Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gámur fullur af útrunninni kjötvöru Norðlenska: „Þessi staða er alls ekki ásættanleg“

Gámur fullur af útrunninni kjötvöru Norðlenska: „Þessi staða er alls ekki ásættanleg“

Um helg­ina birti Hrönn Hjálm­ars­dóttir myndir úr gámi frá Stór­höfða 23, sem er stað­settur nálægt húsa­kynnum Norð­lenska. Gámurinn var fullur af útrunn­inni kjöt­vöru. Hrönn tók eina mynd­ina um helg­ina, en hina fyrir um þremur vikum síðan.

„Hundruð kílóa af full­kom­lega boð­legum mat/kjöt­vöru sem fer bara í urðun,“ sagði Hrönn í færslu sinni. Síðan þá hafa sam­tökin Vakandi, sem stefna að vit­und­ar­vakn­ingu um sóun mat­væla, deilt færsl­unni.

Í gámnum mátti finna mikið magn mat­vöru sem fram­leitt er af Norð­lenska.

Mannlíf hafði sam­band við Andrés Vil­hjálms­son, mark­aðs­stjóra Kjarna­fæðis og Norð­lenska sem tók undir það að um mikla mat­ar­sóun væri að ræða.

Úr gámnum.

„Þetta er alls ekki gott. En þetta er í raun og veru það umhverfi sem við búum við í dag; það kostar okkur alveg gríð­ar­lega mikið fjár­magn, þessi skila­vara. Það er skila­réttur hjá versl­unum og ekki er það að hjálpa okkur að fer­metra­fjöldi versl­ana eykst og þá verður þetta alltaf dýr­ara og dýr­ara fyrir okkur.

Skil úr þessum versl­unum kosta okkur um það bil 200 millj­ónir á ári. Af þessu er nátt­úru­lega vara sem við getum ekki end­ur­nýtt, hvort sem það er unnin vara og svo fram­vegis, álegg og annað. Ef við getum skorið það niður eða minnkað þá má nátt­úru­lega að sjálf­sögðu setja pen­ing í það – en við getum illa tekið þetta allt saman á kass­ann.

Fjár­hags­staðan hjá okkur leyfir það ekki, þannig að við þurfum eig­in­lega bara að ná versl­un­inni með okkur í lið, þar sem ábyrgðin er nátt­úru­lega þeirra líka. Það er ekki nóg að allar hillur séu fullar og svo öllu hent til baka sem ekki selst.

Þetta er bara alls ekki ásætt­an­leg staða sem við búum við í dag,“ segir Andrés.

Hann segir að fyr­ir­tækið hafi nú þegar brugð­ist við og varan muni fara norður, til höf­uð­stöðv­anna. Það verði farið í gegnum skila­vör­urnar og þær flokk­aðar „og það nýtt sem hægt er að nýta. Þetta er ill­við­ráð­an­leg staða sem við búum við í þessu sölu­um­hverfi.“

Er þá ekki offram­leiðsla á vör­unni?

„Nei, ekki offram­leiðsla. Við þurfum að fram­leiða það sem búðin vill. Erlendis er það nú oft á tíðum þannig að ef ein­hver vara klár­ast, þá bara klár­ast hún, en hér á Íslandi hefur það ein­hvern veg­inn tíðkast að allt þarf að vera til. Það er rosa­lega erfitt fyrir svona míkró-markað eins og Ísland er. Þannig að þetta er bara það sem við búum við, við höfum ekk­ert við því að segja. Ef varan er ekki til í ein­hvern tíma þá getur það gert okkur erfitt fyrir.“

Aðspurður seg­ist Andrés halda að hægt væri að gera breyt­ingar á mark­aðnum þannig að við gætum sætt okkur við það að hlutir klár­uð­ust og sumt væri ef til vill stundum ekki til í versl­unum.

„Já, það nátt­úru­lega á kannski líka við um svo margt annað í neyslu og neyslu­hugsun fólks. Það eru ekki bara mat­væli, heldur bara svo margt annað. Ef fólk fer að breyta hugs­un­ar­hætti þá fer eitt­hvað að ger­ast í svona málum, til dæmis. En eins og ég segi; þessi staða er alls ekki ásætt­an­leg.

Þetta á við um öll þessi fram­leiðslu­fyr­ir­tæki. Við erum strax búin að taka þetta mál inn á borð til okkar og byrjuð að reyna að leysa vand­ann.“

Þannig að þið eruð að vinna í þessu og sjá hvað er hægt að gera?

„Já. Bara strax. Og þetta er eitt­hvað sem var í umræð­unni, að við þyrftum að fara að breyta og var að fara að breyt­ast núna á næstu dögum varð­andi þennan til­tekna gám. En, eins og ég segi, þetta er bara staðan sem við búum við.“

Veist þú hvort versl­an­irnar eru að vinna að því að breyta ein­hverju sín megin?

„Nei, en það hefur komið til tals inni á milli, hvernig við getum í sam­vinnu við smá­sala reynt að minnka mat­ar­sóun og skil. Þá þurfa bara báðir aðilar að vinna saman í því en við getum ekki tekið þetta allt saman á kass­ann. Fjár­hags­staðan hjá okkur myndi bara aldrei leyfa það.

Ein lausn er fólgin í því sem hefur verið að kom­ast meira í verk, að hafa sér strika­númer þegar vara er kannski að fara að renna út – að hún fari þá á útsölu.“

Það skal tekið fram að sumar versl­anir standa öðrum framar hvað varðar það sem Andrés nefnir; að bjóða afslátt af vörum sem komnar eru nálægt síð­asta sölu­degi. Þar má til dæmis nefna versl­anir Krón­unnar, sem bjóða ótal vörur á „síð­asta séns“, á mikið lækk­uðu verði.

Andrés Vil­hjálms­son, mark­aðs­stjóri Kjarna­fæðis og Norð­lenska.

Andrés segir að þær hug­myndir sem hafi áður verið ræddar miði að því að ábyrgðin verði á herðum beggja aðila; fam­leiðslu­fyr­ir­tækja og versl­ana.

„Þetta er spurn­ing um það að smá­sal­inn og fram­leiðslu­fyr­ir­tækin vinni saman að því að minnka þá kannski inn­setn­ingar og taka þátt í skil­unum. Að báðir aðilar taki þátt í þeim. Þetta er eitt­hvað sem er með­vitað hjá báðum aðilum og hefur verið um langa hríð, sér­stak­lega hjá okkur nátt­úru­lega. Við höfum ekki verið ánægð með þennan skila­rétt og slíkt. Það bara er ekk­ert voða­lega skemmti­legt, með þessa fram­tíð­ar­sýn sem við höfum.“

Hverjar eru regl­urnar um skila­vöru?

„Sölumenn hjá okkur taka skila­vöru til baka sem er útrunnin eða gölluð og við sendum hana strax norður. Í þessu til­tekna dæmi hefur þetta verið kannski vara sem ekki hefur verið hægt að end­ur­nýta. Þannig að í stað­inn fyrir að frakta hana norður með til­heyr­andi kostn­aði þá var þessi ákvörðun tekin á sínum tíma. En við reynum alltaf að fá alla okkar vöru um leið norður. Því miður hefur það nátt­úru­lega verið að ger­ast inn á milli að varan sé að skila sér alltof seint, frá sumum aðilum. Þá er voða­lega lítið sem við getum gert.

Hvernig hafið þið verið að end­ur­nýta vörur sem rata norður?

„Það sem við getum end­ur­nýtt er til dæmis úrbeinað; ef þú ert með grill­kjöt og annað, það getum við end­ur­nýtt og sett í frost. Það fer til mötu­neyta. En þessi unna vara, eins og til dæmis kjöt­fars og álegg, og líka bara hakk og annað, það er því miður ekki hægt að gera mikið við það.“

Andrés seg­ist endi­lega vilja heyra af því ef fólk hafi ein­hverjar lausnir á því hvernig hægt væri að bæta þennan vanda, til dæmis hvað varðar vinnslu­vöru sem fallin er á tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ