Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kynferðislegur kraftur, jafnvel ofsi, sem enginn hefur í raun komist í hálfkvisti við

Kynferðislegur kraftur, jafnvel ofsi, sem enginn hefur í raun komist í hálfkvisti við

Davíð Stef­áns­son frá Fagraskógi í Eyja­firði er eitt af þjóð­skáldum Íslend­inga. Þótt hann hafi ekki verið tón­list­ar­maður kemur hann á ýmsan hátt við íslenska tón­list­ar­sögu. Hann samdi fjöld­ann allan af ljóðum sem lög hafa verið samin við, upp­lestur hans á eigin verkum komu út á hljóm­plötum á síð­ustu öld, auk þess sem leik­rit hans, Gullna hliðið var gefið út á plötum.

Davíð fædd­ist 21. jan­úar árið 1895 og lést á þessum degi 1. mars 1964.

Kynferðislegar fantasíur að skemmta sér við

Haustið 1919 komu Svartar fjaðrir út og hlaut bókin lof­sam­lega dóma og Davíð miklar vin­sældir. Mikið var skrifað um bók­ina í kjöl­farið, en skrifin sýna glögg­lega hvað orð­ræðan hefur breyst með tím­anum. Í grein eftir Guðmund Andra Thorsson, rit­höf­und, sem birt­ist í Lesbók Morg­un­blaðs­ins 17. apríl 2004 segir eft­ir­far­andi um Svartar fjaðrir:

„Svartar fjaðrir eftir Davíð sló í gegn þegar hún kom út árið 1919. Hún þótti ekki síst höfða til ungra og eigna­lít­illa kvenna og var kölluð vinnu­konu­bók í niðr­un­ar­skyni, enda þótti mennta­mönnum þá engir les­endur frá­leit­ari en vinnu­konur. Sagt hefur verið að Davíð hafi gefið þessum ungu konum ljóð sem túlk­uðu drauma þeirra og þrár, kannski það, ég er samt ekki alveg viss: hann höfð­aði til þeirra kyn­ferð­is­lega, skap­aði handa þeim kyn­ferð­is­legar fantasíur að skemmta sér við.

Í ljóðum hans í þess­ari bók er kyn­ferð­is­legur kraftur, jafn­vel ofsi, sem eng­inn hefur í raun kom­ist í hálf­kvisti við. Davíð er með öðrum orðum umfram allt sexí skáld og eftir öðru að Íslend­ingar vissu ekki almenni­lega hvað þeir áttu að gera við slíkan mann eftir að hann náði hylli þjóð­ar­innar: reynt var að finna honum verk­efni í þjóð­hags­legum tæki­fær­iskveð­skap uns svo var farin að dofna títan á skáld­gáf­unni að hann fórn­aði höndum og æpti upp: Brenni þið vitar!“

Má í þessu sam­bandi láta fylgja ljóðið Biðl­arnir úr Svörtum fjöðrum:

Biðlarn­ir

Ung­frú­in greiddi sér ekki þann dag
og aldrei í speg­il­inn leit,
sem fyrsti bið­ill­inn barði að dyr­um
og bað hana um ástar­heit.
Einn …
Ögn betra en ekki neinn.

Ung­frú­in greiddi hár sitt til hálfs
og horn­augu spegl­in­um gaf,
brosti og söng í hálf­um hljóðum
og hitn­aði löng­un af.
Einn … tveir …
Og mikið vill meir.

Ung­frú­in greiðir sér oft á dag
og ilm­vatn í hár sér ber,
horf­ir í speg­il­inn hlæj­andi,
hopp­ar og tel­ur á fingr­um sér: –
Einn … tveir … þrír …
og bráðum bæt­ist við nýr.

Gullna hliðið

Davíð Stef­áns­son og móðir hans, Ragn­heiður Dav­íðs­dóttir.

Davíð lauk gagn­fræði­prófi frá Akureyri og bjó þar til um tví­tugt er hann fór til árs­dvalar til Kaup­manna­hafnar áður en hann sett­ist á skóla­bók við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og lauk þaðan stúd­ents­prófi 1919, sama ár og fyrst og fræg­asta ljóða­bók hans, Svartar fjaðrir, kom út. Davíð bjó mestan part ævi sinnar á Akureyri, starf­aði við Amt­bóka­safnið þar í bæ en dvald­ist einnig nokkrum sinnum á erlendum grundum.

Um tugur ljóða­bóka liggur eftir skáldið, auk leik­rita og skáld­sögu en mörg ljóða hans er vel þekkt, þeirra á meðan eru Konan sem kyndir ofn­inn minn, Sálin hans Jóns míns, Kvæðið um fugl­ana (Snert hörpu mína), Bréfið hennar Stínu, Abba-labba-lá og Til eru fræ.

Fjöl­margar plötur hafa komið út sem hafa að geyma ljóð Davíðs. Fjórar plötur komu út á vegum Fálkans 1958 með upp­lestri hans á eigin verkum, tvær þeirra voru litlar 45 snún­inga plötur (7“), ein 78 snún­inga (10“) og ein breið­skífa. Fálkinn gaf einnig út „split-plötu“ með upp­lestri Davíð og Halldórs Laxness árið 1964 undir yfir­skrift­inni Tveir þjóð­skör­ungar íslenzkra bók­mennta, og tveim árum síðar var Gullna hliðið gefið út í veg­legum plötu­kassa, á þremur plötum.

Fleiri lista­menn hafa notað ljóð Davíðs og gert við þau stök lög sem er að finna á mörgum plötum, en margir hafa einnig leitað fanga á annan hátt í smiðju Davíðs, til dæmis eru nöfn hljóm­sveit­anna Sál­ar­innar hans Jóns míns og Möðru­valla­munkanna beinar skír­skot­anir í verk hans. Það sama má segja um titil á plötu Sál­ar­innar, Gullna hliðið. Það má því með sanni segja að áhrifa hans gæti víða.

Kvæðið um Fuglana er fal­leg­asta ljóð skálds­ins að mati blaða­manns:

Snert hörpu mína, him­in­borna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjal­ar­stúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.

Úr furu­tré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó.
Í hug­anum til him­ins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.

Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sam­einar með töfrum loft og jörð.

Ég heyri’ í fjarska villtan vængja­þyt.
Um varpann leikur draums­ins perluglit.
Snert hörpu mína him­in­borna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.

Ljóða­bækur:

  • Svartar fjaðrir, 1919
  • Kvæði, 1922
  • Kveðjur, 1924
  • Ný kvæði, 1929
  • Í byggðum, 1933
  • Að norðan, 1936
  • Ný kvæða­bók, 1947
  • Ljóð frá liðnu sumri, 1956
  • Í dögun, 1960
  • Síðustu ljóð, 1966 (kom út að Davíð látnum)

Leikrit og skáld­sögur:

  • Munk­arnir á Möðru­völlum, 1926
  • Gullna hliðið, 1941. Leik­ritið er unnið upp úr þjóð­sög­unni „Sálin hans Jóns míns“. Kvæði hans, Sálin hans Jóns míns, sem kom út 1933 var þegar alþekkt.
  • Sólon Íslandus I-II, 1941 (Skáld­saga um Sölva Helgason).
  • Vopn guð­anna, 1944
  • Landið gleymda, (frum­sýnt árið 1953 en gefið út 1956).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ