Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Einkennin þrjú – Stjörnumerkin sem taka stjórnina, halda í hana eða láta stjórnast af umhverfinu

Einkennin þrjú – Stjörnumerkin sem taka stjórnina, halda í hana eða láta stjórnast af umhverfinu

Áður hefur verið talað um „elem­entin“ í stjörnu­speki; eld, jörð, loft og vatn, og hvernig merkin tólf skipt­ast niður á þau og hvað hver þrjú merki í sama elem­enti eiga sam­eig­in­legt. Annað flokk­un­ar­kerfi sem notað er sam­hliða elem­ent­unum eru „ein­kennin“ (e. qualities). Ein­kennin eru þrjú og hvert þeirra heldur utan um fjögur merki dýra­hrings­ins.

Merkin innan hvers ein­kennis eiga þar með ákveðna hluti sam­merkta, sem hafa að gera með lífs­við­horf og hegðun. Innan hvers ein­kennis eru fjögur stjörnu­merki sem til­heyra hvert sínu elem­ent­inu.

Þannig deila hver fjögur merki ákveðnu grund­vallar­ein­kenni sem gefur til kynna hvernig þau hreyfa sig í líf­inu og bregð­ast við ytra umhverfi sínu. Birt­ing­ar­mynd ein­kenn­is­ins tekur síðan á sig per­sónu­legan blæ hvers merkis, sem og þess elem­ents sem þau til­heyra.

Hvert ein­kenni tekur til sín eitt merki úr hverju elem­enti. Þannig er hvert og eitt ein­kenni með eitt eld­merki, eitt jarð­ar­merki, eitt loft­merki og eitt vatns­merki.

Kardínáli – upphafsmenn (e. Cardinal)

Hrút­ur­inn, krabb­inn, vogin og stein­geitin

Þessi merki búa yfir miklum drif­krafti og geta flokk­ast sem „upp­hafs­menn“ stjörnu­merkj­anna. Þetta eru þau merki sem lík­leg­ust eru til að byrja á verk­efnum og æða af stað út í óviss­una. Þau kunna vel við að vera skrefi á undan fjöld­anum og vilja láta til sín taka á hinum ýmsu sviðum. Þessi merki eru tákn­ræn fyrir fyrsta neist­ann sem gefur af sér bál. Það er engin til­viljun að stjörnu­speki­árið hefst á hrútnum – fyrsta kard­ínála-merk­inu.

Þessi merki kjósa gjarnan hafa stjórn á því sem ger­ist í kringum þau. Þau ætla að stjórna umhverf­inu en ekki láta stjórn­ast af því, hvert á sínu sér­sviði. Þetta kemur fram á ólíkan hátt, eftir því hvaða merki á í hlut. Þannig sækja hrútar í stjórn á mörgum sviðum en kunna helst vel við að vera í ein­hvers konar leið­toga­hlut­verki, vilja keyra hlut­ina áfram og fá upp­hafs­hug­mynd­ina, á meðan krabbar sækja í stjórn á sviði til­finn­inga, heim­ilis og fjöl­skyldu. Vogir vilja vera við stjórn­völ­inn í sínum per­sónu­legu sam­böndum og í félags­legum aðstæðum. Fyrir þær eru það afar mik­il­vægir hlutar af líf­inu og þær búa yfir mik­illi færni á þeim sviðum. Stein­geitur vilja stjórna hinum efn­is­lega heimi, pen­ingum, eignum og því sem almennt snýr að fjár­hags­legu öryggi og vel­gengni. Þær hafa yfir­leitt nátt­úru­lega færni á þeim sviðum og eiga auð­velt með að taka af skarið í slíku.

Föst (e. Fixed)

Nautið, ljónið, sporð­drek­inn og vatns­ber­inn

Þessi merki eru, með fullri virð­ingu, þrjósku­púkar stjörnu­spek­innar. Þau reyna ekki eins mikið að hafa stjórn á umhverfi sínu eins og kard­ínála-merkin, heldur streit­ast ef til vill frekar á móti utan­að­kom­andi áhrifum og því að ein­hver reyni að hafa áhrif á þau, skoð­anir þeirra eða gjörðir. Þessir ein­stak­lingar telja sig yfir­leitt vita best og þegar þeir ákveða eitt­hvað er ekki auð­velt að fá þá til að skipta um skoðun. Hér birt­ist stjórn helst í sjálf­inu og því hvernig merkin koma í veg fyrir að ein­hver eða eitt­hvað stjórn­ist í þeim. Þau eru tengd kjarn­anum og sjálf­inu, og það er þeim eðl­is­lægt að verja og passa upp á það sem er þeirra, hvort sem um ræðir eitt­hvað efn­is­legt eða til­finn­inga­legt.

Þessi merki eiga auð­velt með að ein­beita sér að per­sónu­legum hlutum og því sem snýr að þeim sjálfum. Oft velta þau sjálf­inu tölu­vert fyrir sér. Þau eru almennt stað­föst og traust. Rökfesta er þeim í blóð borin og það sem ein­kennir þau öll er færni þeirra í að setja höf­uðið undir sig og halda hlut­ina út, hvernig sem viðrar.

Festan sem ein­kennir öll þessi fjögur merki kemur fram á ólíkum sviðum eftir því hvað ein­kennir merkin sjálf og hvaða elem­enti þau til­heyra. Þannig á naut auð­veld­ast af þessum merkjum með að finna sér stað í við­teknum venjum og meg­in­straumi. Þau til­einka sér það sem þeim þykir rétt og við­ur­kennt. Ljón geta átt dálítið erfitt með að aðlaga hegðun sína ólíkum aðstæðum. Þau koma til dyr­anna eins og þau eru klædd, hvort sem er í ein­lægni eða hroka, og eiga þannig oft erfitt með að aðlag­ast ólíkum aðstæðum, fólki og við­töku. Vatns­berar eiga það til að fest­ast í nei­kvæðri sjálfs­mynd. Þeir eiga stundum erfitt með að skilja sjálfa sig og taka það stundum inn á sig að finn­ast þeir á jaðr­inum; ekki hluti af hópnum, enda eru þeir fastir fyrir og breyt­ast ekki með umhverfi sínu. Sporð­drekar eiga það til að fest­ast á bólakafi í til­finn­inga­legum for­arpyttum þar sem þeir spóla í sömu hjól­förum nei­kvæðra til­finn­inga út í hið óend­an­lega. Þeir búa yfir inn­sæi og visku en beina kast­ljós­inu of oft að hinu nei­kvæða og því sem lætur þeim líða illa. Þeir fest­ast þar og eng­inn og ekk­ert annað getur híft þá upp – ein­ungis þeir sjálfir.

Breytileg (e. Mutable)

Tví­burarnir, meyjan, bog­mað­ur­inn og fisk­arnir

Þetta eru hreyf­an­leg­ustu merkin – þau sem eru hvað mót­tæki­leg­ust fyrir utan­að­kom­andi áhrifum og umhverfi sínu hverju sinni. Þetta eru þau merki sem eiga einna auð­veld­ast með að sleppa tak­inu og skipta um ham. Stundum geta þessi merki virst hreyfast eins og lauf í vindi og til­finn­ingar þeirra, skoð­anir og gjörðir með. Þau eru í eðli sínu breyti­leg og eiga auð­velt með að tengj­ast umhverfi sínu og tíð­ar­anda. Þau eru líka mót­tæki­leg fyrir áhrifum frá öðru fólki og drekka oft í sig til­finn­ingar ann­arra og and­rúms­loft. Þau takast á við þessa hluti á mjög ólíkan hátt.

Tvíburar skipta títt um skoð­anir, hug­myndir og stefnu. Þeir virð­ast stundum leika tveimur skjöldum. Þeir eiga auð­velt með að taka inn ólík sjón­ar­mið og skilja þau. Þannig eru þeirra eigin við­horf og ákvarð­anir í sífelldri þróun og geta tekið hröðum breyt­ingum.

Hegðun og líðan meyja stjórn­ast mjög af ytri aðstæðum og því sem er að ger­ast í kringum þær hverju sinni, þær taka allt inn. Þannig verða þær yfir­leitt mjög sjálfs­gagn­rýnar og fara inn í skel ef þær mæta hörku. Fái þær góða end­ur­gjöf og styrk­ingu er lík­legra að þær öðlist trú á sjálfum sér og efist ekki eins mikið og ann­ars. Bogmenn fara í gegnum lífið sem nem­endur og eru sífellt að þróa og breyta við­horfi sínu og sjón­ar­horni á hlut­ina. Þeir vilja fara í gegnum lífið þannig að þeir upp­götvi sem mest nýtt og geti tekið hlut­ina inn.

Líkt og meyjur taka fiskar mikið inn úr umhverfi sínu og sam­ferða­fólki. Þeir virð­ast hins vegar aðlag­ast umhverfi sínu meira en meyj­urnar; eru meira eins og kamelljón. Þannig eru fiskar gjarnan síbreyti­legir og taka á sig ýmsar myndir á meðan þeir láta sig ber­ast með straumnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu