Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar safnar undirskriftum fyrir flóttakonur: „Þær bjuggu í pappa­kassa á götunni“

Gunnar safnar undirskriftum fyrir flóttakonur: „Þær bjuggu í pappa­kassa á götunni“

Gunnar Wa­age safnar nú á und­ir­skrift­ar­lista fyrir tvær sómalskar flótta­konur sem senda á  úr landi.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu.

Þær Fatma Hassan Mohamoud og Nadifa Mohamed eru á þrí­tugs­aldri og koma frá Moga­dishu; höfuð­borg Sómalíu.

Nadifa, til vinstri, og Fatma, til hægri

Stöll­urnar sóttu um al­þjóð­lega vernd hér á landi; en vegna þess að þær fengu áður vernd í Grikk­landi hafa um­sóknir þeirra ekki ennþá fengið efnis­lega með­ferð:

„Þessar konur sem hér um ræðir, Fatma og Natifa, bjuggu á göt­unni í Grikk­landi við hungur og kulda og miklar hættur frá um­hverf­inu í formi skipu­lagðrar glæpa­starfs­semi, þ.m.t. vændis og mansals,“ segir á síðu undir­skrifta­söfn­un­ar­innar.

Nadifa er 31 árs og kom hún til Ís­lands í júní í fyrra; starf­aði áður í Írak og Jemen við ræst­ingar.

Fatma er 22 ára og kom einnig hingað í júní í fyrra.

Báðar kon­urnar upp­lifðu hræði­legar að­stæður í Grikk­landi þar sem þær bjuggu á göt­unni í pappa­kassa.

Gunnar Waage kynnt­ist Fötmu og Nadifu í gegnum ­konu sína, Hodman Omar Heidar, sem er frá Sómalíu og hlaut al­þjóð­lega vernd á Ís­landi fyrir einu og hálfu ári.

Gunnar seg­ist vita um aðrar sómalskar konur sem vísa á úr landi á næst­unni:

„Þetta er náttúr­lega síð­asta úr­ræðið að fara þessa leið. Af því að þú vilt ekki gera svona mál að fjöl­miðla­máli fyrr en allt er reynt. Þegar maður er búinn að fara nokkra hringi í gegnum þetta um­sóknar­ferli og síðan á­frýj­unar­ferlið hjá kæru­nefnd­inni, þá fer maður að átta sig á því hvað þessi pró­sess er brot­inn í raun og veru. Þegar fólk fær nei­kvæð svör þá er það alveg með ó­lík­indum að lesa á­stæð­urnar,“ segir hann.

Gunnar segir Út­lend­inga­stofnun hafa gefið þær á­stæður fyrir brott­vís­unum fólks frá Sómalíu, að landið sé ekki hættu­legt land; þar sé fólk öruggt svo lengi sem það haldi sig innan laga­ramma sjar­ía­laga sem eru víða í gildi í Sómalíu.

Mikill póli­tískur ó­stöðug­leiki er hins vegar í Sómalíu; hlutar lands­ins eru undir stjórn íslam­ista sam­tak­anna Al-Shaba­ab:

„Það eru náttúr­lega ís­lensk lög sem gilda á Ís­landi og síðan al­þjóða­lög. Þetta fólk er að flýja sjaría­lögin og sér­stak­lega kon­urnar. Þannig það er alveg ó­trú­legt að lesa svona lagað í neitun frá Út­lend­inga­stofnun. Maður bara trúir varla sínum eigin augum. Það er ekki orðum aukið að þessar stúlkur eru með hræði­lega á­falla­sögu. Þetta eru í raun­inni okkar veik­ustu og veik­byggð­ustu um­sækj­endur,“ segir Gunnar og nefnir að önnur kvenn­anna eigi börn sem hún hafi orðið við­skila við í Eþíópíu; en henni var neitað um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu í Grikk­landi.

Eins og frægt er var nýverið greint frá því að til standi að senda um 300 hælis­leit­endur úr landi á næst­unni.

Gunnar er gagn­rýn­inn á Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra og seg­ist fyrir sitt leyti ekki sjá hvernig Katrín ætlar að kom­ast út úr þessu máli póli­tískt séð:

Katrín Jak­obs­dóttir

„Í gegnum tvennar þing­kosn­ingar þá var ég með kosn­inga­vakt í sam­bandi við flótta­manna­mál og í báðum til­fellum komu Vinstri grænir út með fullt hús stiga. Meira að segja fékk ég gögnin send beint frá Katrínu sjálfri um sam­þykktir Vinstri grænna og þeirra stefna var lang­sam­lega sterk­ust af öllum flokk­unum í mál­efnum flótta­fólks. Ég skil ekki hvernig hún getur síðan látið sam­starfs­flokki eftir þetta ráðu­neyti og látið þetta fara svona. Ég bara veit ekki hvernig hún ætlar að lifa þetta af póli­tísk ef þetta á að vera svona, við getum ekki farið svona með fólk,“ segir Gunnar.

Gunnar segir að lög­reglan sé nú þegar byrjuð að undir­búa brott­vísun þeirra Fötmu og Nadifu og bætir við að yfir­völd séu að flýta sér að undir­búa brott­vís­un­ina; því senn líður að því að kon­urnar séu búnar að vera á Ís­landi í eitt ár:

„Lög­reglan hringdi tví­vegis í morgun í aðra þeirra þannig að það er verið að undir­búa þetta að senda þær úr landi. Alla­vega annað málið er komið til lög­reglu og hitt er að fara ef­laust líka. Ef það líður ár þá ber þeim skylda til þess að taka málið til efnis­legrar með­ferðar.“

Eðlilega kvíða Fatma og Nadifa þess að verða sendar aftur til Grikk­lands; enda hefur í­trekað verið greint frá ó­mann­úð­legum að­stæðum flótta­manna þar í landi:

„Þær bjuggu í pappa­kassa á göt­unni í drullu og drasli og við­bjóði og það er bara það sem bíður þeirra ef þær eru sendar aftur þarna út í ó­mann­úð­legar að­stæður, það er bara ekk­ert annað,“ segir Gunnar, sem von­ast til þess að undir­skrifta­söfn­unin muni vekja at­hygli á mál­inu; en einnig hefur verið ritað erindi til for­seta Ís­lands þar sem málið er sagt þola enga bið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ