Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Björn Jón: Ríkisstjórnin getur ekki tekið á vandanum af pólitískum ástæðum og eyðir um efni fram

Björn Jón: Ríkisstjórnin getur ekki tekið á vandanum af pólitískum ástæðum og eyðir um efni fram
Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur.

„Um þessar mundir mælir Hag­stofan verð­bólgu 7,2% og vextir Seðla­bank­ans voru á dög­unum hækk­aðir í 3,75%. Gylfi Zoëga hag­fræði­pró­fessor bendir á í nýjasta hefti Vís­bend­ingar að ekki dugi að beita stjórn­tækjum Seðla­bank­ans einum, sam­hliða þurfi aðilar vinnu­mark­að­ar­ins að koma sér saman um hóf­legar hækk­anir launa og þá verði að auka aðhald í rík­is­fjár­málum,“ segir sagn­fræð­ing­ur­inn Björn Jón Bragason í pistli á vef­síð­unni DV.

Bætir við:

Gylfi Zoega

„Gylfi segir enn­fremur að skortur á sam­hæf­ingu og sam­stöðu rík­is­fjár­mála og pen­inga­stefnu muni að lík­indum hafa í för með sér að vextir Seðla­bank­ans hækki enn meira en ella. Það er nefni­lega svo að í umræðum um efna­hags­mál er um of ein­blínt á Seðla­bank­ann og stjórn­tæki hans en alltof lít­ill gaumur gef­inn að stjórn rík­is­fjár­mála. Þar er þörf á aðhaldi eins og Gylfi nefnir; opin­ber útgjöld fara hratt vax­andi en skatt­tekjur aukast ekki með sama hraða. Afleið­ingin er við­var­andi halla­rekstur.“

Samkvæmt orðum Björns Jóns nema „heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs rúmum 872 millj­örðum sam­kvæmt rík­is­reikn­ingi 2019. Sú tala er komin upp í 955 millj­arða í ár. Heild­ar­út­gjöld hafa á sama tíma vaxið úr 913 millj­örðum í 1.124 millj­arða skv. fjár­laga­frum­varpi þessa árs. Þá er sam­kvæmt nýrri fjár­mála­á­ætlun gert ráð fyrir áfram­hald­andi halla­rekstri rík­is­sjóðs næstu árin en einnig hækk­andi opin­berum útgjöldum.“

Björn Jón nefnir einnig að „ef horft er til ríkis og sveit­ar­fé­laga sam­tals er áætlað að nafn­virði heild­ar­út­gjalda fari úr 1.670 millj­örðum 2023 í 1.940 millj­arða 2027. Í skýrslu fjár­mála­ráðs sem kom út í síð­asta mán­uði er meðal ann­ars gagn­rýnt að öllum tekjum sé eytt jafn­harðan. Tekj­urnar séu sveiflu­kenndar og útgjöld sveiflu­kennd að sama skapi. Því geti reynst erfitt að hemja útgjöldin þegar gefur á bát­inn og af þessu hafi hlot­ist þrá­lát skulda­söfnun.“

Hann segir að „fjár­mála­ráð bendir á að tekju­auki hins opin­bera vegna tíma­bund­ins hag­vaxtar sé í reynd bara „froða sem ekki ætti að nýta til var­an­legra ráð­staf­ana í aukn­ingu útgjalda.“ Þá hafi stundum verið stigið „á afl­gjöf­ina þegar þörf var á að stíga á brems­una í ljósi hag­sveifl­unnar á þeim tíma“ eins og það er orðað.“

Björn Jón segir að „slíkt ynni gegn stöð­ug­leika og sýndi þörf­ina á festu og aga við stjórn opin­berra fjár­mála. Þegar þannig hátti til að veð­ur­spár ræt­ist sjaldn­ast þurfi að huga að ríkj­andi vind­áttum. Útgjöld ættu því aðeins að aukast í takti við lang­tíma­leitni vaxtar í efna­hags­líf­inu. Þannig mætti koma í veg fyrir að stjórn­völd falli ítrekað í þá freistni að eyða jafn­óðum því sem kemur í kass­ann. Þá bendir fjár­mála­ráð líka á þá hættu sem getur skap­ast nú um stundir þegar tekjur hins opin­bera aukast tíma­bundið vegna verð­bólgu en þetta kallar ráðið „verð­bólgu­froðu.“

Fjár­mála­ráð gerir verð­bólgu­spána að umtals­efni en í áætl­unum stjórn­valda er gert ráð fyrir að hún verði nær 6% á þessu ári en fari síðan lækk­andi og verði um 2,5% þegar á árinu 2025.

Björn Jón færir í tal að „ráðið bendir á að þetta gangi þá og því aðeins upp að nið­ur­staða kjara­samn­inga verði í sam­ræmi við und­ir­liggj­andi stöðu hag­kerf­is­ins. Hér reyni enn og aftur á sam­spil pen­inga­mála og fjár­mála hins opin­bera og svo vitnað sé orð­rétt til skýrslu fjár­mála­ráðs: „Nægi tekjur hins opin­bera ekki fyrir ráð­gerðum útgjöldum þarf að hag­ræða í rekstri, draga úr útgjöldum eða afla auk­inna tekna með skatt­heimtu.“

Við blasir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur getur ekki tekið á vand­anum af póli­tískum ástæðum. Sjálf­stæð­is­menn hafa fengið því fram­gengt að skattar verði ekki hækk­aðir að neinu marki en á móti fá Fram­sókn­ar­flokkur og sér í lagi Vinstri grænir að auka útgjöld.“

Björn Jón er ansi ákveð­inn þegar hann segir hreint út að „núver­andi rík­is­stjórn­ar­mynstur gengur nefni­lega ekki upp: stjórn getur ekki verið hvort tveggja í senn til hægri og vinstri í efna­hags­málum; áherslan verður að vera í aðra hvora átt­ina. Nið­ur­staða flokk­anna þriggja hefur ein­fald­lega orðið sú að gef­ast upp gagn­vart bákn­inu, eyða um efni fram og velta vand­anum yfir á kom­andi kyn­slóðir.“

Kemur fram í skrifum Björns Jóns að í „skýrslu sinni frá því í des­em­ber í fyrra benti fjár­mála­ráð á að ef ekki væri til staðar form­fest umgjörð hefðu rík­is­fjár­málin til­hneig­ingu til að fær­ast til verri vegar en ella. Það birt­ist þá í þrá­látum halla­rekstri og skulda­söfnun yfir langan tíma. Rann­sóknir hefðu sýnt að veik­leiki í fjár­mála­stjórnun og skekktir hvatar á vett­vangi stjórn­mála hafi hér mest um að segja. Þetta lýsi sér meðal ann­ars með því að stjórn­mála­menn horfi til of skamms tíma og eyði fjár­munum umfram það sem aflað er. Þannig sé frestað að taka á und­ir­liggj­andi vanda­málum.“

Einnig að „þá hefur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn bent á það hvernig miklar sveiflur í opin­berum útgjöldum hafi tor­veldað stjórn opin­berra fjár­mála. Fjár­mála­ráð orð­aði það svo í skýrslu sinni í des­em­ber síð­ast­liðnum að stigið væri á bens­ínið og brems­una á víxl — en ekki nóg með það heldur væri stigið á bens­ínið þegar þörf væri að stíga á brems­una í ljósi hag­sveifl­unnar. Þetta hefði allt unnið gegn stöð­ug­leika og sýndi þörf­ina á festu og aga við stjórn opin­berra fjár­mála. Kjarni máls­ins er nefni­lega sá að frá því fyrir far­ald­ur­inn hefur verið við­var­andi halli á rekstri rík­is­sjóðs og við blasir áfram­hald­andi halla­rekstur og skulda­söfnun. Rík­is­stjórnin ætlar sér ber­sýni­lega ekki að taka á vand­anum og kyndir þar með undir verð­bólgu­bálið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ