Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sjálfstæðisflokkurinn sver af sér bæjarstjóraefni: „Ég vona bara að þetta sé hárrétt“

Sjálfstæðisflokkurinn sver af sér bæjarstjóraefni: „Ég vona bara að þetta sé hárrétt“

Orðrómur er um að í Reykja­nesbæ að bæj­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ingum sé eng­inn annar en Ásmundur Frið­riks­son þing­maður.

Ásmundur Frið­riks­son

Ásmundur hafði lýst því yfir að hann myndi hætta á þingi yrði hann sveit­ar­stjóri í Rangár­þingi ytra en svo fór að Ingvar P. Guð­björns­son upp­lýs­inga­full­trú var val­inn til að leiða list­ann í kom­andi kosn­ingum. Aðspurður hvort orðróm­ur­inn um bæj­ar­stjóra­stöð­ina í Reykja­nesbæ, væri sannur sagð­ist Ásmundur vona það. „Veistu hvað, það eru alltaf svo skemmti­legir hlutir að ger­ast í kringum mig, ég bara vona að það sé eitt­hvað til í þessu. Því miður hefur eng­inn haft sam­band við mig en ég vona bara að þetta sé hár­rétt,“ sagði Ásmundur glaður í bragði þegar Mannlíf spurði hann út í sögu­sagn­irnar.

Mannlíf heyrði einnig í Guðbergi Reyn­is­syni sem er í öðru sæti fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­nesbæ og spurði hann út í orðróm­inn. „Já þetta er ein­hver saga sem er búinn að vera að fljúga og alls konar sögur. Til dæmis kom það upp að ég væri bæj­ar­stjóra­efnið ein­hvern tím­ann um dag­inn. Við erum bara stödd þar að það er ein vika eftir og eftir kosn­ingar þá auð­vitað sjáum við með hverjum vð ætlum í meiri­hluta­sam­starf og þá munum við ákveða hvað við gerum í þessum bæj­ar­stjóra­málum. En það hefur ekk­ert verið ákveðið eða rætt innan okkar hóps að Ásmundur yrði bæja­stjóra­efni okkar. Það var ein­hver sem setti þetta á Facebook sko en nei, þetta hefur ekk­ert verið rætt, ekki í okkar hóp að minnsta kosti.“ Blaða­maður Mannlífs: „En þið úti­lokið ekki neitt?“ „Nei við úti­lokum ekki neitt, við erum bara í bull­andi kosn­inga­bar­áttu og ætlum bara að klára þessa viku,“ svar­aði Guð­bergur í lok sím­tals­ins.

Guð­bergur Reyn­is­son

Aðspurð um sama orðróm þvertók Margrét Sanders fyrir hann en hún skipar fyrsta sæti flokks­ins í Reykja­nesbæ. Margrét hló þegar spurn­ing kom upp. „Þetta er bara fyndið. Það var ein­hver Sam­fylk­inga­mann­eskja sem er ekki einu sinni í fram­boði sem setti þetta fram og sagði að við værum ekki að neita því. En við erum bara ekki að svara ein­hverri full­yrð­ingu frá mann­eskju sem er ekki einu sinni vinur okkar á Facebook sko. En sko, svarið er nei, við erum ekki með bæja­stjóra­efni, punktur. Þetta er ekki einu sinni diplómat­ískt svar, þetta er bara okkar svar. Við erum í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, ekki bæj­ar­stjóra­kosn­ingum. Við förum í sam­starf við flokk­ana sem eru í fram­boði núna og bróð­ur­part­ur­inn af þeim hefur talað um núver­andi bæj­ar­stjóra og þetta verður bara rætt þegar við förum í meiri­hluta­við­ræður.“

Margrét Sanders

Þá vitum við það, sögu­sagn­irnar reynd­ust á sandi reistar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ