Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fjögur ár frá hvarfi Hauks Hilmarssonar: „Var Haukur með kurteisari mönnum í daglegu lífi“

Haukur Hilmarsson – hugsjónamaður
Haukur Hilm­ars­son – hug­sjóna­maður Mynd: Ásgeir Ásgeirsson eða Geiri X

Eva Hauks­dóttir lögmaður og norn, birti í dag hjartnæma færslu á Facebook-vegg sinn. Þar talar Eva um að fjögur ár séu nú liðin frá því að systkini hennar komu til hennar þar sem hún bjó í Glasgow en þá höfðu nýlega borist fregnir af hvarfi sonar Evu, Hauks Hilmars­sonar. Segist hún nokkuð viss um að Haukur væri búinn að hengja upp úkraínska fánann einhversstaðar í Reykjavík ef hann gæti.

Eins og alþjóð veit er talið að Haukur hafi látið lífið er her Natoríkisins Tyrklands lét sprengjur falla á Kúrda í Afrin héraði í Sýrlandi. Leit eða fyrir­spurnir sem íslensk yfirvöld segjast hafa framkvæmt, um það hvar lík Hauks er að finna báru engan árangur.

Með færslunni birti Eva skemmtilega mynd af Hauki sem tekin var af Ásgeiri Ásgerissyni.

„Þennan dag fyrir fjórum árum var ég ein í Glasgow, Einar var í vinnuferð. Daginn eftir komu systkini mín öll út til að vera hjá mér. Ég bað ekki um það og held ekki að ég hafi sagt eða gert neitt sem gaf þeim tilefni til að halda að ég ætlaðist til þess, enda ætlaðist ég ekkert til þess. Þau komu samt og þótt ég hafi sennilega ekki sýnt það þá, skipti það mig samt miklu máli.

Fjögur ár. Ég trúi ekki á framhaldslíf eða ódauð­leika sálarinnar. En mér finnst samt eins og það yrði ekkert svo rosalega skrýtið að rekast á hann í miðbænum. Ég væri til í það. Margt sem mig langar að ræða við hann og þótt Haukur hefði sterkar skoðanir þá var hans sjónar­horn hreint ekki alltaf fyrir­sjáanlegt. Ég þykist samt nokkuð viss um að hann væri búinn að flagga úkraínska fánanum einhversstaðar í Reykjavík ef hann væri í aðstöðu til þess.

Ásgeir Ásgeirsson tók þessa mynd. Þótt það kunni að hljóma ótrúlega í eyrum þeirra sem þekkja hann bara úr fjöl­miðlum var Haukur með kurteisari mönnum í daglegu lífi.“

Haukur Hilm­ars­son – hug­sjóna­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið