Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Neytendur milli steins og sleggju: „Séu kröfur greiddar er verið að staðfesta réttmæti þeirra“

Neytendur milli steins og sleggju: „Séu kröfur greiddar er verið að staðfesta réttmæti þeirra“

Kona sem lenti í því að vöktun Motus á umdeildum reikn­ingi og upp­flett­ingar fyr­ir­tæk­is­ins hjá Creditinfo, lösk­uðu láns­hæf­is­mat hennar tölu­vert, upp­lifði sig í erf­iðri stöðu gagn­vart inn­heimtu­fyr­ir­tæk­inu. Báðir kostir í stöð­unni voru slæmir í hennar huga; að borga reikn­ing sem hún taldi ekki eiga rétt á sér, eða að fylgj­ast með reikn­ingnum hækka og láns­hæf­is­mati lækka á meðan beðið væri eftir nið­ur­stöðu kæru­nefndar.

Lítið um svör

Um er að ræða reikn­ing sem kröfu­hafi og konan deildu um. Konan taldi reikn­ing­inn ekki rétt­mætan, í það minnsta ekki í óbreyttri mynd. Hún fór með málið fyrir Kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa eftir að hafa fengið reikn­ing­inn í heima­banka sinn og staðið í stappi við kröfu­hafann, en fékk síðan í fram­hald­inu kröfu frá Motus. Hún hafði sam­band við Motus og lét vita af því að um umdeildan reikn­ing væri að ræða og að málið væri komið til kæru­nefnd­ar­innar. Sam­skipti við Motus gengu illa og lítið var um svör. Á meðan lækk­aði láns­hæf­is­mat kon­unnar hjá Creditinfo, vegna vökt­unar og upp­flett­inga Motus.

Hugleiddi að greiða með fyrirvara 

Konan, sem hefur reifað málið í sam­tali við blaða­mann Mannlífs og lagt fram gögn máli sínu til stuðn­ings, seg­ist hafa orðið ótta­slegin vegna lækk­andi láns­hæf­is­mats og hækk­andi upp­hæðar kröf­unnar með álögðum drátt­ar­vöxtum og gjöldum. Hún hafi því velt því fyrir sér að greiða kröf­una til þess að losna við þau umtals­verðu hlið­ar­á­hrif sem hún olli, með þeim fyr­ir­vara að fá reikn­ing­inn end­ur­greiddan ef úrskurður yrði henni í vil.

Konan sendi eft­ir­far­andi fyr­ir­spurn á Motus, á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins:

„Ef ég greiði ykkur, getið þið þá ábyrgst að ég fái end­ur­greitt ásamt kostn­aði ef krafan verður dæmd ógild? Þessum aðila er ekki treystandi til að end­ur­greiða þegar hann er nógu sið­laus að útbúa reikn­ing sem á sér enga stoð í raun­veru­leik­anum.“

Svar barst frá Motus í gegnum vef­inn degi síðar. Þá hafði konan áður reynt að fá svör frá fyr­ir­tæk­inu í gegnum tölvu­pósta og koma mót­mælum sínum á fram­færi.

„Séu kröfur greiddar er verið að stað­festa rétt­mæti þeirra. Búið er að flytja mál yfir í lög­inn­heimtu og þá átt þú að geta tekið til varnar,“ sagði í svar­inu frá Motus.

Konan gat ekki hugsað sér að greiða reikn­ing­inn undir þessum for­merkjum. Hún furð­aði sig einnig á því að innan við mán­uður hafi liðið frá því að fyrsta bréf frá Motus var dag­sett, þar til krafan var komin yfir í lög­inn­heimtu.

Þegar hún spurð­ist fyrir um það kom í ljós að kröfu­hafi hafði ein­fald­lega óskað eftir því að krafan yrði flutt yfir í lög­inn­heimtu, með til­heyr­andi auknum kostn­aði, og fyr­ir­tækið orðið við því. Þess ber að geta að lög­fræði­kostn­aður bæt­ist við önnur gjöld þegar kröfur fara í lög­inn­heimtu.

Fór í löginnheimtu á 20 dögum

Fyrsta bréf frá Motus var dag­sett þann 5. febr­úar síð­ast­lið­inn en konan fékk það ekki í hend­urnar fyrr en um viku síðar. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem hún fékk var krafan send yfir í lög­inn­heimtu þann 25. febr­úar. Það liðu því ein­ungis 20 dagar frá því að fyrsta bréf var dag­sett, þar til krafan var komin í lög­inn­heimtu.

Krafan var að lokum fryst þann 9. mars síð­ast­lið­inn, á meðan nið­ur­stöðu er beðið frá Kæru­nefnd vöru- og þjón­ustu­kaupa. Þá hafði konan þó þegar lækkað úr flokki A niður í flokk C í láns­hæf­is­mati hjá Creditinfo. C-flokkur þykir afar slakur, hálf­gerður „rusl­flokkur“ og getur flokk­unin haft umtals­verð áhrif á ein­stak­linga. Til að mynda ef við­kom­andi ætlar sér að kaupa fast­eign, end­ur­fjár­magna eign, taka yfir fyr­ir­tæki eða leggja af stað í ann­ars konar við­skipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð