Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigga Eyþórs: „Ég átti svo tvö börn í millitíðinni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára“

Sigga Eyþórs: „Ég átti svo tvö börn í millitíðinni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára“
Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Sigga ólst upp í Miðbænum en flutti til Englands þegar hún var tveggja ára. Á þeim tíma var Eyþór, pabbi hennar, að gera það gott með Mezzoforte. „Við bjuggum þar í sirka tvö ár og komum svo aftur heim. For­eldrar mínir sögðu mér að ég hafi sungið frá því að ég var nokk­urra mán­aða gömul og spilað á píanó frá því að ég var sirka 5 eða 6 ára.

Við bjuggum í Miðbænum þangað til ég varð 10 ára, en þá fluttum við í Vest­ur­bæ­inn þar sem ég gekk í Haga­skóla. Þegar for­eldrar mínir fluttu síðan í Graf­ar­vog­inn varð ég eftir og fór að búa með þáver­andi kærasta mínum. Þegar ég var 16 ára fór ég út til Kaup­manna­hafnar sem au pair hjá Kikku (rit­höf­und­inum Krist­laugu Maríu Sig­urð­ar­dóttur) á meðan hún var að skrifa Ávaxta­körf­una. Það var ein­stök reynsla.“

Ég átti svo tvö börn í milli­tíð­inni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára

Nokkrum árum síðar eign­að­ist Sigga sitt fyrsta barn með æsku­ást­inni. „Ég fór í sjúkra­liða­nám þegar fyrsta barnið mitt var eins árs. Bókleg fög hafa aldrei höfðað mikið til mín svo að ég fór ekki í mennta­skóla. Ég hef alltaf haft mjög mik­inn áhuga á heil­brigð­is­vís­indum. En ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara í sjúkra­lið­ann var að ég hafði hugsað um ömmu mína sem var með krabba­mein. Hjúkr­un­ar­kon­urnar sem sáu um hana sögðu við mig: „Þú ert svo góð í þessu, þú ættir bara að fara að læra þetta.“ Það snerti ein­hvern streng hjá mér. Ég átti svo tvö börn í milli­tíð­inni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára þegar ég kláraði sjúkra­lið­ann og stúd­ents­prófið.“

Sigga gift­ist Þor­steini Ein­ars­syni, söngv­ara og gít­ar­leik­ara í Hjálmum. „Við eigum tvö ynd­is­leg börn saman. Þegar leiðir okkar skildu eftir langt sam­band var ég ein­stæð um tíma, þangað til ég kynnt­ist ynd­is­legum manni árið 2017. Hann er frá Banda­ríkj­unum og núna búum við hér á Íslandi og eigum eitt lítið örverpi saman.“

Sigga ásamt þremur sonum, dóttur og mann­inum sínum. Aðsend mynd.

Mikilvægt að rækta vitundarsamband við líkama sinn

„Eftir sjúkra­lið­ann fór ég í Lista­há­skól­ann og kláraði nám í tón­smíðum. Samhliða því stofn­aði ég hljóm­sveit­ina Sísý Ey með systrum mínum og vann að hinum ýmsu tón­list­ar­verk­efnum. Fyrir utan tón­list­ina hafa heil­brigð­is­mál alltaf verið mér hug­leikin, sem varð til þess að ég bætti við mig námi í einka­þjálfun. Það var frá­bært nám. En mig lang­aði að kafa dýpra og bæta and­lega þætt­inum inn í æfinga­kerfið. Ég er ekki ein­ungis að þjálfa fólk til þess að styrkja sig lík­am­lega, heldur finnst mér ekki síður mik­il­vægt að rækta vit­und­ar­sam­band og bera virð­ingu fyrir lík­ama sínum.

Það þýðir ekki að fara bara í megrun og refsa sjálfum sér stans­laust og vera bara: ég ætla að fara með þennan ógeðs­lega lík­ama sem ég hata í rækt­ina og þræla honum út.

Þannig að þegar ég kláraði námið í einka­þjálf­ar­anum fannst mér jóga vera rök­rétt næsta skref hjá mér. Ég fann mér jóga­kenn­ara og hef upp frá því stundað jóga næstum dag­lega. Andleg mál­efni hafa alltaf verið mik­il­vægur hluti af mínu dag­lega lífi.“

Sigga tók sér tíma­bundið hlé frá tón­list­inni þegar hún eign­að­ist sitt yngsta barn. Þegar Covid skall á ákvað hún svo að bæta við sig námi í hjúkrun. „Mig langar að auka þekk­ingu mína á heil­brigði til að geta hjálpað fólki að huga vel að sér. Ég hef í gegnum tíð­ina átt erfitt með sam­an­burð­inn sem fylgdi mér við að vera tón­list­ar­kona. Það var ekki alltaf upp­byggi­legt. Það getur verið erfitt að lesa gagn­rýni um sjálfan sig. Þú opin­berar þig svo rosa­lega í list­inni, þannig að það er auð­velt að taka nei­kvæðri gagn­rýni mjög per­sónu­lega.“

Ég við­ur­kenni alveg að mér sárn­aði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sig­ur­inn í Söngvakeppn­inni

Núna er Sigga aftur komin af stað með systrum sínum í tón­list­inni. Hún finnur fyrir miklum styrk og er til­búin til að helga sig alfarið þessu nýja verk­efni. „Það er vissu­lega erfitt að lesa óbil­gjarna gagn­rýni, sem manni finnst ekki sett fram af virð­ingu. Ég held að margir tón­list­ar­menn fái illt í hjartað og hætti jafn­vel í tón­list, því það getur verið svo erfitt að finna sjálfs­traustið þegar búið er að segja ósann­gjarna hluti. Auðvitað hefur fólk mis­mun­andi skoð­anir á því sem maður gerir, en sé gagn­rýnin ekki sett fram af virð­ingu þá getur það verið sárt. Ég við­ur­kenni alveg að mér sárn­aði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sig­ur­inn í Söngvakeppn­inni. Ég staldr­aði hins vegar ekk­ert við það. Við erum sterkar saman syst­urnar og við erum með góðan hóp í kringum okkur sem heldur vel utan um okkur.“

Kvíði og áfengi er ekki góður kokteill

„Ég greind­ist seint með ADHD, rétt fyrir þrí­tugt, en hafði vitað lengi að ég væri lík­leg­ast með ADHD. Þegar ég hugsa til baka þá hefur þetta senni­lega verið fyrsta alvöru áskor­unin. Það hefur haft mikil áhrif á allt mitt líf. Maður er með hug­ann úti um allt og upp­lifir sig alltaf að vera að trufla. Sér­stak­lega í skóla­kerfi þar sem ætl­ast er til þess að maður haldi sig innan ákveð­ins ramma. Margir kenn­arar höfðu litla trú á mér og voru nei­kvæðir í minn garð.

Næsta stóra áskor­unin var að takast á við átröskun sem ég þró­aði með mér eftir að ég átti fyrsta barnið mitt. Ég fór í með­ferð við átröskun hjá Hvíta band­inu og vann mig út úr henni og verið í bata síðan 2015. Það var mjög stórt verk­efni fyrir mig, jafn­vel eitt það erf­ið­asta.“

Því næst tók við tíma­bil þar sem Sigga komst að því að hún átti ekki sam­leið með áfengi.  „Ég er oft að kljást við kvíða og þegar maður notar alkó­hól til að deyfa sig þá verður það fljótt víta­hringur. Kvíði og áfengi er ekki góður kok­teill. Kvíðinn bara eykst. Ég er því búin að vera edrú í tíu ár, fyrir utan nokkra mán­uði. Á þeim tíma hafa lífs­gæði mín auk­ist mikið. Hug­leiðslan og heil­brigt líf­erni hefur gjör­breytt öllu hjá mér. Ég gæti ekki hugsað eins vel um börnin mín og ég geri í dag ef ég hefði ekki látið af þess­ari sjálf­hverfu sem fylgir því oft að lifa óábyrgum og óheil­brigðum lífs­stíl að fara illa með áfengi.

Hjá mér sner­ist þetta um að átta mig á því að ég væri ekki upp­haf og endir á þessu öllu. Þó svo að ég muni kannski aldrei kom­ast að til­gang­inum með jarð­vist minni, þá þarf ég samt að trúa á það góða. Við erum öll bara sálir á ferða­lagi með mis­mun­andi ramma.“

Sigga segir: „Rask­an­irnar voru á end­anum mér í hag. Það truflar mig óneit­an­lega oft að vera með ADHD, en oft er það mér í hag.

Ég er líka mjög glöð að vera með ADHD, það er ekki bara áskorun, heldur hef ég áhuga á mörgu og vil alltaf læra meira. For­vitnin mín gerir það að verkum að ég hef mik­inn áhuga á öðru fólki. Ég hef enda­lausan áhuga á því að fræð­ast um nýja hluti. Ég get verið algjör­lega filt­ers-laus, sem getur oft verið fyndið og öðrum til skemmt­unar. Ofvirknin getur líka komið sér vel og hjálpað mér að vinna vel og vera dug­leg.

Ég hef alltaf upp­lifað mig vera verri en ég er og hef óskaði þess að vera ein­hvern veg­inn betri. Nú er ég bara þannig að ég næ að sam­gleðj­ast sjálfri mér og öðrum og vera með, í stað þess að bera mig alltaf saman við aðra.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni inn á vef­blað­inu HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ