Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Álitsgjafar skoða skilorðsbindingu nauðgunardóma: „Kerfið úr takti við réttlætisvitund almennings“

Álitsgjafar skoða skilorðsbindingu nauðgunardóma: „Kerfið úr takti við réttlætisvitund almennings“
Andrés Ingi Jónsson, Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir og Helga Vala Helga­dóttir.

Í nýjasta tíma­riti Mannlífs er fjallað um skil­orðs­bind­ingu nauðg­un­ar­dóma og þá stað­reynd að sak­born­ingar í grófum kyn­ferð­is­brotum þurfa í mörgun til­fellum ekki að sitja af sér dóma sína. Farið er yfir nýlegt mál þar sem brotið þótti svo gróft að refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði var beitt, en dóm­ur­inn var þrátt fyrir það skil­orðs­bund­inn að fullu.

Í grein­inni er málið reifað og íslenska dóms­kerfið borið saman við það sænska, hvað varðar kyn­ferð­is­brota­mál og refs­ingar. Rætt er við nokkra álits­gjafa um það hvort laga­breyt­ingar væru fýsi­legar að fyr­ir­mynd sænska laga­bálks­ins.

Sænska ákvæðið – ólöglegt að skilorðsbinda fyrir verstu brotin

Víða á öðrum Norð­ur­löndum er hrein­lega ólög­legt að skil­orðs­binda dóma fyrir brot þar sem lág­marks­refs­ingin er eitt ár eða meira. Þar er almennt um að ræða morð, mann­dráp og nauðg­anir.

Á síðu sem útskýrir refsirétt­ar­kerfið í Svíþjóð fyrir almenn­ingi segir:

„Vad det gäller straff­värde, som även det är ett stort ämne att utforska, är huvu­dregeln att påföljden ska bli fäng­else om straff­vär­det är högre än ett år.“ Á íslensku þýðir þetta að ef lág­marks­refs­ingin er hærri en eitt ár má ekki dæma til skil­orðs­bund­innar refs­ingar. Í Svíþjóð er lág­marks­refs­ing fyrir nauðgun tvö ár.

Ákvæðið má finna í 27. kafla sænska laga­bálks­ins, en Moa Bladini, lektor í lög­fræði við Gauta­borg­ar­há­skóla, stað­festi auk þess ofan­greind atriði um sænska rétt­ar­kerfið í sam­tali við blaða­mann. Þum­al­putta­reglan er að lág­marks­refs­ingin fyrir téð brot sé eitt ár – en við nauðgun er tveggja ára lág­marks­refs­ing í Svíþjóð, svo það þýðir að úti­lokað er að dæma til skil­orðs­bund­innar refs­ingar fyrir nauðgun þar í landi.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi. Blaða­maður kom að máli við nokkra álits­gjafa og spurði þá hvort þeim þætti sam­bæri­leg lög ekki eiga erindi við okkur hér á landi. Það kæmi spánskt fyrir sjónir að hægt væri að skil­orðs­binda dóma að fullu þar sem sak­fellt væri fyrir alvar­legt brot eins og nauðgun – sér­stak­lega þegar refsi­þyng­ing­ar­á­kvæði væri beitt í dómnum.

Á Íslandi eru engin slík lög í gildi.

Álits­gjaf­arnir nálg­uð­ust málið út frá ólíkum hliðum en voru allir sam­mála um að gera þyrfti breyt­ingar á dóms­kerf­inu.

Dr. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir rétt­ar­fé­lags­fræð­ingur sem hefur rann­sakað rétt­ar­stöðu brota­þola ítar­lega, sagð­ist telja að það væri vissu­lega til­efni til þess að hér á landi yrði skoðað ákvæði eins og það sem er í lögum í Svíþjóð. Hún velti fyrir sér skil­orðs­bind­ingu á dómi Jóns Páls Eyj­ólfs­sonar, sem blaða­maður nefndi sem dæmi við hana.

„Um er að ræða alvar­legt brot sem var þar að auki framið með svo grófum hætti að dóm­ur­inn nýtir þyng­ing­ar­á­kvæðið. Það skýtur því skökku við að dóm­ur­inn sé á sama tíma skil­orðs­bund­inn að fullu. Dómurinn ber þannig með sér að ekki sé tekið til­lit til hags­muna brota­þola í mál­inu, enda lítur íslenskt rétt­ar­kerfi í raun svo á að brota­þolar hafi engra hags­muna að gæta í refsi­málum. Efast má um að þetta við­horf end­ur­spegli rétt­ar­vit­und almenn­ings. Ég tel fulla ástæðu til að kanna betur hvernig þessu er háttað ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum og þá skoða hvort ekki sé rétt að taka fyrir það að hægt sé að skil­orðs­binda dóma vegna svona alvar­legra brota,“ sagði Hildur Fjóla í sam­tali við blaða­mann.

Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir.

„Jú, þetta er algjör­lega eitt­hvað sem þyrfti að skoða,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, aðspurður um laga­breyt­ingu af þessu tagi. „Það er stórt vanda­mál hvernig kerfið er á köflum algjör­lega úr takti við rétt­læt­is­vit­und almenn­ings – það byggir upp van­traust til kerf­is­ins ef fólki finnst rétt­læt­inu ekki vera full­nægt. Í kyn­ferð­is­brotum er þetta sér­stak­lega áber­andi í hversu fá brot rata inn í rétt­ar­sali, hversu lágt sak­fell­ing­ar­hlut­fallið er, eða þeirri stöðu að Lands­réttur virð­ist frekar milda dóma í kyn­ferð­is­brota­málum en öðrum brota­flokkum. Þegar kemur að alvar­leg­ustu brot­unum, brotum þar sem lág­marks­refs­ing í lögum fer yfir ákveðið langan fang­els­is­dóm, þá skýtur skökku við að geta skil­orðs­bundið til­tölu­lega þunga dóma.“

Andrés Ingi Jónsson.

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er hlynnt­ari því að gera nauð­syn­legar úrbætur á máls­með­ferð­ar­tíma og upp­hæðum miska­bóta til brota­þola í kyn­ferð­is­brota­málum. „Ég aðhyllist ekki harða refsi­stefnu, því það er mín bjarg­fasta skoðun að hver dagur í frels­is­svipt­ingu sé veru­lega íþyngj­andi,“ sagði Helga Vala í sam­tali við blaða­mann, spurð um erindi sænska ákvæð­is­ins.

„Þess vegna er ég mjög hlynnt því að beitt sé ákvæði hegn­ing­ar­laga til skil­orðs­bind­ingar, sér í lagi þegar um er að ræða ungt afbrota­fólk, því það hlýtur fyrst og fremst að vera mark­mið okkar að fólk verði fyrir betrun sem ég því miður ótt­ast að sé ekki mikil innan veggja lok­aðra fang­elsa. Þá verður að skoða aðstæður, þótt að kyn­ferð­is­brot séu vissu­lega meðal alvar­leg­ustu afbrota sem þekkj­ast, því þær eru jú mjög marg­vís­legar.

Mig langar líka að benda á að vegna þess hvernig stjórn­völd hafa búið um hnút­ana, með allt of fáu starfs­fólki í rétt­ar­vörslu­kerf­inu, þá hefur máls­með­ferð dreg­ist veru­lega, sem leitt hefur til þess að stærri hluti refsi­dóma hefur orðið skil­orðs­bund­inn að hluta. Þar er dóms­kerfið að bregð­ast við því hversu íþyngj­andi það er að hafa stöðu sak­born­ings árum saman. Það er hins vegar algjör skortur á því að tekið sé til­lit til þess hversu íþyngj­andi það er fyrir brota­þola að bíða nið­ur­stöðu máls árum saman, því dóm­stólar hafa ekki hækkað miska­bætur vegna þess­ara tafa á máls­með­ferð. Eðlilegt væri að miska­bætur yrðu hækk­aðar og þá að hluta greiddar af rík­is­sjóði, sem ber ábyrgð á þessum töfum.“

Helga Vala Helga­dóttir.

Lesið grein­ina í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ