Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mótmæli á Austurvelli vegna aðfarar að blaðamönnum

Mótmæli á Austurvelli vegna aðfarar að blaðamönnum
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum. – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Róbert Reynisson

„Fjöl­mennum á Aust­ur­völl og sýnum sam­stöðu með frjálsum fjöl­miðlum. Að lög­reglan á Norð­ur­landi Eystra skuli kalla til yfir­heyrslu fjöl­miðla­fólk fyrir gagn­rýna umfjöllun með erindi til almenn­ings er óásætt­an­leg skerð­ing á tján­ing­ar­frelsi,“ sagði í fund­ar­boð­inu.

Ung­liða­hreyf­ingar Pírata, Sam­fylk­ingar, Sós­í­alista, Við­reisnar og Vinstri grænna boð­uðu til mót­mæla á Aust­ur­velli í dag.

Marg­menni var við mót­mælin á Aust­ur­velli klukkan 14 í dag sem og á Ráð­hús­torg­inu á Akureyri, þrátt fyrir mik­inn kulda. Fjöl­margir tóku til máls, þar á meðal Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur og einnig mátti sjá Kristinn Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks.

Kristinn tók til máls á mót­mæla­fund­inum. Þar fór hann um víðan völl og gagn­rýndi harð­lega ýmsa sem hafa komið að mál­inu, þá sér­stak­lega Sjálf­stæð­is­menn. Líkti hann meðal ann­ars Brynjari Níels­syni, aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra, við tjóðr­aðan hund sem urraði og gelti að öllum.

„Og ég ætla nú ekki einu sinni að nefna með nafni aðstoð­ar­mann hans [dóms­mála­ráð­herra] sem þótti ekki einu sinni nógu góður af flokknum til að starfa á þingi og hefur nú verið tjóðr­aður við staur í tún­fæti dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hvar hann urrar og geltir að gestum og gang­andi eins og vit­firr­ingur,“ sagði Kristinn.

Eins og fram hefur komið hefur Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi eystra, boðað fjóra blaða­menn til yfir­heyrslu. Þeir hafa stöðu sak­born­ings í því máli sem til rann­sóknar er.

Óljóst hvað er verið að rannsaka

Málið, sem er að ýmsu leyti óskýrt, virð­ist tengj­ast meintu hvarfi á far­síma Páls Stein­gríms­sonar skips­stjóra hjá Samherja hvar ætlað er að hafi verið að finna gögn sem sýna að hin svo­kall­aða Skæru­liða­deild Samherja hafi haft uppi meðal ann­ars áform um að grafa undan trú­verð­ug­leika blaða­manna sem fjöll­uðu um Sam­herj­a­skjölin, umsvif sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu.

Þetta leiddi svo til frétta­flutn­ings af aðgerð­ar­á­ætl­unum téðrar skæru­liða­deildar í fréttum sem fyrst birt­ust á Kjarn­anum og í Stund­inni en voru svo teknar upp á flestum miðlum öðrum.

Kæra Aðalsteins þingfest í héraðsdómi í morgun

„Minn umbjóð­andi hefur hug á að fá nið­ur­stöðu í þetta mál áður en tekin verður af honum skýrsla og það er von­andi þannig að það verði búið að úrskurða um þetta áður en að skýrslu­tök­unni kemur,“ segir Gunnar Ingi Jóhanns­son lög­maður Aðal­steins í hádeg­is­fréttum útvarps.Krafa Aðal­steins Kjart­ans­sonar blaða­manns um úrskurð um lög­mæti skýrslu­töku lög­reglu í tengslum við svo­nefnt skæru­liða­mál Samherja var þing­fest í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands eystra í morgun. Lögregla fær frest til að skila grein­ar­gerð um málið.

Aðal­steinn er einn fjög­urra blaða­manna sem fengið hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings í máli lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra vegna meintra brota gegn frið­helgi einka­lífs í tengslum við umfjöllun fjöl­miðla um svo­nefnda „skæru­liða­deild“ útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja.

Aðal­steinn sem er blaða­maður á Stund­inni,  Þóra Arn­órs­dóttur, rit­stjóri Kveiks, Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður á Kjarn­anum, hafa öll rétt­ar­stöðu sak­born­ings og hafa verið boðuð í skýrslu­töku á morgun, mánu­dag. Því er ekki langur tími til stefnu til að fá úrskurð um lög­mæti skýrslu­tök­unnar.

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóra Wikileaks frá hægri.
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur
Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Mótmæli á Aust­ur­velli vegna aðfarar að blaða­mönnum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ