Lena nokkur birti í dag ljósmyndir og myndband í Facebook-hópnum Ég er íbúi Grafarholti, af glerbrotum og rusli á Hólmsheiðinni. Blöskraði henni mjög umgangur fólks á svæðinu en þangað hafði hún farið í gönguferð með hundinum sínum. Taldi hún hundinn heppinn að hafa ekki skorið sig á glerbrotunum.
„Huggulegur göngutúr á Hólmsheiði meiri viðbjóðurinn sem betur fer slasaðist hundurinn minn sig ekki þegar hann hljóp yfir þessi glerbrot…
Myndirnar af glerbrotunum eru allar teknar á sitthvorum staðnum þannig margir haugar að glebrotum,“ skrifaði Lena í hópnum og hefur færslan vakið nokkur viðbrögð innan hópsins.
Hér má sjá ljósmyndirnar (Ath. Lena gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi fyrir myndbirtingunum):






































Athugasemdir