Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslendingar eiga einu stærstu vatnsauðlind á mannsbarn í heiminum: „Gerum hið ósýnilega sýnilegt“

Íslendingar eiga einu stærstu vatnsauðlind á mannsbarn í heiminum: „Gerum hið ósýnilega sýnilegt“

„Alþjóð­legur dagur vatns­ins var haldin í gær 22. mars. Dagurinn er hald­inn ár hvert til að minna á mik­il­vægi vatns­auð­lind­ar­innar.  Íslend­ingar eru svo heppnir að eiga ein­hverja stærstu vatns­auð­lind á manns­barn í heim­inum. Við búum við lík­lega eitt tærasta grunn­vatn á Vest­ur­löndum, sem má rekja til stórra – grunn­vatns­geyma fjarri byggð og umsvifum manns­ins.  Á Íslandi er grunn­vatnið nýtt til drykkjar, mat­væla­fram­leiðslu og iðn­aðar.

Athyglin í ár bein­ist einmitt að grunn­vatni með slag­orð­inu „gerum hið ósýni­lega sýni­legt.“ Þetta segja Hrund Ó. Andra­dóttir, pró­fessor í umhverf­is­verk­fræði við Háskóla Íslands, og María J. Gunn­ars­dóttir, sér­fræð­ingur við Vatna­verk­fræði­stofu skól­ans sem rit­uðu saman grein í til­efni Alþjóð­legs dags vatns­ins.

„Undir fótum okkar liggur fal­inn fjár­sjóður sem auðgar líf okkar. Næstum allt fljót­andi fersk­vatn í heim­inum er grunn­vatn, sem verður sífellt mik­il­væg­ara með lofts­lags­breyt­ingum. Því er mik­il­vægt að vinna að sjálf­bærri stjórnun þess­arar dýr­mætu auð­lindar, að vernda hana og nýta skyn­sam­lega. Grunn­vatn er hulið, en ætti ekki að vera úr huga, eins og Sam­ein­uðu þjóð­irnar kom­ast að orði.“

Í til­kynn­ingu í til­efni dags­ins segja þær að mik­il­vægt sé að gera sér grein fyrir því að það sem við gerum ofanjarðar skiptir máli neð­an­jarðar. Merkja má athafnir manns­ins og umsvif mann­virkja í vatn­inu í nærum­hverfi okkar. Sem dæmi, þá er slit mal­biks og dekkja ein stærsta upp­spretta örplasts í vatna­vist­kerfum. Nýleg rann­sókn við Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­svið Háskóla Íslands ályktaði að helsta ástæða fyrir myndun göturyks í Reykja­vík er að nær annar hver bíll er á nagla­dekkjum á vet­urna. Helm­ingur ryks­ins sem nagla­dekkin spæna upp ratar í vatna­vist­kerfin okkar, hinn helm­ing­ur­inn veldur ítrek­uðum svifryks­dögum sér­stak­lega þegar snjóa leysir á vorin.

Örmeng­un­ar­valdar hafa mælst erlendis í grunn­vatni, í fiskaf­urðum og í manns­lík­am­anum. Efnin eru oft­ast þrá­virk, safn­ast upp í líf­keðj­unni, og talin valda horm­óna­rösk­unum og/eða alvar­legum sjúk­dómum. Sum efnin skol­ast af þökum, klæðn­ingum og gróðri eins og t.d. þung­málmar, plast­efni, eld- og rot­varn­ar­efni, sveppa- og skor­dýra­eitur. Önnur skol­ast af götum, eins og t.d. fjöl­hringa arómat­ísk kol­vetni sem mynd­ast við bruna elds­neytis. Þá ber­ast leifar lyfja, snyrti- og hreinsi­vara með heim­il­is­skólpi í vötn. Þótt efnin séu í litlu magni, þá gætir áhrifa þeirra engu að síður, og jafn­vel eftir að notkun þeirra er hætt. Til dæmis eru vatns- og fitu­frá­hrind­andi PFAS efni, sem notuð eru í ýmsum varn­ingi innan og utan heim­ilis, nán­ast ónið­ur­brjót­an­leg, svokölluð eilífð­ar­efni.

Skila­boðin frá þeim til Íslend­inga á degi vatns­ins í gær eru:
•    Nálgumst vatnið okkar með aðgát og virð­ingu
•    Notum efni var­lega og spar­lega
•    Hættum að keyra á nagla­dekkjum
•    Fylgj­umst vel með vatn­inu okkar með reglu­bundnum mæl­ingum“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ