Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drög lögð að tveimur seríum til viðbótar af Verbúð: „Það er enginn góður eða vondur í þessari sögu“

Drög lögð að tveimur seríum til viðbótar af Verbúð: „Það er enginn góður eða vondur í þessari sögu“

„Við erum með hug­myndir að tveimur ser­íum í við­bót,“ segir Björn Hlynur Har­alds­son, leik­ari og einn af hand­rits­höf­undum Ver­búð­ar­innar sem sýnd er á RÚV þessar vik­urnar. Þætt­irnir hafa slegið ræki­lega í gegn og fékk Reynir Trausta­son, rit­stjóri Björn Hlyn til að fara yfir það hvernig hug­myndin af þátt­unum hafi byrjað og hvort þau hafi íhugað fram­halds­þætti.

Björn segir að ekk­ert sé borð­leggj­andi. „Þetta er alltaf sama pen­inga­málið. Það þarf nokkur hund­ruð millj­ónir í svona eins og er með ,næstum því hverja ein­ustu kvik­mynda- og sjón­varps­fram­leiðslu á Íslandi, en þá leggi þeir sem að þeim standa allt í söl­urnar: Tíma, pen­ing og feril. „Það er alltaf þannig.“

Hvað með áhuga erlendis? „Það er byrjað nú þegar. Það er búinn að vera áhugi á Ver­búð­inni síðan þátt­ur­inn var á hand­rits­stigi.“

Hug­myndin að Ver­búð­inni er bún að vera lengi í vinnslu.

„Við vorum með hug­mynd að smá­bæj­ar­sögu en það verður að vera grunnur að öllum sögum. Einhver rót. Við ætl­uðum að gera per­sónugall­erí sem gerð­ist jafn­vel í smábæ á Íslandi, en svo nefndi við okkur norskur hand­rits­höf­undur, kunn­ingi Gísla (Gísla Arnar Garð­ars­sonar), að það væri snið­ugt að tengja þetta við kvóta­málið. Við fórum að skoða hvort það gæti verið partur af því og svo með tím­anum tók það yfir. Við erum alltaf með fullt af hug­myndum, alls konar sögur, en stundum fer það ekki af stað af því að það vantar oft lyk­il­inn að ein­hverju; það gætu verið áhuga­verðar per­sónur og ein­hver fram­vinda en það vantar oft lyk­il­inn að ein­hverju.“

Þau sem standa að Ver­búð­inni fóru síðan að skoða þessa sögu. Þennan tíma. „Við átt­uðum okkur á að við vissum ekki baun í bala hvernig þetta gerð­ist.“

Þau töl­uðu þess vegna við ýmsa aðila. „Við þurftum nátt­úr­lega að rann­saka þetta vel. Við vissum ekk­ert um þetta og þess vegna fórum við af stað. Við vissum hvað hafði gerst en við vissum ekki hvernig það gerð­ist og af hverju það gerð­ist. Allavega ekki hvernig það gerð­ist.“

Við erum að segja sögu en þetta er byggt á hlutum sem gerð­ust

Björn Hlynur segir að Verbúðin sé skáld­skapur byggður á raun­veru­legum atburðum. „Við verðum að leyfa okkur að fara svo­lítið frjáls­lega með stað­reyndir. Við erum að segja sögu en þetta er byggt á hlutum sem gerð­ust.

Gísli Örn Garð­ars­son og Björn Hlynur Har­alds­son á töku­stað á Suð­ur­eyri.

Við skoð­uðum líka hvernig fólk hefur verið að gera þetta í gegnum tíð­ina við að segja sögur. Oliver Stone kvik­mynda­gerð­ar­maður fór mjög frjáls­lega með þegar hann gerði John G. Kennedy-mynd­ina eða Nixon; þú ert alltaf með þitt per­spek­tív á hlut­ina. Hann er með mjög skýran fókus og mynd­irnar hans eru eins og honum finnst sagan vera hvernig Kennedy var drep­inn og hvernig Watergate var í kringum Nixon. Við erum reyndar ekki alveg að fara þangað; við erum eig­in­lega að segja „þetta finnst okkur“ á mjög hlut­lausan hátt.

Við erum að leggja upp að það er komið vanda­mál, ofveiði og það þurfi eitt­hvað að gera. Það er sett upp eitt­hvað kerfi sem er svo end­ur­skoðað á hverju ári. Svo er fínt að geta horft til baka, en það eru ca. 40 ár síðan menn byrj­uðu að tala um þessa hluti. Eins og það er talað í þátt­unum um þessa frægu svörtu skýrslu sem kom út. Ég veit ekki hvort það hefði verið hægt að gera þessa seríu 1986 eða 1991. En það er fínt að geta horft til baka og séð hvernig þetta er núna, hvernig þetta gerð­ist og hvernig þetta hefur stig­magn­ast í gegnum árin þannig að ég held að það sé full­kom­inn tími núna til að segja þessa sögu.

Þetta er eins og að fara í nám í máli eins og kvóta­mál­inu

Það sem er ánægju­legt við það að búa til sögur er að fara í svona rann­sókn­ar­vinnu og skoða hvað raun­veru­lega gerð­ist. Þetta er eins og að fara í nám í máli eins og kvóta­mál­inu. Við vildum búa til sjón­varps­s­eríu þar sem fólk myndi fá þau áhrif sem við vorum að fá þegar við vorum að skoða hvað raun­veru­lega gerð­ist. Og von­andi verður það þegar við verðum búin að sýna alla ser­í­una að fólk hugsi „já, svona var þetta“.“

Dramatík á skemmtilegan hátt

Björn Hlynur segir að þau hafi vitað að ef það átti að fjalla um kvóta­kerfið eða kjara­bar­áttu fisk­verka­fólks á Vest­fjörðum árið 1984 þá yrði að hafa þetta 50/50.

„Það verður að vera ein­hver þungi og vikt í því, drama­tík, en það verður að vera sagt á skemmti­legan hátt. Þannig er okkar smekkur kannski líka,“ segir hann; það verði ein­hver skemmti­leg­heit að vega upp á móti drama­tík og póli­tík. „Þess vegna heitir þetta Verbúðin. Þetta er ekki um Ver­búð­ina; við höfum talað um að ver­búðin sé grunn­ur­inn að kraft­inum í sög­unni. Þar er ein­hver orka sem er skemmti­legt og þegar farið er inn í ver­búð­ina þá er alltaf eitt­hvað kraum­andi og skemmti­legt í gangi. Fólk talar í mik­illi róm­an­tík um ver­búð­irnar.

Ég var of ungur til að upp­lifa það sjálfur á þessum tíma en þetta hafa verið svaka­legir staðir. Þetta hefur verið erfitt líf og hel­vítis keyrsla en það er samt alltaf talað um þetta ver­búð­ar­líf í for­tíð­ar­dýrð­ar­ljóma. En það er helst þessi orka, grunnorka Íslend­inga, sem er þessi fífla­lega of mikla keyrsla sem oft keyrir okkur um koll oft­ast á end­anum. Þar er þessi grunn íslenska orka þar sem sagan er sögð. Svo eru sögur úr þessum ver­búðum; við segjum mest þessar jákvæðu og skemmti­legu sögur. Það var mikið fyll­erí og mikið djamm og djús og fólk vann mikið og fékk kannski góðan pen­ing. En þaðan er orku­stöðin okkar; ver­búðin.“

Það er eng­inn góður eða vondur í þess­ari sögu

Þetta er bara venju­legt íslenskt alþýðu­fólk sem er að reyna að gera gott fyrir sig eða sam­fé­lag sitt. Þetta gera þær til þess að lifa af? Það er eng­inn góður eða vondur í þess­ari sögu. Þetta er bara venju­legt íslenskt alþýðu­fólk sem er að reyna að gera gott fyrir sam­fé­lagið sitt og sig sjálft. Svo mætir það alltaf ein­hverjum hindr­unum; og hvenær förum við að beygja aðeins regl­urnar og taka ekki mark á regl­unum af því að þær eru alltaf að breyt­ast? Þetta eru þessar sögur sem við heyrðum þannig að við settum þetta þarna inn. Við búum til heim og heim­ur­inn er þetta tíma­bil en heim­ur­inn er eins og minn­ing okkar um tíma­bilið.“

Björn Hlynur segir að það sé verið að tvinna saman póli­tíska sögu og fjöl­skyldu­sögu. Sögu af venju­legu fólki. Íslensku alþýðu­fólki, eins og þegar hefur komið fram, sem er að búa sér til ein­hverja fram­tíð.

„Það verður að vera ein­hver teng­ing alltaf til dæmis við aðal­per­són­una, Hörpu, sem Nína Dögg leikur. Við þurfum alltaf að sjá hvar hún er stödd. Við heyrðum fullt af sögum og hvaða áhrif höfðu þessar sögur á okkar aðal­per­sónu? Það verður alltaf að vera út frá henni af því að við erum alltaf að upp­lifa allt með henni. Það verður alltaf að vera saga aðal­per­són­unnar sem skiptir öllu máli. Þessar sögur sem við erum með inni í okkar seríu eru skemmti­legt krydd og við nýtum okkur ýmsa atburði; jú, það var visst brenni­víns­mál í gangi og við skautum aðeins inn í það bara til að tengja það við eina af aðal­per­són­unum.

Það var verið að setja aðra fiski­teg­und ofan á það sem raun­veru­lega var verið að veiða; það er ekk­ert aðal­at­riði í ser­í­unni en það er bara til að varpa ljósi á hvað aðal­per­sónan okkar er að gera núna. Hún sendir strák­ana út til Bret­lands í miðju verk­falli. Ég man ekki hvort það hafi gerst raun­veru­lega, en við alla­vega búum þetta til af því að við erum alltaf að vinna með alper­són­una okkar; hvað hún er að gera, hvað hún þarf að gera til að lifa af. Svo hittir maður fólk úti á götu sem segir að menn hafi aldrei fengið pen­inga í töskur; seg­ist hafa verið í þessum bransa og það hafi aldrei verið þannig eða þá að sjó­menn hafi ekki fengið afmetamín frá útgerð­inni til þess að halda áfram að vinna. En við heyrðum samt sögur af því; við nýtum það bara sem skáld­skap í okkar skáld­uðu per­sónur.“

Ótrúlega ánægjulegt

Björn Hlynur segir að Verbúðin sé það verk sem hann hefur komið að sem hafi fengið mestu við­brögðin.

Á töku­stað Ver­búð­ar­innar á Suð­ur­eyri.

„Stundum gefur maður allt í eitt­hvað og svo fuðrar það upp og maður hugsar hvers vegna í ósköp­unum það náði ekki í gegn.“ En svo er það Verbúðin. „RÚV á sunnu­dags­kvöldi í Covid klukkan níu þar sem allir eru svo­lítið lok­aðir inni; það eru margir að horfa á sjón­varpið þá. Svo ein­hvern veg­inn hitti þetta strax með fyrsta þætti.“ Og margir mynd­uðu sér skoðun á þætt­inum. „Það eru allir að tala um þetta. Það er ótrú­lega ánægju­legt.“

Það er mik­il­vægt að segja sögur af okkur sjálfum; stórar, íslenskar sögur úr okkar sam­tíma

Björn Hlynur talar um í hvað eigi að setja pen­ing­ana.

„Ég er ekki að segja að við eigum að setja pen­inga í kvik­mynda­gerð frekar en til dæmis heil­brigð­is­kerfið, leik­skól­ana eða skól­ana; ég er ekki að meina það. En hve nauð­syn­legt er þetta fyrir okkur? Ég held að það sanni sig svo­lítið eins og núna; þetta er ansi mik­il­vægt. Það er mik­il­vægt að segja sögur af okkur sjálfum; stórar, íslenskar sögur úr okkar sam­tíma. Það er ekki upp á líf og dauða að búa til kvik­myndir og sjón­varp, en áhrifin eru ansi mikil inn í sam­fé­lagið núna og það er ótrú­lega gaman að fylgj­ast með því.“

Viðtalið við Björn Hlyn er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina