Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðni: „Fáir sem vilja og velja að líða vel og vera hamingjusamir – ánetjuð fórnarlambssögunni“

Guðni: „Fáir sem vilja og velja að líða vel og vera hamingjusamir – ánetjuð fórnarlambssögunni“

Guðni er dug­andi pjakkur frá Keflavík sem lærði fljót­lega að allt sem þú veitir athygli vex og dafnar hvort sem það er jákvætt eða nei­kvætt. Hann lærði snemma að van­máttur og ótti er rót allrar nei­kvæðar fram­komu og óheil­inda, hann lærði einnig að það sem þú sérð er það sem þú öðl­ast og að hann réði sínu við­horfi, hvað sem á gengi; viljum við breyta ein­hverju þá verðum við fyrst að breyta við­horfi okkar til okkar.

Blaða­kona hitti Guðna á spjall um lífið, jógað og næstu skref.

Ná árangri og öðlast varanlega velsæld

Guðni lagði upp í ferða­lag lífss­ins með það í far­artesk­inu að verða móðir og föð­ur­betr­ingur en komst síðan að því að það að nota nei­kvæðan hvata til að ná árangri og öðl­ast var­an­lega vel­sæld getur aldrei gengið til lengdar.

Hann segir að: „ef þú notar skort­dýrið/van­mátt til að öðl­ast eitt­hvað þá getur þú aldrei sann­ar­lega þegið, notið þess/þín.“

Þetta gerði það að verkum að hann hóf að hanna kerfi fyrir var­an­lega vel­sæld sem bygg­ist á sjö skrefum/vörðum sem verða að umgjörð fyrir hátt­ar­læg og gjörðir sem leiða okkur skref fyrir skref, and­ar­drátt fyrir and­ar­drátt inn í var­an­lega vel­sæld, núna.

Þetta kerfi kall­ast GlóMotion HeilRækt og sam­anstendur af öllum þáttum þjálf­unnar; hug­lægum, and­legum, til­finn­ing­ar­legum, lík­am­legum. Kerfið er vit­undar þjálfun og bygg­ist á ásetn­ingi nær­ingar þ.e. hvort við nærum fjar­veru og skort eða veru og vel­sæld, einnig hvernig við notum lík­amann sem vett­vang og vista­verur sál­ar­innar.

Við ákváðum að leggja allt okkar af mörkum

Aðal­á­herslan hjá þeim hjón­unum Guðlaugu síð­ast­lið­inn 2 ár hefur verið GlóMotion Lífs­færni­skól­inn.

„Við ákváðum í upp­hafi far­ald­urssins að leggja allt okkar af mörkum til að styrkja áræðni og hug­rekki í stað þess að leyfa ótt­anum að verða að trú­ar­brögðum. Við köllum þetta við­horf að; veita athygli ekki við­nám. Kúnstin er að verja orkunni í það sem við viljum í stað þess sem við viljum ekki.“

Í upp­hafi far­ald­urssins var Guðni með hug­leiðslur á net­inu dag­lega sem voru mjög vel sóttar og síðan þegar þau töldu að þessu væri að linna þá færðu þau sig einu sinni í viku.

Guðni segir okkur að HeilRækt á net­inu hafi orðið til á þessum tíma­mótum þar sem starf­semi Rope Yoga set­urs­ins lagð­ist alveg niður um tíma. Þau buðu upp á GlóMotion Lífs­ráð­gjafa­nám í fyrsta sinn sem þau vilja end­ur­teka núna aftur í ár. Þá er það einka­ráð­gjöf sem hann hef boðið uppá síðan hann kom til Íslands aftur og segir að það hafi dafnað vel. Síðast en ekki síst öll máttar net­nám­skeiðin.

Mikill áhugamaður um líkamsrækt og hreysti

Guðni útskýrir fyrir okkur hvernig ferða­lag hans hófst.

„Árið 1984 rak ég lík­ams­rækt­ar­stöð sem hét Vaxrt­ar­ræktin. Þessi stöð var sett á lagg­irnar til að þjóna bæði lík­ama og heilsu­rækt. Þar var ég einnig með til sölu lík­ams­ræktar áhöld sem ég var að flytja inn og selja. Þetta var ekki stórt í sniðum en þarna vorum við með öll þau tæki og tól sem við vorum að leggja áherslu á og fannst mér við hæfi að nýta sýn­is­hornin til kynn­ingar. Þetta var stór salur ásamt risi sem var ætlað fyrir vaxt­ar­mótun þ.e. nafnið sem síðan varð Rope Yoga.

Þessi starf­semi gekk með ágætum og vorum við mest í einka­þjálfun, meðal ann­ars fyrir feg­urð­ar­sam­keppni íslands og mód­el­sam­tökin. Ég hafði hafið mína þróun og þjálfun um 16 ára aldur og var mik­ill áhuga­maður um lík­ams­rækt og hreysti þannig að ég var mikið við­loð­andi þennan heim. Ég og dró svo smá saman inn í for­svar og einka­þjálfun og varð þannig fyrsti einka­þjálf­ar­inn á Íslandi. Þetta gerði það að verkum að mér fannst til­efni til að viða að mér frek­ari þekk­ingu.

Á þessum tíma var ég með umboð fyrir Weider lík­ams­rækt­ar­vör­urnar og gaf út tíma­rit sem hét Lík­am­rækt & Næring sem var fyrsta heil­stæða tíma­ritið um þessi efni á Íslandi. Ég hafði verið ötull við að bæði þjálfa og mennta mig í þessum fræðum. Það sem ég hins vegar lærði fljót­lega var að þeir skjól­stæð­ingar mínir sem náðu mestum árangri voru þeir sem voru til­búnir að breyta um við­horf og skil­greina til­gang með þjálfun sinni þ.e. afhverju vilt þú það sem þú seg­ist vilja?

Þetta gerði það að verkum að ég fór að viða að mér frek­ari þekk­ingu eins og feld­en­krais, heller work, rolfing, Alex­ander tækni og bioenergetics sem stuðl­aði að því að and­legi, hug­lægi og til­finn­inga þátt­ur­inn væru til staðar í þjálfun­inni og þá varð jóga fyrir val­inu sem næsti áfanga­staður. Ég hafði kynnst og þjálfað smá hug­leiðslu en ekki hatha jóga eða heim­speki nema að tak­mörk­uðu leyti.

Ég ákvað að fara til Kripalu jóga set­urs­ins í Lenox Massachusetts USA og skráði mig á 2 nám­skeið, ann­ars vegar Raw Juice föstu og Inter Quest Intensive sem þýð­ist sem magnað innra ferða­lag. Ég varð svo snertur að ég bætti við mig 10 daga nám­skeiði sem hét The advanched self. Þetta voru mín fyrstu skref í þessu umhverfi sem þá var í for­svari Amrit Desai eða Gurudev eins og hann er nefndur. Eitt það fyrsta sem ég man eftir að hreif mig var mynd af Gurudev sem á stóð; You are the creator, what ever you beli­eve is what you create and that is what you become. Sem þýð­ist; Þú ert skap­ari þín veru­leika, það sem þú trúir er það sem þú skapar og úr þér verður. Þetta hitti mig í hjarta­stað þar sem ég trúi á orsök og afleið­ingu og það að við höfum alltaf val, vald.

Los Angeles.

Þarna kynnt­ist ég mörgu öfl­ugu fólki bæði nem­endum og kenn­urum sem leiddi til þess að ég var fengin til að halda nám­skeið í kvið­virkni í stórum sal með rúm­lega 90 þátt­tak­endum og varð ég mjög hissa þegar ég upp­götv­aði að meira segja jóg­arnir höfðu tak­mark­aðan aðgang að kviðnum. Kviðnum sem var miðja og kjarni vaxt­ar­mót­unnar sem ég var að kenna á Íslandi. Rope Yoga böndin eru verk­færi sem gera okkur kleyft að styrkja kvið­inn og losa um bakið án þess að spenna háls­vöðva og mjaðma­grind­ar­vöðvanna sem spenna og loka neðra bak­inu.

Innsýn inn í mína nálgun

Í fram­haldi af þessus nám­skeiðum var mér boðið að hitta Gurudev. Mér var sagt að hann hefði áhuga á allri lík­ams­rækt ekki aðeins jóga. Þetta varð að skemmti­legt tæki­færi þar sem mér bauðst að þjálfa hann og veita honum inn­sýn inn í mína nálgun á því sem ég kall­aði heild­ræna heilsu­rækt á þeim tíma, eða það sem kall­ast HeilRækt núna.

Þegar Gurudev var að lyfta lóðum með mér þá vit­an­lega lagði ég áherslu á athygli, átak og öndun og eftir æfing­una þá segir hann við mig; Gudni, what you are practising and teaching is dumm­bell yoga. Seinna þegar ég flutti til Los Angeles og hóf þar kennslu þá spurði skjól­stæð­ingur mig að því hvað ég kall­aði þessa nálgun, ég svar­aði body skulpt­ing, þá sagði hann af hverju ekki kalla þetta Rope Yoga? Þetta er greini­lega jóga og þú notar bönd í þinni nálgun. Mér fannst þetta bara hnittið en áður en ég vissi var þetta fast. Í dag köllum við þessa nálgun GlóMotion Core/kjarni.

Vertu breytingin sem þú vilt

Guðni hefur komið víða að innan heilsu­ræktar eins og fyrr segir, en hver er meg­in­til­gangur kennsl­unnar, þegar hún er sett upp á þennan veg?

„Vertu breyt­ingin sem þú vilt. Vitundar þjálfun í öllu sem þú aðhefst. Allt sem veitir athygli vex og dafnar. Þú ert Krafta Verk, ljós­vera en ekki hugs­anir eða við­horf,  þó að það sem þú hugsar um hafi sann­ar­lega áhrif, þannig að áhyggjur eru bæn, þegar þú ert með áhyggjur þá ert þú að veita því sem þú vilt ekki athygli og það verður að bón. Þú ert þú orka en ekki hug­mynd og um leið og þú verður ábyrg, val­fær vera þá eru þér allar gáttir opnar.

Það getur eng­inn hafnað sér til heilsu eða afneitað sér þangað til hann nær árangri.

Heilsa þýðir heilyndi og það getur eng­inn öðl­ast heilsu í óheil­indum.“

Það eru fáir sem vilja og velja að líða vel

Hvað hefur komið þér mest á óvart eftir að þú fórst inn á þessa braut?

„Hvað það eru fáir sem vilja, velja að líða vel og vera ham­ingju­samir. Það eru margir sem vilja ekki líða illa, segja þeir þó að þeir séu ekki til­búnir að gera þær breyt­ingar sem þarf til valda ann­ari líðan. Með öðrum orðum, hvað margir vilja sig ekki eins og þeir gerðu sig. Einu sinni heyrði ég af manni sem sagði; mér líður best illa og þegar maður er háður fjar­veru eða sög­unni sinni þá er maður stöðugt að valda sér þján­ingu, aftur og aftur. Þess skal geta að sárs­auki er óum­flýj­an­legur en þján­ing er val.“

Guðni hefur afrekað mikið og seg­ist vera: „ánægður með er hversu vel þess­ari hug­mynda­fræði hefur verið tekið, þar með talið bókum mínum, nám­skeiðum og núna síð­ast Lífs­færni­skól­anum. Það er mik­ill náð að fá að þjóna í þessu sam­fé­lagi og geta lagt eitt­hvað af mörkum. Það er vert að muna að við erum það sem við gefum og það að gefa af mér gleður ávalt mitt hjarta.“

Andlega, fjárhagslega og líkamlega gjaldþrota

Samtali okkar víkur að þyngri málum, en hann tjáir okkur að:

„Mesta áskorun lífs míns var að verða and­lega, fjár­hags­lega og lík­am­lega gjald­þrota þegar ég var 33 ára gam­all. Í dag væri þetta lík­lega kallað kulnun. Þetta sama ár skildi ég við fyrri konu mína Katrínu og flutti síðan til Los Angeles þar sem ég hóf nýtt líf. Þegar ég fór til LA var ásetn­ingur minn að kanna aðstæður og skoða annan vet­vang fyrir starf­semi mína. Ég ætl­aði mér ca 3 mán­uði í þetta ferða­lag og um leið að leita eftir skjóli frá sárs­auka mínum og van­mætti, ein­hvers konar hvíld. Ég flaug til Boston og fór fyrst til Kripalu í nokkra daga og síðan til LA. Los Angeles tók mér opnum örmum og 3 mán­uðir urðu að 6 árum þar sem ég var að sækja um land­vist­ar­leyfi og gat ekki yfir­gefið USA fyrr en ég hefði fengið græna kortið. Með því að skipta um umhverfi og hefja nýtt líf gat ég tekið athygl­ina frá sárs­auk­anum og fært hana yfir á tæki­færin og áskor­anir sem mér stóðu til boða.“

Ég er mín helsta áskorun

Hverjar eru þínar helstu áskor­anir í dag?

„Svarið við þessu er ein­falt; ég er mín helsta áskorun en tæki­færi á sama tíma. Ég ótt­ast ekk­ert í sjálfu sér nema mig og þegar maður hefur lært og þjálfað sig í að ótt­ast ekki ótt­ann þá getur maður lokss­ins treyst sér til að standa með sér, hvað sem á gengur, þ.e. vilja mig umbúða­laust, eins og ég gerði mig.“

Gætirðu deilt með okkur hvað þér hefur þótt eft­ir­minni­leg­ast á þinni leið?

„Það er alltaf eft­ir­minni­leg­ast að heyra frá fólki sem hefur nýtt sér verk­færin sem ég hef hannað og þróað til að öðl­ast heilsu og almenna vel­sæld. Það gefur mér alltaf jafn mikið að lesa umsagnir eða hlusta á frá­sagnir manna sem ákváðu að taka ábyrgð, verða val­fær og láta af eft­ir­sjá og iðrun eða öðru ein­elti gagn­vart sjálfum sér og öðl­ast þannig frelsi frá oki hug­ans, losna úr klóm og kjafti skort­dýrssins. Með öðrum orðum að vera ekki lengur ánetjuð fórn­ar­lambs­sög­unni sem við erum svo mörg háð.“

Næst á döf­inni hjá Guðna er nám­skeið sem byrjar 11. jan­úar. Nám­skeiðið er kallað Máttur Þakk­lætis sem er 66 daga ferða­lag í var­an­lega vel­sæld, síðan máttur hjart­ans, máttur vilj­ans og máttur nær­ingar. Þannig líkur þessu skóla­ári í lok maí.

Guðni jóga­meist­ari segir okkur að lokum að:

„Þakklæti er gátt vel­sældar og örlæti er ljósið sem skín frá ein­lægu hjarta. Öll okkar starf­semi hvetur þig til að vera Krafta Verkið í þínu lífi, ofur­vera, vilj­andi skap­ari sem veldur sinni til­vist, ekki lauf í vindi sem er van­máttur, getu­leysi eða slys.

Eina leiðin til að öðl­ast þennan mátt er að mæta til fulls inn í sína til­vist og birt­ingu. Vitundar þjálfunin sem við bjóðum uppá er styðsta og um leið örugg­asta leiðin bæði til að öðl­ast var­an­lega vel­sæld og við­halda henni, nefni ég þá sér­stak­lega GlóMotion HeilRækt sem verk­færi.

Árangur er sjaldan ham­ingja en ham­ingja alltaf árangur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ