Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eiginmaður Ágústu á ekki langt eftir: „Þetta snýst allt um að Óskari líði vel“

Eiginmaður Ágústu á ekki langt eftir: „Þetta snýst allt um að Óskari líði vel“
Ágústa Sverr­is­dóttir

„Ég elska mann­inn minn miklu meira en ég get lýst með orðum; og ég get ekki sýnt honum það eftir 20 ár. Þetta er allt svo steikt eitt­hvað,“ segir Ágústa Sverr­is­dóttir. Eig­in­maður hennar, Óskar Gústaf Ingj­aldur Ólafsson, sem er 39 ára, greind­ist með ristil­krabba­mein fyrir rúmu ári. Blaða­maður Mannlífs tók við­tal við Ágústu í des­em­ber, sem lesa má hér. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag á Óskar jafn­vel nokkrar vikur ólif­aðar. Kannski nokkra mán­uði. Kannski nokkra daga.

Hjónin fóru ásamt fjög­urra ára gömlum syni sínum til Vest­fjarða um jólin þar sem for­eldrar Óskars búa. „Það var góð leið til að hlaða batt­er­íin. Við vorum í raun­inni svo­lítið end­ur­nærð. Óskar fór í lyfja­gjöf 21. des­em­ber og við flugum vestur dag­inn eftir og svo fór hann í næstu lyfja­gjöf 4. jan­úar. Þann 6. jan­úar var eins og hann væri kom­inn með gúmmí­fætur; hann var rosa­lega dof­inn í fót­unum. Hann gekk um eins og hann hefði verið skot­inn með deyfi­byssu eins og maður sér í bíó­mynd­unum. Mér leist ekk­ert á blik­una og hafði sam­band við lækni sem vildi að hann færi í mynda­töku. Óskar var ekki með neinn mátt í fót­unum dag­inn eftir og gat ekki gengið. Hann gat ekki sest upp og þurfti að halda honum uppi. Þetta var mjög „scary“. Það kom í ljós að krabba­meinið hafði dref­ist í fimmta hryggjar­lið og fór hann í aðgerð þar sem meinið var skrapað í burtu innan á hryggjar­liðnum en það þrýsti á mæn­una.“ Ágústa segir að Óskar hafi legið um tíma á heila-, tauga- og bækl­un­ar­skurð­deild, en síðan fór hann á Grensás. „Hann var far­inn að geta hreyft annan fót­inn örlítið fyrir neðan hné og það var frá­bært og dásam­legt að sjá fram­far­irnar. Hann fór í geisla­með­ferð en svo gekk það til baka og í dag er hann alveg lamaður frá maga og niður; hann finnur varla neitt, vel upp fyrir nafla.“

Fæst okkar þurfum mor­fín­sprautu til að meika að fara í sturtu.

Ágústa segir að í ljós séu komin mein­vörp í annað herða­blaðið, rif­bein og víða í hrygg­inn ásamt höf­uð­kúpu. „Þetta veldur óbæri­legum verkjum sem valda því að hann treystir sér ekki til að fara í hjóla­stól; hann liggur bara í La-Z-Boy eða uppi í rúmi. Ég er svo þakk­lát fag­fólk­inu sem er búið að vera ynd­is­legt við Óskar; það eru allir að reyna sitt besta. Fæst okkar þurfum mor­fín­sprautu til að meika að fara í sturtu. Það þarf að verkja­stilla hann og þessi líkn­andi með­ferð snýst svo­lítið um það. Það þarf að passa upp á að láta fólki líða sem best; að það þurfi ekki að þjást mikið.“

Það er ekki búið að skrifa í skýin ein­hverja dag­setn­ingu.

Þögn.

„Það er rosa­lega skrýtin til­finn­ing. Við vitum alveg að þetta er eitt­hvað sem er ekki hægt að taka til baka. Krabba­meinið er ekk­ert að fara. En þetta snýst allt um að Óskari líði vel. Maður fær svo mikið af nýjum til­finn­ingum. Það er magnað að upp­lifa þetta. Þetta er allt öðru­vísi líf. Það er ekki búið að skrifa í skýin ein­hverja dag­setn­ingu.“ Ágústa á við dag­setn­ing­una þegar Óskar kveður þetta líf. Nokkrar vikur sagði einn lækn­ir­inn. Jafnvel nokkrir mán­uðir. Kannski nokkrir dagar.

Þögn.

„Okkar veru­leiki núna er ekk­ert eðli­legur. Þetta er okkar veru­leiki og ég vil tala um þetta eins og þetta er. Það þýðir samt ekki að ég sé sátt við það og þótt ég sé búin að við­ur­kenna að þetta sé að fara að ger­ast. Við missum öll dýr­mætan tíma saman ef ég ætl­aði að vera í ein­hverri afneitun.“

Sálin

Þetta eru þungir mán­uðir. „Það þarf stundum ekki mikið til að ég brotni niður. Ég þarf að vera heima með fjög­urra ára gam­alt barn sem þarf sína rútínu. Það er allt svo­lítið út fyrir sviga þessa dag­ana. Maður bara reynir sitt besta, ein­hvern veg­inn. Ég er stundum tví­stíg­andi. Er ég að gera rétt? Það eru engar reglur. Það er engin hand­bók sem segir manni hvernig manni eigi að líða og í hvorn fót­inn maður eigi að stíga. Það var til dæmis erfitt um dag­inn þegar ég sagði stráknum að pabbi hans kæmi ekki aftur heim heldur myndi hann deyja á sjúkra­hús­inu.“

Þögn.

„Hann veit ekk­ert nákvæm­lega hvað það þýðir.“

Ágústa tal­aði um hand­bók sem er ekki til. Það er hins vegar verið að búa til bók til minn­ingar um Óskar. Hún segir að systir hans og fleiri séu að vinna í mynda­bók sem verður kafla­skipt þar sem verða myndir af Óskari, svo sem af störfum hans hjá björg­un­ar­sveit og af fjöl­skyld­unni. „Mér finnst gott að Óskar viti að hann verður alltaf stór partur af okkur allt okkar líf þótt hann fái ekki að vera hjá okkur eins lengi og ég var að vona og hafði planað þegar ég kynnt­ist honum.“

Mér fannst ég vera að missa allan tím­ann með Óskari.

Sorgin er fyrir löngu komin inn í líf fjöl­skyld­unnar. Og kvíð­inn bítur stundum fast. „Ég fékk til dæmis kvíða­kast um dag­inn þegar ég fór að ofhugsa hlut­ina. Ég gat ekki sofnað um miðja nótt og þurfti að fá pabba til að koma til mín. Mér fannst ég vera að missa allan tím­ann með Óskari. Ég þurfti að fá tíma til að ná mér niður.“

Dauðinn er handan við hornið og Ágústa seg­ist vera farin að reyna að njóta hverrar stundar meira en hún gerði. „Ég veit ekki hvaða hugs­anir ég hafði um dauð­ann áður, en ég er meira búin að átta mig á hvernig maður vill láta minn­ast sín fyrir að hafa gert eitt­hvað. Ætlar maður að fram­kvæma hlut­ina eða hugsa enda­laust um að fram­kvæma þá? Ég þori miklu meiru núna. Svo upp­lifi ég svo fal­legar til­finn­ingar, svo sem í tengslum við vel­vild fólks í okkar garð.“

Hver er mesti lær­dóm­ur­inn í þessu ferli?

„Að for­gangs­raða rétt.“

Fjöl­skyldan er öll með Covid; Óskar líka, þar sem hann liggur á sjúkra­húsi og berst við að ná and­anum. Ágústa og son­ur­inn ungi mega ekki heim­sækja Óskar og í dag gæti verið um daga­spurs­mál að ræða vegna veirunnar skæðu. „Ég vona að hann nái sér, af því að Óskar er sterkur. Hann er ekki búinn að gef­ast upp.“

Óskar tekur þátt í Mottu­mars. „Mér finnst þetta vera mjög flott fram­tak hjá Krabba­meins­fé­lag­inu. Það er talið að þrið­ungur fólks fái krabba­mein og þetta snertir alla.“

https://safna.krabb.is/participant/fyrir-oskar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð