Lögreglan stöðvaði bifreið skömmu eftir miðnætti en ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Kom í ljós að maðurinn hafði ítrekað verið stöðvaður án ökuréttinda og reyndist hann smitaður af Covid í þokkabót. Lögregla ók honum að dvalarstað þar sem hann átti að vera í einangrun.
Í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um slys í Hafnarfirði. Ungur drengur hafði dottið af hjólabretti á æfingasvæði og meiðst á hendi. Var hann fluttur með sjúkrabíl á Bráðadeild og móðir hans látin vita.
Klukkan hálf ellefu hafði lögregla afskipti af manni í verslun. Var hann grunaður um að hafa stolið búnti af pokum en hver poki kostaði 680 krónur.
Nokkrir voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuvefna.































Athugasemdir