Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Reynir Hauksson flamenco-gítarleikari: „Ég er alger sökker fyrir rómantík“

Reynir Hauksson flamenco-gítarleikari: „Ég er alger sökker fyrir rómantík“
Reynir Hauksson

„Flamenco er eins og heill heimur út af fyrir sig. Flamenco er ekki einn stíll heldur er þetta regn­hlíf­ar­hug­tak yfir marga stíla sem eiga samt margt sam­eig­in­legt. Það er mik­ill spuni í flamenco þannig að maður er svo­lítið mikið að búa til lögin á staðnum. Í flæð­inu. Það er mjög gaman. Flamenco er krefj­andi tón­list þannig að maður þarf að vera á tánum þegar maður flytur hana. Og hún er ofsa­lega dínamísk. Hún er hávær og hljóð, það er mik­ill hiti í henni og mikil hreyf­ing og ryþm­arnir, takt­arnir, eru eins og setn­ing. Þeir eru ekki bara flöt slög. Flamenco dekkar allan til­finn­inga­skal­ann,“ segir Reynir Hauksson gít­ar­leik­ari sem hefur ein­beitt sér að flamenco-tón­list á Spáni þar sem hann hefur búið und­an­farin ár. Á næst­unni kemur hann fram á nokkrum tón­leikum hér á landi ásamt spænska gít­ar­leik­ar­anum Jerónimo Maya og munu þeir meðal ann­ars einmitt flytja flamenco-tón­list. „Með okkur verða dans­ar­inn Daniel Caballero og söngv­ar­inn Miguel Jimenez.“

Hvar verða tón­leik­arnir? Mál og menn­ing 1. júní. Hvann­eyri Pub 2. júní. Tjarn­ar­bíó 3. og 4. júní. Svo er það flamenco-dans­nám­skeið í Dans­verk­stæð­inu 3. og 4. júní.

„Þetta verður svo­lít­ill bræð­ingur. Við erum með nokkur íslensk lög sem við erum búnir að snara yfir í flamenco-bún­ing eins og til dæmis Vísur Vatns­enda Rósu. Svo kem ég til með að spila líka ein­leiks­stykki sem ég hef samið og Jerónimo spilar líka sóló á gítar. Þannig að þetta verður sam­bland af hefð­bundnu flamenco með dansi eins og maður sér á Spáni og svo þessi nýj­ung sem við erum að vinna með, sem er þessi bræð­ingur á íslenskri tón­list og flamenco.

Flamenco

Reynir ólst upp á Hvann­eyri. Píanó stóð í stof­unni á æsku­heim­il­inu og lærði hann á píanó sem og fimm systk­ini hans. Svo fór hann að læra á gítar; fyrst og fremst raf­magns­gítar. Hann spil­aði mikið þung­arokk. „Þung­arokkið er ennþá í hjart­anu mínu.“ Hann fór síðar í form­legt tón­list­ar­nám og fór þá í FÍH og tók tvær brautir þar. „Bæði klassík og djass.“ Svo flutti hann til Noregs þar sem hann bjó í eitt og hálft ár og spil­aði og kenndi í tón­list­ar­skóla?

„Svo kveikti ég á per­unni með flamenco-tón­list og átt­aði mig á því að flamenco-tón­list inni­heldur nokkurn veg­inn allt það sem ég fíla í tón­list: Ryþmann, þessa ákefð, tón­ana og þessa túlkun. Þetta kemur allt heim og saman í flamenco fyrir mér þannig að ég pakk­aði niður í tösku og flutti til Spánar og fór að læra flamenco; ég fór gagn­gert til að læra flamenco því ef maður vill læra flamenco þá verður maður að fara til Spánar til þess að læra það og helst þarf maður að vera í Andalúsíu. Þar er lang­mest um þetta. Þar er flamenco ein­hvern veg­inn út um allt og til­heyrir bara þeirra dag­lega amstri í raun og veru.“

Þetta var fyrir sex árum.

Ég lærði spænsku í raun og veru til þess að geta lært flamenco.

„Ég kunni ekki spænsku áður en ég flutti út. Ekki neitt. Ég lærði spænsku í raun og veru til þess að geta lært flamenco. Þeir tala ekki ensku þarna.“

Hann bjó í Granada. Sjálfri ævin­týra­borg­inni í Andalúsíu þar sem kon­ungs­hjónin Ferdin­and og Isabel, „los reyes católicos“, réðu ríkjum; þau unnu Spán frá Márum með því að leggja undir sig Granada 1492.

„Borgin er ótrú­lega fal­leg og rosa­lega sögu­fræg. Það er mikil saga í þess­ari borg. Fyrir mér var þetta eins og að ganga um á safni sem samt iðaði af lífi á sama tíma. Þetta var merki­legt til­finn­ing.“

Eins og vertíð

Það var einmitt í Granada sem Íslend­ing­ur­inn kynnt­ist Jerónimo Maya gít­ar­leik­ara. Sígauna. „Hann var þar mikið að spila og við urðum mjög góðir vinir. Hann tók mig að sér sem lær­ling; ég var eini lær­ling­ur­inn hans. Hann er senni­lega fær­asti flamenco-gít­ar­leik­ari sam­tím­ans. Það er eig­in­lega bara öruggt. Það eru allir á því. Hann var undra­barn en hann byrj­aði að vinna sem gít­ar­leik­ari þegar hann var 10 ára gam­all; sem atvinnu­maður. Og var með debut tón­leika í Carnegie Hall í Banda­ríkj­unum þegar hann var 12 ára. Hann er búinn að vera að útsetja þessi íslensku lög með mér yfir í flamenco. Þannig að við erum að blanda saman menn­ing­ar­heimi mínum – þessum íslenska og þjóð­lögum okkar – og svo líka menn­ing­ar­heimi hans sem er flamenco. Þannig erum við að mæt­ast.“

Svo skall heims­far­ald­ur­inn á og Reynir þurfti eins og fleiri að vera inni­lok­aður meira og minna í nokkra mán­uði á heim­ili sínu.

Ég var inni­lok­aður í þrjá mán­uði og ég gat ekk­ert samið tón­list á þessum tíma.

„Ég gat ekki farið strax til Íslands þegar Covid skall á af því að þá bjó ég með stelpu í Granada. Ég gat ekki skilið hana eftir því ég vissi ekki hvað myndi ger­ast. Þannig að ég var inni­lok­aður í þrjá mán­uði og ég gat ekk­ert samið tón­list á þessum tíma. Það vant­aði að fara út og opna hug­ann. Maður sat bara inni og dag­ur­inn bara leið. Ég gat spilað á gít­ar­inn en ég gat ekki búið til neitt nýtt. Það var engin frum­sköpun. Þá tók ég eftir hvað það er mik­il­vægt að fara út og opna augun og eyrun.

Svo kom glufa í Covid og ég kom heim til Íslands og var með fullt af tón­leikum og það var mjög næs. Svo kom haustið og þá kom ný bylgja og þá fór ég að vinna í slát­ur­húsi á Sauð­ár­króki. Fór á ver­tíð.“

Ef maður ætlar að vera tón­list­ar­maður á Íslandi þá þarf maður að vera frekar fjöl­hæfur.

Jú, hann er eins og á ver­tíð. Alltaf hreint. Flutti til Madrid í fyrra­haust og seg­ist síðan hafa komið fimm sinnum til Íslands. Nú síð­asta dag maí­mán­aðar flaug hann einmitt til lands­ins með félögum sínum vegna tón­leik­anna sem fram undan eru. Svo er hann í gít­ar­tríói með Birni Thors gít­ar­leik­ara. „Þar spilum við djass. Gypsy-djass. Svo er ég líka í salsa­bandi á Íslandi og verðum við með stóra tón­leika í Iðnó 19. ágúst; salsa­ball. Svo er það hitt og þetta. Ef maður ætlar að vera tón­list­ar­maður á Íslandi þá þarf maður að vera frekar fjöl­hæfur. Geta gengið inn í hitt og þetta. Ég spila líka mikið undir söng; mér finnst það vera mjög gaman. Ef það dettur inn gigg á Íslandi þá fer ég þangað.“

Jú, hann er kom­inn heim. „Þeir verða í viku á Íslandi, strák­arnir, og ég verð áfram á Íslandi. Að lág­marki í allt sumar. Það er nóg að gera í sumar. Ég tími ekki að sleppa sumr­inu á Íslandi. Ég vil vera á Íslandi á sumrin. Mér finnst fínt að sleppa við slabbið og fár­viðrið; ég er feg­inn að vera sem minnst í því og þá er fínt að vera á Spáni.“

(Mynd: Kolla Jóns.)

Hann flakkar. Er svo­lítið eins og sígauni.

„Þegar ég fæ frí þá finnst mér mjög næs að ferð­ast ekki. Þá er fínt að vera á sama staðnum og slappa aðeins af.“

Hann seg­ist vera mik­ill Íslend­ingur í sér. „Ég sakna alltaf Íslands. Þetta er landið mitt. Mér líður hvergi betur í heim­inum en á Íslandi. Ég held að það erf­ið­asta við að vera á Spáni sé heim­þráin.“

Björt sum­ar­kvöld og dirrindí lóunnar.

Og fólkið.

„Fyrst og fremst fólkið mitt sem ég elska. Að vera með því.“

Ástin

Ástin. Þessi ást.

Hann tal­aði um sam­býl­is­konu sína í Granada við upp­haf heims­far­ald­urs­ins. Þau eru ekki lengur saman. „Það eru nokkrar konur síðan þá.“

Er gít­ar­leik­ar­inn Casanova í sér? Don Juan?

„Já, svo­lítið. Það má segja það. Það hefur reynst mér erfitt að vera í föstu sam­bandi því það er svo mikið flakk á mér. Þá er þetta svo­lítið snúið. Það erf­ið­asta við þetta flakk er að ég er alltaf að kveðja fólk. Og ég veit aldrei nákvæm­lega hvenær ég sé það aftur. Planið hjá mér nær ekki mjög langt fram í tím­ann. Ég er bók­aður kannski þrjá fjóra mán­uði fram í tím­ann en svo veit ég ekki hvernig þetta verður á næsta ári. Það gæti verið að ég komi aftur til Madrid í haust en kannski ekki fyrr en á næsta ári. Það verður svo­lítið mikið að gera á Íslandi og ég þarf að fylgja vinn­unni; þar sem hún er. Það er mikil ver­tíð­ar­vinna að vera í tón­list. Það erf­ið­asta við þetta er að vera alltaf að kveðja. Það er alltaf sökn­uður strax og ég fer frá Íslandi. Ég tala nú ekki um ef ég er með kær­ustu á Íslandi.“

Ég elska ást­ina og er kannski pínu ást­sjúkur ef maður getur orðað það svo­leiðis.

Hann seg­ist vera „alger sökker fyrir róm­an­tík. Ég fíla róm­an­tík. Ég elska ást­ina og er kannski pínu ást­sjúkur ef maður getur orðað það svo­leiðis. Ég er mik­ill róm­an­tíker. Og stundum er bara staður og stund ein­hvern veg­inn þannig.“

Hann er fljótur að ná sér eftir sam­bands­slit. „Ég er með mjög hraða brennslu í lík­am­anum og það er ómögu­legt fyrir mig að bæta á mig; ég þarf að stunda lík­ams­rækt til að halda mér í vigt. Þannig að ég er með hraða úrvinnslu í lík­am­anum og ég held ég sé líka með frekar hraða til­finn­inga­úr­vinnslu. Ég verð líka fljótt ást­fang­inn.“

Núna á hann íslenska kær­ustu.

Þetta er eitt það fal­leg­asta sem ein­hver hefur gert fyrir mig.

„Við hættum saman fyrr á árinu og ég fór út og hún kom út til þess að vinna mig aftur. Það var mjög fal­legt en hún kom fyr­ir­vara­laust; lét mig vita með tveggja daga fyr­ir­vara að hún kæmi en ég hafði ekki búist við að sjá hana aftur. Hún kom og náði mér aftur í Madrid. Mér finnst þetta mjög fal­legt; þetta er eitt það fal­leg­asta sem ein­hver hefur gert fyrir mig. Ég var til í að gefa þessu séns og svo náði hún að töfra mig aftur.“

Hvert er róm­an­tís­kasta lagið í huga hans sem við­ur­kennir að hann sé svo­lít­ill Casanova í sér? Don Juan.

Það er Drauma­landið.

Ó leyf mér þig að leiða,
til lands­ins fjalla heiða,
með sælu sumrin löng.
Þar angar blóma­breiða
Við blíðan fugla­söng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ