Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hildur barðist upp á líf og dauða: „Ég reyndi að hafa stjórn á drykkjunni eftir að ég varð mamma“

Hildur barðist upp á líf og dauða: „Ég reyndi að hafa stjórn á drykkjunni eftir að ég varð mamma“
Hildur Her­manns­dóttir

„Ég gafst upp árið 2017 eftir að ég var búin að reyna að hafa stjórn á drykkj­unni. Ég not­aði bjór sem kvíða­still­andi efni. Kvíðinn varð enn þá meiri og ef ég fór að djamma þá fór ég í „black out“; það eig­in­lega gerð­ist alltaf,“ segir Hildur Her­manns­dóttir lista­maður sem hefur barist vipð að koma lífi sínu á réttan kljöl und­an­d­farin ár. Eftir erf­ið­leik­ana hefur rofað til. Hún sem opn­aði sýn­ingu sína í Núllinu við Banka­stræti í kvöld. Hún er með BA-próf í graf­ískri hönnun og próf í mynd­skreyt­ingu (illustration).„Í þess­ari sýn­ingu, „Guð minn góður!“, er ég að skoða hvað ég hef notað í leit minni að æðri mætti/Guði, friði og ham­ingj­unni. Ég hef leitað í fólk, hluti og staði og oft trúað því að bara ef ég hefði „þetta“ eða hefði ást/virð­ingu frá „þessum“ aðila, eða væri ein­hvers staðar ann­ars staðar en þar sem ég er, þá myndi mér loks­ins líða vel og finna ham­ingj­una, frið­inn eða Guð. En það er mikil mót­sögn, af því að maður getur aðeins fundið ham­ingj­una, frið­inn og já, Guð, innra með sjálfum sér akkúrat þar sem maður er í núinu. Ég legg áherslu á húmor og hef gaman af öllum mis­tök­unum sem ég hef gert í þess­ari leit. Ég er með 17 mál­verk á sýn­ing­unni sem eru máluð með bland­aðri tækni á við­arplötur. Svo er ég með tvö víd­eó­verk,“ segir Hildur.

Hvers vegna Núllið?

„Mér var bent á að Núllið væri með „Open call“. Maður gat sent fyr­ir­spurn um að vera með sýn­ingu og ég sló til. Ég var með mína fyrstu einka­mynd­list­ar­sýn­ingu í nóv­em­ber í Ósló þar sem ég er búsett og mér fannst það bara vera eðli­legt að vera með næstu sýn­ingu í heima­land­inu. Núllið er líka mjög töff rými, hrátt og þar er „underground-fíl­ingur“ sem passar vel við mína list þar sem hún er frekar mikið pönk.“

Byrjaði að drekka 12 ára

Líf Hildar hefur ekki verið dans á rósum. Hún fór að finna fyrir van­líðan og þung­lyndi í æsku sem hún deyfði síðar með vímu­efnum. Hún greind­ist með ADHD í fyrra, en ADHD hefur haft mikil áhrif á líf hennar. „Ég var alltaf að týna öllu þegar ég var stelpa. Við bjuggum rétt hjá skól­anum og það hefði tekið mig um fimm mín­útur að ganga heim, en það tók mig stundum jafn­vel um klukku­tíma að labba heim af því að ég var alltaf að gleyma mér og var í eigin heimi. Ég man eftir að hafa setið í skól­anum og bara horft út um glugg­ann og vissi ekk­ert hvað var í gangi í skóla­stof­unni. Ég átti erfitt með ein­beit­ingu, það var erfitt að fylgj­ast með þegar talað var við mig og ég var alltaf komin eitt­hvert annað. Ég var alltaf ein­hvern veg­inn ekki alveg tengd.“

Hún er með talna­les­blindu sem hafði áhrif á námið og sjálfs­á­litið. „Ég hélt að það væri eitt­hvað að mér og ég var alltaf að heyra að ég væri ekki að standa mig nógu vel. Ég var mjög ung þegar það stimpl­að­ist inn í mig að mér fannst ég ekki vera nógu góð. Ég var samt að gera mitt besta, en það var ekki nógu gott. Maður brotn­aði niður og á end­anum gaf ég bara putt­ann í mennta­kerfið. Þetta var ömur­legt og ekki fyrir mig.“ 10 ára var hún farin að íhuga að svipta sig lífi.

Ég var 14 eða 15 ára þegar ég próf­aði að reykja kanna­bis í fyrsta skipti.

12 ára fékk hún sér fyrsta sopann og hún fór að reykja sama ár. „Loksins leið mér ekki illa. Ég gat náð að slökkva á öllum þessum vondu til­finn­ingum og gleyma mér í smá­stund og mér fannst það vera geggjað. Þetta var líka ógeðs­lega spenn­andi, örugg­lega af því að þetta var bannað, en þá var það extra spenn­andi. Ég var eftir þetta mikið að reyna að detta í það og stel­ast til að reykja. Ég var 14 eða 15 ára þegar ég próf­aði að reykja kanna­bis í fyrsta skipti og 16 eða 17 ára þegar ég próf­aði í fyrsta skipti örvandi efni. Ég fór út í neyslu af því að ég var með brotið sjálfs­á­lit og ég var að reyna ein­hvern veg­inn að kom­ast í gegnum þetta líf. Deyfa mig af því að mér leið ömur­lega. Ég fór í algjöran „rebel“-gír; kannski af því að ég fann mig ekki í skóla og námi. Ég var líka að stela úr búðum. Þetta var ein­hver spennu­fíkn býst ég við. Mikill óheið­ar­leiki getur fylgt aktívum alkó­hól­isma og maður var ekk­ert mikið að pæla í afleið­ingum gjörða sinna og var bara óheið­ar­legur alls staðar í líf­inu.

Mér fannst ég vera öðru­vísi en aðrir, sér­stak­lega á ung­lings­ár­unum, og varð algjör vand­ræðaung­lingur. Ég var algert fatafrík, var byrjuð að lita á mér hárið, var svo­lít­ill pönk­ari í mér og algjör „rebel“. Ég dýrk­aði að klæða mig upp; klæða mig í fríkuð föt. Ég end­aði uppi á geð­deild 19 ára og þaðan var ég send beint í með­ferð á Teigum. Ég var edrú í níu mán­uði eftir það. Ég pass­aði mig á fíkni­efnum eftir að ég datt síðan í það; ég var alltaf svo­lítið hrædd eftir þetta, hrædd við að missa vitið end­an­lega.“

Hún hóf hönn­un­ar­nám við Iðn­skól­ann í Reykja­vík þegar hún var um tví­tugt en hætti áður en fyrstu önn­inni var lokið. „Ég var aftur komin í neyslu og hélst ekk­ert í nám­inu.“

Ofskynjunarlyf

Hildur hafði alltaf gaman af að teikna og árið 2007, þegar hún var 25 ára, sótti hún um að kom­ast í nám við Lista­há­skóla Íslands og þar hóf hún nám 25 ára gömul árið 2007. Hún útskrif­að­ist svo með BA-próf í graf­ískri hönnun frá Lista­há­skóla Íslands árið 2010.

Það var erfitt að fá vinnu á þessum tíma. Hildur segir að hún og kær­asti hennar hafi verið orðin svo­lítið leið á Reykja­vík og langað til að prófa eitt­hvað nýtt. „Vinkona mín í Ósló sagð­ist geta reddað mér vinnu þar,“ segir Hildur og fluttu þau til Óslóar árið 2011 þar sem Hildur fór að vinna sem þjónn og bar­þjónn.

Lífið gekk sinn vana­gang og Hildur og kær­asti hennar eign­uð­ust tvær dætur. „Ég virki­lega reyndi að hafa stjórn á drykkj­unni eftir að ég varð mamma; í fyrsta sinn af ein­hverri alvöru. Ég komst að því að ég átti mjög erfitt með það, fyrir utan það að báðar stelp­urnar voru með maga­kveisu og grétu dögum saman í marga mán­uði. Eldri stelpan í þrjá mán­uði og sú yngri í fimm mán­uði. Ég fékk fæð­ing­ar­þung­lyndi og varð virki­lega veik.“ Hildur hefur verið á þung­lynd­is­lyfjum frá árinu 2016, en þá var yngri dóttirin eins árs.

Hildur hóf svo árið 2016 nám í mynd­skreyt­ingu (illustration) við Høyskolen Krist­i­ania og útskrif­að­ist árið 2018 og fékk verð­laun, Best innan fags­ins. „Þetta eru verð­laun sem kall­ast Gullspíran.“

Ég reyndi að forð­ast að fara á djam­mið, en ef það gerð­ist þá end­aði það alltaf með ósköpum.

Og hún fékk sér í glas. Of oft. Of mikið. Og and­leg van­líðan jókst. Þung­lyndi og kvíði.

„Þetta var svo hræði­legt. Ég reyndi að forð­ast að fara á djam­mið, en ef það gerð­ist þá end­aði það alltaf með ósköpum. Ég gat ekki meira árið 2017 og ákvað að þiggja hjálp og var edrú í þrjú ár, en svo féll ég í hitti­fyrra. Ég próf­aði þá hug­breyt­andi lyf – ofskynj­un­ar­lyf; gerði ein­hverja til­raun og það var kornið sem fyllti mæl­inn, sem varð til þess að öll spila­borg mín hrundi. Þetta var mjög hættu­leg til­raun sem hefði getað endað rosa­lega illa.“

Hún fór svo á geð­deild í hitti­fyrra. „Það sem bjarg­aði mér var að þiggja alla þá hjálp sem bauðst: Sál­fræð­ingar, lyf, AA-sam­tökin og 12-spora sam­tök. Bara allt. Tala við fólk. Tala við vini. Tala við vini sem hafa lent í svip­uðum hlutum. Vini sem hafa dílað við and­leg veik­indi. Það hjálp­aði mér mjög mikið.“

Drónar og vélmenni

Hildur og barns­faðir hennar skildu í fyrra­vor og hún seg­ist hafa ein­beitt sér að því að vinna í sjálfri sér and­lega og ein­beita sér að list­sköpun sinni. „Ég byrj­aði í nýrri vinnu í des­em­ber sem graf­ískur hönn­uður og mark­aðs­fræð­ingur hjá sprota­fyri­tæki sem heitir Makekit, sem fram­leiðir dróna og vél­menni fyrir börn. Fyr­ir­tækið ein­blínir á að kenna börnum að kóða og byggja dróna og vél­menni sjálf. Ég gekk í gegnum mjög erfitt tíma­bil and­lega fyrir stuttu og þurfti að horfa inn á við með mikla hrein­skilni að leið­ar­ljósi og fór að sjá hvernig ég hef leitað í utan­að­kom­andi aðstæður að innri friði og þaðan kom lyk­il­inn að efni sýn­ing­ar­innar.“

Hvað er fram undan – bæði í lífi og starfi?

„Ég held áfram í nýju vinn­unni minni og að skapa list þegar tími gefst, en ég er ein­stæð, tveggja barna móðir þar sem ég er ein með tvær dætur mínar aðra hverja viku, svo það er nóg að gera. Ég stefni á að koma til Íslands í sumar og njóta sum­ars­ins með fjöl­skyldu og vinum. Annars er líf mitt mjög opið og ég er bara spennt fyrir því að sjá hvað ger­ist næst. Lífið er alltaf að koma á óvart.“

Dróna- og vél­menna­tækni er spenn­andi og skap­andi.

Hverjir eru draum­arnir varð­andi fram­tíð­ina?

„Draumur minn er að lifa af list­inni. Ég veit að það er ekki auð­velt verk­efni, en ég trúi því að þegar maður fylgir hjart­anu þá sé maður að gera rétt og auð­vitað þegar maður er að gera það sem maður elskar, þá verður það skemmti­legt þótt það sé ekki alltaf auð­velt. Kannski get ég blandað saman list­inni og vinn­unni. Dróna- og vél­menna­tækni er spenn­andi og skap­andi og það gæti orðið girni­leg list að blanda þessu saman. Ég er mjög opin fyrir breyt­ingum og tek öllum tæki­færum opnum örmum. Ég er mjög spennt að sýna á Íslandi og vona að ég verði með aðra sýn­ingu hér sem allra fyrst. Svo er mark­miðið að halda áfram, vera jákvæð, þakk­lát og leyfa ljós­inu að skína úr hjart­anu mínu hvert sem það vill fara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ