Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gói syngur á ný: „Pínu vanhugsað að ferma daginn eftir afmælið mitt“

Gói syngur á ný: „Pínu vanhugsað að ferma daginn eftir afmælið mitt“

Guðjón Davíð Karlsson á afmæli í dag. „Hver er það?“ gæti ein­hver spurt. Jú, þetta er eng­inn annar en hinn stór­skemmti­legi stór­leik­ari Gói sem er 42 ára í dag. Sem þýðir að hann hafi fæðst á hinu frá­bæra ári 1980.

Gói er með vin­sælli leik­urum þjóð­ar­innar en hann er jafn­vígur í gaman og drama­leik. Meðal þekkt­ustu verka sem Gói hefur tekið þátt í eru Sveppa­mynd­irnar, Lof mér að falla, Ófærð og Verbúð. Þá hefur hann einnig slegið í gegn í ýmsum leik­ritum á fjölum leik­hús­anna. Og ekki má gleyma því þegar Gói lyfti Stund­inni okkar á annað plan en hann stjórn­aði þeim vin­sæla krakka­þætti um nokk­urra ára skeið ásamt Kristínu Þóru Har­alds­dóttur.

Mannlíf heyrði í Góa hljóðið og for­vitn­að­ist um afmæl­is­dag­inn hans.

„Heyrðu, ég ætla bara að hafa það rólegt með fjöl­skyld­unni en stóra verk­efni dags­ins er ferm­ingarund­ir­bún­ingur. Frum­burð­ur­inn fermist á morgun. Þannig að dag­ur­inn fer svo­lítið bara í það að hnýta síð­ustu lausu endana og græja sal­inn og svona, þannig að afmælið er svo­lítið að falla í skugg­ann. Kannski pínu van­hugsað að ferma dag­inn eftir afmælið mitt,“ sagði Gói eld­hress.

Aðspurður hvort hann fengi ekki einu sinni afmælisköku í til­efni dags­ins sagð­ist Gói efast um það. „Nei ætli ég fái ekki bara ein­hverja afganga á morgun. En þessi mis­tök verða ekki gerð aftur!“ sagði Gói og hló.

En hvað er framundan hjá Góa?

„Ég er að leik­stýra Ávaxta­körf­unni sem verður frum­sýnd í Hörpu á laug­ar­dag­inn eftir viku. Svo er ég að fara að taka þátt í Jesus Christ Superstar sem verður sýnd í Eldborg á Skírdag. Og svo er ég, Halli vinur minn og Jón Ólafsson með tón­leika í Salnum 22. apríl. Ég og Hall­grímur Ólafsson höfum verið að koma fram með svona leik­hús­prógram, söng­leikja­lög og lög úr öllum áttum innan leik­hús­rammans. Og nú ætlum við að vera með Jóni Ólafs. Verðum á Akranesi í næstu viku og svo í Salnum í Kópavogi og erum alveg rosa­lega spenntir fyrir því. Svo er ég bara að æfa í Þjóð­leik­hús­inu. Er að æfa söng­leik sem heitir Sem á himni, sem verður frum­sýndur næsta haust. Það er langt síðan ég hef verið í söng­leik og nú fær ég bara nokkar söngrullur í röð sem er bara ótrú­lega skemmti­legt.“

Þegar blaða­maður Mannlífs ráð­leggur honum í lok sím­tals­ins að koma við í bak­aríi til að kaupa sér að minnsta kosti sneið af afmælisköku tekur Gói vel í það. „Já ég verð eig­in­lega að gera eitt­hvað. Ég er að vona að kona mín komi heim með eitt­hvað sko. Þú getur kannski droppað hintum til hennar með þess­ari afmæl­is­frétt?“ sagði Gói hress að vanda. Og hér er vís­bend­ing til konu Góa: Skrepptu í bak­arí og keyptu eitt­hvað gott­erí handa karl­inum.

Mannlíf óskar Góa inni­lega til lukku með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ