Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Stefán Bogi var í gullaldarliði ME í Gettu betur: „Svo er mér ennþá svolítið í nöp við MR“

Stefán Bogi var í gullaldarliði ME í Gettu betur: „Svo er mér ennþá svolítið í nöp við MR“
Stefán Bogi Sveins­son Mynd: Aðsend

Stefán Boga Sveins­son kann­ast flestir Íslend­ingar við, að minnsta kosti yfir fer­tugu því hann var tíður gestur í spurn­inga­keppnum í sjón­varp­inu á árum áður. Þetta þýðir þó ekki að Stefán Bogi sé orð­inn gam­all maður því hann er aðeins rétt rúm­lega fer­tugur. Í við­tali við Mannlíf segir hann okkur frá gullöld Mennta­skól­ans á Egils­stöðum, póli­tík­inni, Útsvari, skáld­skapnum og fleiru áhuga­verðu.

Við erum mjög hamingjusöm hérna

Hvernig var upp­hafið og hvernig komstu þangað sem þú ert núna?

„Ég kom í heim­inn á Egils­stöðum 9. októ­ber 1980, í veðri sem ábyggi­lega hefði fengið ein­hvern lita­kóða ef það hefði verið búið að finna svo­leiðis upp þá. For­eldrar mínir, Sveinn Guð­munds­son og Sæunn Stef­áns­dóttir, voru þá bændur í Sellandi í Jök­ulsár­hlið.

Seinna varð pabbi sveit­ar­stjóri á Vopna­firði í nokkur ár áður en við fluttum síðan til Egils­staða þar sem ég ólst upp. Ég gekk í Mennta­skól­ann á Egils­stöðum en eftir ár sem skiptinemi í Ekvador lauk ég stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ.

Ég er mjög þakk­látur henni fyrir að gefa því séns og við erum mjög ham­ingju­söm hérna.

Þaðan lá leiðin í lög­fræði við Háskóla Íslands þaðan sem ég útskrif­að­ist 2006. Konan mín, Heiðdís Ragn­ars­dóttir, er Reyk­vík­ingur og ég kynnt­ist henni þar. Eftir að við hófum sam­búð ákváðum við að flytja aftur á mínar heima­slóðir hér fyrir austan. Ég er mjög þakk­látur henni fyrir að gefa því séns og við erum mjög ham­ingju­söm hérna. Við eigum þrjár dætur, Auð­björgu Elfu, Ingu Hraf­n­eyju og Álfrúnu Margréti sem eru 11, 8 og 3 ára.“

Stefán Bogi og fjöl­skyldan

Aftur á æskuslóðirnar

Þið hjónin fluttuð aftur á heima­slóðir þínar á Héraði, tog­uðu þær í þig, æsku­slóð­irnar?

„Mér fannst gott að alast upp á Egils­stöðum. Ég vand­ist því að það væri margt sem væri hægt að gera og taka sér fyrir hendur í tóm­stundum. Ég var í tón­list­ar­skóla, fór snemma að skrifa ljóð, var fasta­gestur á bóka­safn­inu, æfði alls kyns íþróttir og á heilt yfir bara jákvæðar minn­ingar af upp­vext­inum hérna. Enda vildi ég endi­lega koma aftur og setj­ast hér að.

Ég upp­lifi mjög sterkt að ég eigi mér rætur hér og til­heyri þessu sam­fé­lagi. Í því felst að ég hef notið góðs af því sem hér er að finna og þá sé ég líka skuld­bund­inn til að gefa til baka.“

Stefán Bogi á Skála­nesi

Gullaldarár Menntaskólans á Egilsstöðum

Stefán Bogi var í bæði Morfís liði Mennta­skól­ans á Egils­stöðum og Gettu betur lið­inu á árunum fyrir ald­ar­mótin en ME gekk óvenju vel á þessum árum. Hafa þessi ár stundum verið kölluð „gull­ald­arár“ ME, af þeim sem upp­lifðu tíma­bilið. Hvernig upp­lifðir þú þennan tíma Stefán Bogi?

„Það er skemmti­legt hversu sterkt maður upp­lifir þennan tíma, einmitt sem gullöld. Ef maður lítur svo á þetta í stærra sam­hengi var þetta kannski ekk­ert svaka­legur árangur en þó, þetta var langt umfram það sem gerst hafði í ME áður. Það fór þarna saman að við skól­ann var kenn­ari sem hafði reynslu af Gettu betur og tók að sér þjálfun.

Ég keppti líka í Morfís og fyrra árið komumst við í und­an­úr­slit þeirrar keppni, en lágum þar líka fyrir MR.

Síðan voru nokkrir sterkir kepp­endur sem voru þarna í skól­anum á sama tíma og þetta small ágæt­lega saman. Bæði árin sem ég var í skól­anum og lið­inu fórum við í und­an­úr­slit en máttum lúta í lægra haldi fyrir MR í bæði skiptin. Við velgdum þeim undir uggum í fyrra skiptið en stein­lágum í það síð­ara. Sú keppni var haldin á Egils­stöðum og það eitt og sér var stór­mál og mjög skemmti­legt. Þessi tími var magn­aður.

Ég keppti líka í Morfís og fyrra árið komumst við í und­an­úr­slit þeirrar keppni, en lágum þar líka fyrir MR. Þetta var ofboðs­lega mikið krydd í til­ver­una þessi ár. Ferða­lögin, félags­skap­ur­inn og upp­á­tækin í tengslum við þetta eru ógleym­an­leg og alls ekki öll prent­hæf, ekki ennþá í það minnsta. Það sem eftir þetta situr er því heil­mikið af jákvæðum minn­ingum, vinir fyrir lífs­tíð og svo er mér ennþá svo­lítið í nöp við MR!“

Ánægður með stjórnmálaferilinn

Nú hefur Stefán Bogi verið við­rið­inn bæj­arpóli­tík­ina fyrir austan í yfir ára­tug en hefur nú lagt bindið á hill­una ef svo má að orði kom­ast. Hvað kom til að þú fórst út í póli­tík til að byrja með? Já og hverju ertu helst stoltur af þegar þú lítur yfir öxl á stjórn­mála­fer­il­inn?

„Ég segi oft að ég hafi aldrei tekið ákvörðun um að fara í póli­tík, það hefur bara alltaf verið hluti af lífi mínu. Ég var alltaf í fram­boði til nem­enda­ráðs í grunn­skóla og í fram­halds­skóla sett­ist ég líka í stjórn nem­enda­fé­lags­ins. Mér er þetta mjög eðl­is­lægt, að taka þátt í félags­starfi og gefa kost á mér til að leiða það með einum eða öðrum hætti.

Ég var virkur í ung­liða­hreyf­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins meðan ég bjó fyrir sunnan og svo fljót­lega eftir að ég flutti austur var haldið próf­kjör og ég ákvað bara að taka stökkið og gefa kost á mér til að leiða list­ann. Mér fannst þetta bara allt býsna eðli­legt og sjálf­sagt. Það end­aði svo með því að ég varð for­seti bæj­ar­stjórnar Fljóts­dals­hér­aðs áður en ég varð þrí­tugur, en ég fann aldrei fyrir því að ég væri ungur í þessu þannig séð. Ég hafði fínan bak­grunn og held það hafi bara gengið ágæt­lega.

En það hefur allt sinn tíma. Ég er að verða búinn að sitja í sveit­ar­stjórn í 12 ár og finnst það bara ágætur tími. Ég finn að ég er að þreyt­ast á þessu, enda hafa verk­efnin farið vax­andi eftir að sveit­ar­fé­lagið stækk­aði. Það má kannski segja að ég sé ánægð­astur með það á mínum ferli í þessu hvað okkur hefur gengið vel að þróa og efla stjórn­sýslu sveit­ar­fé­lags­ins og sveit­ar­fé­lag­anna á svæð­inu með auknu sam­starfi.

Stjórn­mál verða ekki ævi­starf nema örfárra ein­stak­linga

Þetta hafa verið stór verk­efni og smá en það hefur alltaf verið þróun fram á við. Stofnun Aust­ur­brúar sem sam­eig­in­legrar stoðstofn­unar fyrir Aust­ur­land var risa­stór áfangi og svo sam­ein­ingin núna síð­ast þegar Múlaþing varð til. Ég er mjög ánægður með þetta og svo sem margt fleira líka. Það er hins vegar ekki gott að verða þreyttur og útbrunn­inn í svona verk­efni. Það þarf nýjar raddir og maður þarf líka að sinna öðru í sínu lífi. Ég hef áður sagt að ég ætli að hætta í póli­tík meðan dætur mínar nenna ennþá að tala við mig. Það er svona alveg á mörk­unum með þessa elstu! Vonandi næ ég því samt. Ég vil líka bara beina starfs­orkunni að öðru. Stjórn­mál verða ekki ævi­starf nema örfárra ein­stak­linga og ég er ekki einn þeirra, af ýmsum ástæðum. En það er aldrei að vita hvort þetta mun kitla mig ein­hvern tíma aftur. Það kemur bara í ljós, en verður ekki næstu árin.“

Stefán Bogi Sveins­son

Frægðin bankar á dyrnar

Oft voru liðin þannig saman sett að einn átti að vera skemmti­legur á meðan hinir svör­uðu spurn­ingum.

Þegar spurn­inga­þátt­ur­inn Útsvar leit dags­ins ljós seint á fyrsta ára­tug ald­ar­innar lág bein­ast við að fá að minnsta kosti einn úr gull­aldra­liði ME til að keppa fyrir hönd Fljóts­dals­hér­aðs. En hvernig var að stíga aftur á svið í spurn­inga­þætti? Og fylgdi þessu ekki nokkur frægð?

„Það var ofboðs­lega gaman að taka þátt í Útsvari. Þar tókst mjög vel til með að búa til liðið, Þor­steinn Bergsson og syst­urnar frá Skjöld­ólfs­stöðum, fyrst Urður og svo Ingunn Snædal voru frá­bærir liðs­fé­lagar og hörku kepp­endur. Ég held það hafi einmitt munað um það að allir þrír í þessu liði voru full­gilt spurn­inga­keppn­is­fólk.

Oft voru liðin þannig saman sett að einn átti að vera skemmti­legur á meðan hinir svör­uðu spurn­ingum. Þessu fylgdi líka smá „frægð“, fólk þekkti mann á götu, bæði í höf­uð­borg­inni og ekki síður á Akureyri. Það kom alveg fyrir að ókunn­ugt fólk vatt sér að manni og þakk­aði fyrir skemmt­un­ina. Það hefur dregið úr þessu auð­vitað en ég er samt enn að rekast á fólk sem man eftir mér af þessum vett­vangi og það er virki­lega skemmti­legt.“

Hási Kisi lætur á sér kræla

En þá að enn öðru sviði sem þú hefur stigið á, skáld­skap­inn. Nú ertu flinkur penni og hefur gefið út ljóða­bækur. Hefurðu verið að semja lengi? Og hver er þessi Hási Kisi sem maður hefur heyrt af?

„Ljóða­gerðin hefur fylgt mér lengi. Ég samdi mitt fyrsta ljóð innan við 10 ára gam­all og hef alltaf skrifað eitt­hvað. Ég kom fyrst út á bók í ljóða­safn­inu Raddir að austan sem kom út 1999 á vegum Félags ljóðaunn­enda á Aust­ur­landi. Síðan leið dálít­ill tími og þó ég skrif­aði alltaf eitt­hvað, sér­stak­lega til að reyna að ganga í augun á stelpum, færð­ist eig­in­lega ekki alvara í þessi skrif fyrr en eftir að ég flutti aftur austur.

Þarna varð til smá pressa að fram­leiða efni til að hafa eitt­hvað að lesa fyrir þau hin og ég held það megi segja að upp úr þessu höfum við öll skilað af okkur ljóða­bókum.

Þá bjuggu þarna líka vinir mínir Ásgrímur Ingi Arn­gríms­son, Hrafn­kell Lárusson og Ingunn Snædal, sem öll höfðu lagt stund á ljóða­gerð og Ingunn vel þekkt ljóð­skáld. Okkur fannst við samt öll svo­lítið dofin í skrif­unum og það varð úr að við stofn­uðum klúbb sem síðar fékk nafnið Hási Kisi. Við höfum grín­ast með að þetta hafi verið nokk­urs­konar sjálfs­hjálp­ar­hópur. Við hitt­umst reglu­lega, drukkum mikið kaffi með rjóma, átum stundum hákarl og lásum fyrir hvert annað það sem við vorum að skrifa og gáfum hvert öðru ráð og sögðum kost og löst á efn­inu. Þarna varð til smá pressa að fram­leiða efni til að hafa eitt­hvað að lesa fyrir þau hin og ég held það megi segja að upp úr þessu höfum við öll skilað af okkur ljóða­bókum.

Við strák­arnir gáfum okkar bækur út sjálfir, en þó undir merki Hása Kisa, svo það nafn verður alltaf tengt okkur hvað þetta varðar, og þó svo að hóp­ur­inn hafi ekki hist lengi þá er bandið ekk­ert hætt. Við stóðum líka fyrir nokkrum upp­lestr­ar­við­burðum, meðal ann­ars á Menn­ing­arnótt í Reykja­vík einu sinni. Það er aldrei að vita nema við gerum það ein­hvern tíma aftur.

En þetta varð sem sagt til þess að ég gaf út mína fyrstu ljóða­bók árið 2014, sem heitir Brennur. Það var mér mikið metn­að­ar­mál að gefa út bók og það var virki­lega gaman að koma henni loks­ins frá sér. Ég get ekki sagt að hún hafi farið mjög hátt, enda verður maður eig­in­lega að skrúfa niður allar vænt­ingar um slíkt ef maður ætlar að reyna að vera skáld. Það er svo ofboðs­lega sjald­gæft að skáld fái mikla við­ur­kenn­ingu og ég hef séð alltof mörg frá­bær skáld sem lítið er gert með. Það væri bara heimtu­frekja af versta tagi að ætl­ast til þess að eitt­hvað sé gert með það sem maður sjálfur er að bauka.

Eina leiðin til að end­ast í þessu er að skapa af eigin hvötum, senda sköp­un­ar­verkið út í umheim­inn og gleðj­ast yfir vel unnu verki. Það er svo bara bónus ef ein­hverjum líkar það og sér ástæðu til að gefa klapp á bakið fyrir það.

Ég er síðan núna að vinna að hand­riti að nýrri bók sem ég stefni á að komi út á árinu. Það verður ein­hvers­konar blanda af sögum og ljóðum reikna ég með

Ég gaf svo út síð­ari ljóða­bók­ina mína, Ópus, árið 2018. Það var svo­lítið öðru­vísi verk­efni. Með bók­inni fylgdi geisla­diskur með upp­tökum af mér að flytja ljóðin við und­ir­leik. Ég var svo ofboðs­lega hepp­inn að vinir mínir, þeir Jónas Sig­urðs­son og Ómar Guð­jóns­son, voru til­búnir að vinna það verk­efni með mér og ég trúi því varla ennþá að þetta hafi orðið að veru­leika. Ég er ofboðs­lega stoltur af því verki og enda­laust þakk­látur öllum sem hjálp­uðu mér að búa það til. Ég er síðan núna að vinna að hand­riti að nýrri bók sem ég stefni á að komi út á árinu. Það verður ein­hvers­konar blanda af sögum og ljóðum reikna ég með.“

Kjölfestan í lífinu

Stefán Bogi hefur eins og segir hér áður, hætt í póli­tík­inni en hvað er hann að fást við núna og hvað ber fram­tíðin í skauti sér? Ertu á góðum stað?

„Ég er nýlega tek­inn við nýju starfi sem for­stöðu­maður Hér­aðs­skjala­safns Aust­firð­inga. Mér líkar það óskap­lega vel og ég held að í því geti ég sam­einað reynslu og þekk­ingu sem ann­ars virkar pínu brota­kennd. Safnið er byggða­sam­lag svo reynslan úr sveit­ar­stjórn­ar­mál­unum kemur sér vel.

Ég hef stundum glímt við and­legan heilsu­brest í gegnum tíð­ina og það mun ég ábyggi­lega gera alla ævi.

Þá hefur safnið mik­il­vægu hlut­verki að gegna við opin­bera skjala­vörslu stofn­ana á Aust­ur­landi og þar er ekki verra að hafa lög­fræð­ina á bak við sig þegar reynir á túlkun laga og reglna á þessu sviði. Síðan er starfið hálft í hvoru fræði­legs eðlis líka svo áhugi minn á sögu og menn­ingu kemur í góðar þarfir. Þannig að ég er mjög bjart­sýnn á að þarna hafi ég fundið mér fram­tíð­ar­starfs­vett­vang.

Síðan mun ég ábyggi­lega halda áfram að skrifa og skapa eins og ég get á meðan ég get. Ég finn það mjög sterkt að eftir fer­tugt er ég far­inn að öðl­ast ein­hverja ró sem var ekki til staðar áður. Finn ekki lengur sömu þörf­ina fyrir að met­ast við aðra, keppa að ein­hverju marki. Ham­ingjan fæst ekki þannig held ég, heldur fyrst og fremst í því að hvíla í sjálfum sér, en ekki gleyma því að leika sér öðru hvoru og njóta sín.

Ég hef stundum glímt við and­legan heilsu­brest í gegnum tíð­ina og það mun ég ábyggi­lega gera alla ævi. En ég held ég sé kom­inn á þann stað í líf­inu að ég ótt­ast ekki lengur að ég muni brotna undan því. Kjöl­festan í lífi mínu er fjöl­skyldan, heim­ilið okkar og sam­fé­lagið. Með þessa kjöl­festu eru mér síðan allir vegir færir í leik og starfi.“

Hér fyrir neðan má sjá Stefán Boga flytja ljóð úr Opus

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ