Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Garðabær fær 644 milljónir úr Jöfnunarsjóði: Bærinn greiðir miklu lægra útsvar en Reykvíkingar

Garðabær fær 644 milljónir úr Jöfnunarsjóði: Bærinn greiðir miklu lægra útsvar en Reykvíkingar
Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garð­an­bær og Björg Fenger for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar

Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands sveita­fé­laga segir að þegar sveita­fé­lög full­nýti ekki útsvars­stofn, hljóti að vera tek­ist á um hvort útsvarslág sveita­fé­lög eigi að fá greiðslur úr Jöfn­un­ar­sjóði. Í því sam­hengi fær Garðabær 644 millj­ónir.

Frétta­blaðið segir frá mál­inu.

Kemur þar fram að flest sveit­ar­fé­lög séu með hæstu leyfi­legu útsvarspró­sentu. Lægst má útsvarið vera 12,44% en hámarks­út­svar er 14,52%.

Samkvæmt frétt Frétta­blaðs­ins fær Reykja­nes­bær hæsta heild­ar­fram­lag úr Jöfn­un­ar­sjóði fyrir árið 2022, um það bil 2,5 millj­arða. Séu útgjalda­jöfn­un­ar­fram­lög ein og sér skoðuð fá fjöl­kjarna­sveit­ar­fé­lög hæstu upp­hæð­irnar. Þar trónir Múlaþing á toppnum, fær 713 millj­ónir króna, Skaga­fjörður er svo í öðru sæti með 589 millj­ónir og Borg­ar­byggð er í þriðja sæti með 543 millj­ónir króna.

Íbúar Garða­bæjar greiða miklu lægra útsvar en Reyk­vík­ingar en þeir fá fram­lag til grunn­skól­anna sem Reykja­vík­ur­borg fær ekki. Garð­bæ­ingar greiða 13,7% útsvar en Reyk­vík­ingar 14,52%. Stofnuð var nefnd árið 2017 sem lagði fram til­lögu sem snéru að því að ef sveit­ar­fé­lag nýtti ekki útsvars­hlut­fall sitt að fullu ætti að skerða á móti fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sem næmi van­nýttum útsvars­tekjum. Ekki náði til­lagan braut­ar­gengi. Í Frétta­blað­inu er rætt við sveit­ar­stjórn­ar­fólk sem þykir málið ósann­gjarnt en til að mynda fær Garðabær 644 millj­ónir úr Jöfn­un­ar­sjóði árið 2022.

„Ég hef ríkan skiln­ing á að sumum sveit­ar­stjórn­ar­mönnum þyki sér­kenni­legt að þegar útsvars­stofn er ekki full­nýttur fái sveit­ar­fé­lögin á sama tíma greiðslur úr Jöfn­un­ar­sjóði,“ segir Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður Sambands sveit­ar­fé­laga.

Segir hún enn­fremur að það verði að vera jöfn­uður þó tek­ist sé á um fjár­veit­ingar. Það mik­il­væg­asta í þessu sé að sveit­ar­fé­lögin vanti meira fé til að sinna lög­bundnum skyldum sínum. Segir hún að ágæt sátt sé um það á land­inu að þjón­usta eigi að vera með sviop­uðum hætti ótengt búsetu fólks.

„Það er erfitt að búa til kerfi sem allir geta sætt sig við, en það er mik­il­vægt að fólk geri sér ljóst að tekju­mögu­leikar sveit­ar­fé­laga eru mjög mis­mun­andi. Kannski er það ekki besta með­ferð opin­bers fjár ef tekjur sem sveit­ar­fé­lagið getur aflað eru felldar niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ