Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fimm atriði sem starfsmenn þurfa að hafa í huga til að forgangsraða heilsu og vellíðan

Fimm atriði sem starfsmenn þurfa að hafa í huga til að forgangsraða heilsu og vellíðan

Ingrid Kuhlman ræddi um í grein sinni um það hvernig starfs­menn séu farnir að for­gangs­raða heilsu sinni og vellíðan.

„Þegar við hægðum aðeins á okkur vegna heims­far­ald­urs­ins fengu margir rými til að líta inn á við, end­ur­meta líf sitt og skoða áhrif starfs síns á and­lega heilsu og líðan. Margir fundu fyrir löngun til að finna meiri lífs­fyll­ingu í lífi og starfi. Könnun Pew Research Center leiddi í ljós að meira en helm­ingur þeirra sem hættu störfum árið 2021 gerðu það vegna þess að þeir upp­lifðu skort á virð­ingu eða töldu sig ekki hafa næg tæki­færi til að þró­ast í starfi. Aðrar ástæður voru skortur á sveigj­an­leika, of langir vinnu­dagar og umönn­un­ar­vanda­mál.

Líklega mun þessi mikla breyt­ing marka þátta­skil fyrir fram­tíð vinn­unnar. Hún sendir vinnu­veit­endum skýr skila­boð. Ef vinnu­staðir vilja halda í sam­keppn­is­hæf­ustu starfs­menn­ina munu þeir þurfa að breyta menn­ingu sinni í þágu sam­þætt­ingar starfs og einka­lífs og sveigj­an­leika. En hvað getur hún kennt starfs­mönnum um það hvernig störf þeirra sam­ræm­ast því hvernig þeir vilja lifa líf­inu? Hér eru fimm atriði sem starfs­menn þurfa að hafa í huga:

1. Kulnun er ekki sjálf­bær
Að sögn American Psychological Assiciation upp­lifðu margir banda­rískir starfs­menn kulnun á árunum 2020 og 2021. Í könnun félags­ins á vinnu og vellíðan frá 2021 greindu 36% svar­enda frá vits­muna­legri þreytu, 32% sögð­ust upp­lifa til­finn­inga­lega þreytu og 44% greindu frá lík­am­legri þreytu, sem er 38% aukn­ing frá 2019.

Fyrir heims­far­ald­ur­inn gætu sumir hafa sætt sig við stans­lausa streitu og mögu­leik­ann á kulnun en núna hafa margir áttað sig á því að vinnu­staður sem reiðir sig á útkeyrðum og útbrunnum starfs­mönnum er ekki sjálf­bær til lengri tíma litið. Auk þess kemur þetta í veg fyrir að við getum blómstrað á öðrum sviðum lífs­ins. Síðustu tvö ár hafa því kennt vinnu­stöðum, stjórn­endum og starfs­mönnum mik­il­vægi þess að hlúa að sjálfum sér og finna vinnu- og lífs­hætti sem þjóna þeim betur.

2. Per­sónu­leg ábyrgð er lyk­il­at­riði
Heims­far­ald­ur­inn kenndi okkur að það að for­gangs­raða þörfum okkar eykur ekki bara vellíðan heldur stuðlar líka að betri frammi­stöðu. Sýn okkar á sam­þætt­ingu starfs og einka­lífs hefur breyst og við þurfum að spyrja okkur hvernig við getum blómstrað óháð því sem við kunnum að lenda í. Fyrir suma hefur það að blómstra þýtt að hefja nýjan starfs­feril eða finna nýjan vinnu­stað. Per­sónu­leg ábyrgð okkar felur í sér að taka skref til baka, íhuga málin og for­gangs­raða í þágu heilsu og vellíð­anar.

3. Við búum yfir meiri seiglu en við héldum
Það getur verið ógn­vekj­andi að yfir­gefa starf sem þú hafðir náð góðum tökum á og þekk­ingu til að sinna. Það krefst líka hug­rekkis að tjá sig um þarfir sínar við yfir­mann. Heims­far­ald­ur­inn hefur verið mikið nám­skeið í seiglu og aðlög­un­ar­færni og þessa reynslu er hægt að nota til að gera nauð­syn­legar breyt­ingar, hvort sem það er að skipta um starf eða ræða við yfir­mann um líðan sína og þarfir.

4. Starfs­menn hafa sterk­ari samn­ings­stöðu
Þar sem margir vinnu­staðir hafa misst starfs­menn frá sér und­an­farið eru starfs­menn komnir með nýja og sterk­ari samn­ings­stöðu til að hanna starfs­feril sem gerir þeim kleift að búa til rými fyrir það sem þeir óska eftir í lífi og starfi. Þegar öllu er á botn­inn hvolft vilja stjórn­endur og vinnu­stað­ur­inn halda í sam­keppn­is­hæfa starfs­menn og ná fram því besta hjá öllum starfs­mönnum. Það er því þess virði að koma á fram­færi hvað muni hjálpa þér við að kom­ast á þann stað, hvort sem það er með aðgangi að geð­heil­brigð­is­þjón­ustu, því að fá að taka reglu­lega and­legan heilsu­dag, sveigj­an­leika í vinnu­tíma og því hvar þú vinnur verk­efnin af hendi eða hæg­fara end­ur­komu­á­ætlun á skrif­stof­una eftir far­ald­ur­inn.

5. Félags­leg tengsl skipta öllu
Á meðan á heims­far­aldr­inum stóð varð eitt ljóst: Tengsl okkar við aðra skipta sköpum fyrir ham­ingju okkar. Við upp­lifðum tölu­verðar tak­mark­anir á félags­legum sam­skiptum og það hafði nei­kvæð áhrif á and­lega heilsu okkar. Það er því mik­il­vægt að hafa tengslin við okkar nán­ustu í huga í vinnu­sam­band­inu. Við ættum ekki að upp­lifa skömm eða ótta við að taka frí til að fara á tón­leika barn­anna okkar eða stimpla okkur fyrr út til að njóta kvöld­verðar með fjöl­skyld­unni. Það eru jú þessu tengsl sem veita okkur orku og fá okkur til að standa okkur vel í vinn­unni.“

Hægt er að lesa grein­ina í heild sinni inn á síðu Þekk­ing­ar­miðlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ