

Þátt­ur­inn sýndi líf­legt og lit­ríkt sjáv­ar­þorp á tímum ver­búð­anna á Íslandi.

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og með­limur Hrekkjalóma­fé­lags­ins, Ásmundur Frið­riks­son, var einn fjöl­margra lands­manna sem gæddu sér á þætt­inum. En þing­mað­ur­inn fékk óbragð í munn­inn.

Í pistli á Facebook síðu sinni seg­ist þing­mað­ur­inn lítið sitja við sjón­varp en hann sé leiður á lands­byggð­ar­ras­isma höf­uð­borg­ar­búa og Rík­is­út­varps­ins: Að í fram­lagi Rík­is­út­varps­ins til menn­ing­ar­innar í land­inu sé meira og minna dregin upp mynd und­ir­máls­fólks í sjáv­ar­plássi.

Drykkju­sýki topp skip­stjóra og sam­farir þar sem ekk­ert er dregið undan með ljót­leik­ann í aðal­hlut­verki.“

Og bætir við:

„Þing­mað­ur­inn bætir við í við­tali við Reykja­vík Síðdegis á Bylgj­unni að hann sé hræddur við að fólk vilji ekki flytja á lands­byggð­ina vegna sögu­sagna um að þar sé allt í volli.

Þing­mað­ur­inn virð­ist fara á mis við ansi margt í pistli sínum.

Fyrst má benda á að þátt­ur­inn sem um ræðir er leikið sjón­varps­efni en ekki heim­ilda­þættir.“

Ísak ljær máls á því að „þing­mað­ur­inn virð­ist ekki treysta landa sínum til þess að greina milli raun­veru­leika og skáld­skapar. Einnig verður að halda til haga að eitt af hlut­verkum skáld­skapar er að segja sögur und­ir­máls­fólks, þeirra sem ekki hafi rödd í sam­fé­lag­inu.

Sjálfur sá ég ekki mikið um und­ir­máls­fólk í þætt­inum heldur lit­ríkt per­sónugall­erí og fjörugt sjáv­ar­þorp þess tíma sem sjáv­ar­þorpin lifðu.“

Hann bendir þó á að ekki sé allt gagn­rýni­vert í pistli þing­manns­ins, en hann tekur meðal ann­ars upp hansk­ann fyrir kven­þjóð­inni:

„Honum finnst konur lít­il­lækk­aðar með fárán­legu stripli sem engan til­gang hafi í þátt­unum og spyr hvort þetta sé fram­lag Rík­is­út­varps­ins til Metoo-hreyf­ing­ar­innar.

Það er ánægju­legt að þing­mað­ur­inn sjái gamlan tíð­ar­anda í öðru ljósi eftir að hafa sjálfur á sínum tíma „fengið“ inn­pakk­aða nekt­ar­dans­mær sem fækk­aði fötum í fer­tugs­af­mæl­is­gjöf frá félögum sínum í Hrekkjalóma­fé­lag­inu.“

Ásmundur Frið­riks­son fékk hina heims­frægu söng­konu Leoncie í afmæl­is­gjöf er hann varð fer­tugur. Mynd / tima­rit.is

Nefnir að „höf­undar þátt­anna virð­ast sjálfir aftur á móti hafa hitt naglann á höf­uðið um vin­sældir nekt­ar­dans á Íslandi á þessum tíma, því í þætt­inum birt­ist Susan Haslund sem ferð­að­ist um Ísland og bað­aði sig fyrir augum Íslend­inga.

Hér mætti spyrja: Hvert er fram­lag Hrekkjalóma­fé­lags­ins til Metoo hreyf­ing­ar­innar?

Þing­mað­ur­inn spyr hvort tími sé kom­inn að land­byggð­ar­ras­ismi menn­ing­ar­vit­anna og Rík­is­út­varps­ins linni og að bar­áttu­mál Rík­is­út­varps­ins og sam­starfs­að­ilum þess megi koma á fram­færi með öðrum hætti en að gera lítið úr fólki sem vinnur mik­il­væg gjald­eyr­is­skap­andi störf á lands­byggð­inni og í sjáv­ar­plássum allt í kringum landið,“ og bætir við að „þarna skellir þing­mað­ur­inn skuld­inni á rangan söku­dólg, RÚV.

Í raun ætti hann heldur að krefj­ast þess að Kvik­mynda­sjóður Íslands rit­skoði land­byggð­ar­ras­isma og leggi frekar áherslur á hetju­sögur lands­byggð­ar­innar; sjálfur legg ég til söng­leikja­mynd um sögu Samherja.“

Ísak seg­ist ekki geta skilið „hvað Ásmundur eigi við með að Rík­is­út­varpið geri lítið úr fólki sem vinnur störf á lands­byggð­inni. Ætli hann eigi við umfjöllun frétta­skýr­ing­ar­þátt­ar­ins Kveiks á málum Samherja. Einnig er spurn­ing hvort þing­mað­ur­inn eigi við sömu menn­ing­ar­vit­anna og kynntu ger­semar lands­byggðar Íslands fyrir alheim­inum. Kynning sem spil­aði stóran þátt í að bjarga land­inu frá banka­hruni á vakt Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ef til vill fer hrollur um þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem standa vörð um kvóta­kerfið þegar fjalla á um upp­haf þess. Þegar bátar voru keyptir, kvót­inn seldur suður, litlu sjáv­ar­þorpin þurrk­uð­ust út og lit­rík sam­fé­lögin sem þátt­ur­inn sýnir lið­uð­ust í sundur.“

Endar góðan og athygl­is­verðan pistil sinn á þessum orðum:

„Ásmundur er hrekkja­lómur úr Vest­manna­eyjum og lifði þessa tíma. Það gerði ég ekki og hef aðeins einu sinni komið til Vest­manna­eyja. Kannski var þetta öðru­vísi í Vest­manna­eyjum.

En áður en næsti þáttur Verbúðar verður sýndur ætla að næla mér í bók Ásmundar um Hrekkjalóma­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ