Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Stefán hreindýrabóndi vann við selveiðar: „Skipstjórinn á selveiðiskipinu var áður nasistaforingi“

Stefán hreindýrabóndi vann við selveiðar: „Skipstjórinn á selveiðiskipinu var áður nasistaforingi“
Stefán Hrafn Magn­ús­son hrein­dýra­bóndi í Isortoq á Græn­landi. Mynd: Reynir Traustason

Gestur sjó­ar­ans að þessu sinni er Stefán Hrafn Magn­ús­son. Stefán Hrafn fór til Græn­lands 15 ára að aldri og gerð­ist þar síðar hrein­dýra­bóndi í Isortoq. Hann hefur komið víða við og meðal ann­ars unnið með Sömum í Svíþjóð og Noregi, en þar stund­aði hann sel­veiðar í Austur–Íshafi hjá útgerð við Lofoten.

Fyrsta kynslóðin sem flytur til Reykjavíkur

Hvernig bar þetta til; að þú end­aðir á Græn­landi við hrein­dýra­ræktun?

Margir hafa ekki lengur bein tengsl við sveit­ina, eins og áður

„Ég hafði alltaf haft áhuga á því að vinna í nátt­úr­unni, eins og allt fólkið mitt og fjöl­skyldan mín sem hefur stundað land­búnað, afi minn og amma og margir Íslend­ingar. Þeir sem eru fæddir á þessum tíma, en ég er fæddur árið 1956, erum ábyggi­lega fyrsta kyn­slóðin sem fer til Reykja­víkur. Þannig að ég fór þá í sveit á sumrin, Vestur í Dalina. Nú hefur þetta breyst svo mikið, nú er komið svo mikið þétt­býli hérna í Reykja­vík. Þannig að margir hafa ekki lengur bein tengsl við sveit­ina, eins og áður. Þetta gerð­ist ein­hvern veg­inn af sjálfum sér að ég fór þessa leið í mínu lífi.“

Eftir bænda­skól­ann á Hvann­eyri árið 1975, fór Stefán á sjó með skip­inu Skála­felli HR20 í útgerð í Þor­láks­höfn. Stefán segir að þeir hafi verið þeir næst afla­hæstu á Íslandi. Þá var ekk­ert kvóta­kerfi og hann telur að þeir hafi fengið um það bil 700 tonn af þorski.

„Það var farið alveg hræði­lega illa með afl­ann. Það var verið að leggja netin í sjó­inn í jan­úar og febr­úar og gat komið bræla í þrjá daga og voru netin ennþá í sjónum. Við þurftum að draga netin og veiði­færin upp úr sjónum, en þá var þetta orðið eins og ann­ars flokks fiski­mjöl. Það er miklu betri stýr­ing á þessu í dag. Menn eru ekk­ert að veiða þegar veðrið er vont. Veð­ur­farið er líka allt annað í dag.“

Vorum við selveiðar sem eru bannaðar í dag

Bátarnir eru líka senni­lega betur búnir í dag fyrir slæm veður?

„Jú, þetta er allt annað. Í þá daga var þetta bara stórt skip, 100 tonna bátur.“

Stefán ákvað að fara í starfs­nám til Noregs til að læra hrein­dýra­ræktun. Þess á milli þegar hann átti frí, hafði hann um tvennt að velja. Vera í skóg­inum eða stunda fisk­veiðar/sjó­mennsku, en hann segir þetta hafi verið svokölluð ákvæð­is­vinna, þar sem menn reyndu að afla sér sem mestra tekna á sem stystum tíma. Svona líf­erni hent­aði vel fyrir náms­menn og eða ungt fólk sem ætl­aði sér að byggja hús eða koma sér upp sínum eigin rekstri. Í dag eru þetta bara tölv­urnar, þar sem pen­ing­ur­inn er, segir hann.

Ef sel­ur­inn er ekki veiddur, þá éta þeir upp fisk­inn. Selir geta borðað mik­inn um 6 kíló af fiski á viku

„Þegar ég var að læra hrein­dýra­ræktun og fékk frí inn á milli náms­ins, fór ég að vinna á sjónum hjá útgerð­inni Lofoten. Þeir voru með tvenns konar veiðar, ann­ars vegar sel­veiðar á vorin og voru þá með samn­ing við Rússland og hins vegar að toga rækjur í Barents­hafi. Sel­veið­arnar voru leyfðar þá, en þær eru bann­aðar í dag vegna mann­úð­legra ástæðna. Eig­in­lega þurfum við ekki á þessu að halda í dag í nútíma­sam­fé­lagi. En þetta er hluti af auð­linda­stjórnun, þannig að ef sel­ur­inn er ekki veiddur, þá éta þeir upp fisk­inn. Selir geta borðað um 6 kíló af fiski á viku.“

Þessar hefðir voru hafðar að leið­ar­ljósi hjá Brødrene Angelsen, Stefán segir að þeir hafi verið með ver­búðir við Lofoten, sem voru gamlar fornar ver­búðir. Í þessum fornu ver­búðum voru alls konar gömul verk­færi, sem höfðu fund­ist við upp­gröft og höfðu verið í eign ætt­ar­innar í langan tíma. Að fara að veiða í Íshafinu hafi þar að leið­andi verið hefð sem hægt væri að rekja aftur til 8. aldar.

Leitin að svarta víkingnum

„Eins og í sögu Berg­sveins Birg­is­sonar sem er að skrifa bók­ina Leitin að svarta vík­ingnum, kemur fram saga Geir­mundar helj­ar­skinns. Í sög­unni stundar Geir­mundur rost­unga­veiðar ásamt föður sínum Hjör kon­ungi við Rogaland. Hann gerði út vík­inga­skip eða knörr sem sigldu Norður fyrir Noreg og inn á Hvíta­hafið til þess að stunda verslun við þjóð­flokk­ana þar.

Hjör kon­ungur skildi þar eftir son sinn í tvö ár þar sem hann kynnt­ist kon­unni sinni. Fyrir átti hann konu af mongólskum ættum frá norð­ur­hér­uðum Rúss­lands og þess vegna var hann kall­aður svarti vík­ing­ur­inn. Ég set þetta í tengsl við hefð Norð­manna að stunda sel­veiðar í Austur-Íshafi, þeir voru með sér­samn­ing við Sov­ét­ríkin. Þeir máttu veiða sel í sov­éskri lög­sögu allt að 12 sjó­mílum nálægt Kap Kanin við Hvíta­hafið.

Við fórum í tvo leið­angra og við veiddum um 7.000 seli í þessum veiðum

Á þessum tíma var komin meiri tækni og skipin vél­knúin. Skipið var líka hannað þannig að skrokk­ur­inn var egg­laga, þannig að ef það kom hafís þá gat skipið lyfst upp á ísinn eða virkað eins og ísbrjótur. Þarna fórum við í apríl til þess að stunda veiðar. Við fórum í tvo leið­angra og við veiddum um 7.000 seli í þessum veiðum. Það hafa verið mikið sögur um það að sel­veiðar hafi verið mikið dýra­níð, en flestir sel­irnir sem voru veiddir voru skotnir og því var þetta skjótur dauð­dagi. Við fórum allir til Tromsø í nám hjá dýra­lækni og lærðum hvernig það væri best að aflífa seli. Ég sá aldrei að sel­ur­inn hefði liðið eitt­hvað fyrir það að vera drep­inn.

Skipstjórinn hafði verið í SS sveit Hitler‘s

Hann var í SS sveit Hitlers og hafði verið í umsátr­inu við Lenín­grad á sínum tíma í síð­ari heims­styrj­öld­inni

Við lentum í smá ævin­týri þarna. Við vorum búnir að veiða um 700 seli sem lágu á ísnum. Vorum að taka þá inn með víra­spili þegar mjög sterkur straumur rekur okkur inn fyrir Soví­et­ríkin. Þar sjáum við skip koma í átt­ina að okkur á fullum hraða. Við tókum öll verk­færin upp úr sjónum og þurftum að skilja eftir nokkur hund­ruð seli. Þeir koma nær og nær og byrja að blikka okkur með ljós­unum. Þeir spyrja okkur um stað­ar­á­kvörðun og við gátum gefið þeim upp hnitin. Þeir komu um borð og ræddu við okkur. Mér fannst það vera svo­lítið skringi­legt að stýri­mað­ur­inn hjá þeim var frá Kasakstan, landi sem er langt inn í landi og liggur ekki að sjó. Maður hefði ekki trúað því að maður sem fædd­ist svona langt frá sjó væri að vinna við þessa vinnu.

Þegar þeir komu að skip­inu tókum við eftir því að skip­stjór­inn okkar varð svo­lítið skelk­aður, en hann var kom­inn að sjö­tugs­aldur. Ástæðan fyrir þess­ari hræðslu var að hann hafði verið með­limur í SS sveit Hitlers og var í umsátr­inu við Lenín­grad á sínum tíma í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Á meðan að Rúss­arnir voru um borð faldi stýri­mað­ur­inn sig. Hann og bróðir hans sátu í stríðs­fang­elsi í Kaup­manna­höfn eftir stríð, en þeir lentu allir í þessu.

Það var áhuga­vert að kynn­ast þessu umhverfi. Sovéski sjó­her­inn lét okkur svo í friði, það sem eftir var. Þeir lágu bara þarna rétt hjá okkur og voru að spyrja okkur um rat­ar­inn.“

Hvernig var með þennan nas­ista­for­ingja, sem svo var orð­inn skip­stjóri á sel­veiði­skipi – það er svo­lítið lang­sótt?

Stefán talar um að það hafi verið fyr­ir­gefn­ing í okkar nor­ræna kerfi og það hafi verið voða­lega erfitt að dæma 21 árs gamlan mann þegar Evrópa var sund­ur­slitin og illa farin af átökum. Sumir fylgdu Hitler og aðrir ein­hverjum öðrum. Aðrir aðhyllt­ust bol­sé­visma.

Hann segir að þetta sé eins og í dag í Úkraínu, það eru Rússar sem eiga fjöl­skyldur í Úkraínu og Úkra­ínu­menn í Rúss­landi. „Og ef þú tekur flug­véla­iðnað Sovíét­veld­is­ins, þá voru stærstu flug­véla­verk­smiðj­urnar í Úkraínu.

Stríðs­rekstur snýst oft­ast bara um peng­inga, olíu­vinnslu, gas eða gull­námu. Þetta er alltaf út af pen­ingum, eig­in­girni og valda­græðgi

Þegar kemur upp á yfir­borðið eitt­hvað póli­tískt afl sem vill ein­hverja ákveðna stefnu, þá bitnar það alltaf á fólk­inu. Þegar þú ert ungur verður þú fyrir áhrifum þess og veist ekki hvar sann­leikskjarn­inn er. Ef þú fylgir sann­fær­ingu þinni og ferð eftir boð­orð­unum 10, eins og; þú skalt ekki deyða, þá er það ekki auð­velt á þessum tímum. Svo er ein­hver rík­is­stjórn sem skipar þér eða hvetur þig til að ganga í her­þjón­ustu til að deyða ein­hverja, ein­hvers staðar ann­ars staðar að því að þeir eru tengdir rík­is­stjórn­inni. Stríðs­rekstur snýst oft­ast bara um peng­inga, olíu­vinnslu, gas eða gull­námu. Þetta er alltaf út af pen­ingum, eig­in­girni og valda­græðgi.“

Svo var þetta búið og lífið hélt áfram

Þessi ungi maður hefur þá tekið sér þann pól í hæð­ina að snúa sér að borg­ar­legum háttum?

„Þeir fóru í fang­elsi og tóku út sína refs­ingu og einn nafn­kunnur Íslend­ingur sat með þeim. Ég ætla ekki að nefna hann á nafn,  en það hefur verið skrifuð bók um hann. Svo var þetta búið og lífið hélt áfram.

Þetta er eins og ungi Rússinn sem var tek­inn 21 árs gam­all fyrir stríðs­glæpi, en honum er att út þetta af stjórn­völdum. “

Selskinnið verðmætt og selspikið notað í snyrtivörur

Mig langar að vita hvað varð um sel­ina?

„Við sigldum til Tromsø og það var í fyrsta skiptið á ævinni sem ég sofn­aði uppi­stand­andi. Ég var búinn að vinna í þrjá sól­ar­hringa. Við lentum í þeirri stöðu að ísinn var dreifður og svo þjapp­að­ist ísinn saman og sel­irnir komu sér fyrir á ísnum og voru fastir upp á ísnum. Þá not­uðum við tæki­færið og fórum og skutum sel­ina og fláðum þá þar. Skinnið var hirt en kjöt­inu var hent. Svo var þessu staflað upp og settum við rot­varn­ar­efni hár­megin svo að skinnið yrði ekki gul­leitt.

Leiðin aftur til Tromsø tók sex tíma og ég stóð allan tím­ann eftir þetta dauð­þreyttur, en maður varð bara að taka þetta á sig.“

Þið skutuð sel­inn, var það almennt aðferðin?

„Já, nema þegar kópar voru teknir. Þá voru þeir rot­aðir með stál­kylfu með stálp­inna sem fór beint inn í heil­ann. “

Sumir talar um að sel­ur­inn sé með manns­augu?

„Nei, þú horfir bara á skrokk­inn. Maður verður að gera það, en ég myndi ekki gera þetta aftur í dag?“

Þú segir að kjöt­inu hafi verið hent, en hvað með spikið?

„Spikið var notað í snyrti­vörur. “

Vildi fá rétt svör við sjávarfalli en fékk alltaf vitlaus svör

Ég heyrði það út undan mér að þú hefðir sektað móður þína?

Stefán segir frá því þegar hann var 10 ára og staddur á Græn­landi, en móðir hans var búsett í Noregi á þessum tíma „Það kom oft fólk frá Íslandi í heim­sókn og mamma kom til mín á sumrin þegar hún var komin á eft­ir­laun og dvaldi þá allt sum­arið. Á Græn­landi eins og á Íslandi er 2,5 m fjara og fara flestallar sam­göng­urnar fram á sjó, eins og var á Vest­fjörðum í gamla daga.

Ef þú ætlar út í búð, þá verður þú gjörðu svo vel að fara um borð í bát og sigla og engir vegir, þeir eru bara í bæj­ar­kjörn­unum sem slíkum. Þú ert mjög háður því að vita sjáv­ar­föllin út af öruggi sjálf þíns og verð­mæti í bátnum. Það er mjög mik­il­vægt að hafa þetta á hreinu.

Þú þarft bara taka eftir því þegar það er bull­andi fjara næst þá horfir þú á klukk­una og lítur til sólar og svo fær­ist þetta um 45 mín­útur á hverjum sól­ar­hring

Ég spurði fólk sem ég mætti á förnum vegi oft út í þetta þegar ég vildi láta bát­inn minn liggja við ból. Þá spurði ég; er flóð eða fjara? Það er mjög auð­velt að vita þetta, en eng­inn var með rétt svar.

Það er mjög auð­velt að vita þetta, þú þarft bara taka eftir því þegar það er bull­andi fjara næst. Þú horfir þú á klukk­una og lítur til sólar og svo fær­ist þetta um 45 mín­útur á hverjum sól­ar­hring. Með þessum hætti getur þú alltaf vitað hvenær er flóð eða fjara.

Ég var orð­inn svo­lítið pirr­aður á því að fá aldrei rétt svör. Þess vegna ákvað ég að setja upp sektir fyrir þá sem gátu ekki svarað rétt. Ef þú veist ekki hvort að það er flóð eða fjara þá færðu, 300 danskar krónur í sekt. Svo var það einn dag­inn að ég spurði mömmu mína: jæja, er flóð eða fjara? Ég man ekki hvað hún sagði, en hún fékk alla­vega sekt. Henni fannst gaman af þessu og hló mikið og gerði svo upp við mig að lokum. Ef það voru starfs­menn sem vissu þetta ekki, þá var sektin dregin af laun­unum þeirra. Þú áttir bara að vita þetta!“

Stofn­aðir þú sjóð í kringum sekt­irnar?

„Ég held að þetta hafi bara farið í mat­ar­pen­ing og kom því öllum að gagni að lokum. Þetta var gert til þess að fá fólk til að læra og muna. Það verður að vera ein­hver teng­ing svo þetta fest­ist í fólki.“

Sér um dýrahjörð með 800 hreindýrum

Hvað stendur til hjá þér á næst­unni?

„Ég var að kaupa mér miða til Græn­lands og fer 14. júní og svo er ég með miða til baka að hausti 20. sept­em­ber. “

Hvað ertu með mörg dýr í ræktun hjá þér?

„Í dag er ég með í kringum 800 dýr í hjörð­inni. Veturnir hafa verið mjög erf­iðir und­an­farið út af lofts­lags­breyt­ingum. Við þurfum að fara að leggja drög að því ef þetta heldur svona áfram hvernig við getum hjálpað til við að fóðra dýrin.“

Veturinn kaldur þó svo að vera 3 breiddargráðum sunnar en Reykjavík

Hann fer yfir áhrif golfstraums­ins og útskýrir betur hvernig hann virkar t.d. á Græn­landi miðað við á Ísland.

„Við erum ekki í sama loft­lags­kerfi og á Íslandi. Ísland fær golfstraum­inn beint á sig. Miðað við að Suður – Grænland fær Labrador­straumkerfið, Austur- Græn­lands­straumkerfið og smá af Irmin­ger­straumnum sem er grein af golfstraumnum sem velgir örlítið vatnið. Veturnir eru kaldir, þó svo að við séum þremur breidd­argráðum sunnar en Reykja­vík í Suður- Græn­landi, en við erum á 61. gráðu.

Þá erum við með lofts­lag eins og fyrir Norðan Strandir svipað því sem er í kringum Grímsey. Með­al­úr­koman hjá okkur er um 1200 mm á ári sem kemur í formi snævar og svo getur komið, eins og kom upp úr 2000. Þá fór að rigna í jan­úar og svo frost ofan í það. Í þess konar veðr­áttu byrjar ung­viðið að deyja, því þau geta ekki krafsað sig niður. Svo er annað þegar þú ert með þennan kulda þá kom­ast dýrin ekki í þang. Snjó­skaflar mynd­ast eins og veggur fyrir fjör­unni.“

Ólýðræðisleg nefnd sett saman – engin hreindýraræktun á Íslandi

Ertu búinn að gefa upp á bát­inn að fá að vera með hrein­dýra­ræktun á Íslandi?

„Það eru alltaf ein­hverjir sem finna því til for­áttu. Við erum búin að sækja um það í fimm skipti að fá að rækta hrein­dýr, en það hefur aldrei feng­ist. Á Íslandi máttu gera til­raunir með allt, rækta þör­unga í glösum, flytja inn páfa­gauka, rækta naggrísa í búrum, flytja inn kan­ínur og hunda og margt annað. Að rækta hrein­dýr, er annað mál. Þó svo að það hafi verið upp­runa­lega hug­myndin að rækta hrein­dýr á 17. öld þegar hrein­dýrin voru flutt til Ísland í fyrstu. Það virð­ist búið að loka á þennan kafla í hug­ar­fari umhverfis- og nátt­úru­fræði­stofn­un­ar­innar. Það er búið að búa til reglu­kerfi sem gerir þetta ómögu­legt.

Ég tel það full­reynt að fá þessi leyfi

Það er verið að tala um hags­muni þeirra sem lifa af þeim á Aust­ur­landi, dýra­sjúk­dóma og mögu­leik­ana á riðu. Ef þú vaktar dýrin og þau skimuð fyrir sjúk­dómum, þá ætti þetta að vera í lagi. Þú getur farið með hest­ana í kringum landið. En um leið og þetta snýr að jórt­ur­dýrum, þá lítur þetta öðrum lög­málum. Þú mátt hafa sauð­kindur og hestur út um allt land, nema ekki hrein­dýr. Þau eiga bara að vera á Aust­fjörðum.

Í þróun dýra­lífs­ins eru alltaf breyt­ingar. Ísland er orðið allt annað en það var á 17. öld, en hins vegar tel ég það full­reynt að fá þessi leyfi. “

Hann seg­ist hafa rætt við Sigurðu Ingi sem sá um þessi mál. Ráð­herr­ann hafi sett saman nefnd, með leið­sögu­mönnum, skot­veiði­fé­lag­inu, nátt­úru­fræði­stofnun og fleiri. En hann segir að þarna sátu allir að passa upp á sína hags­muni og lýsir því að þetta hafi verið mjög ólýð­ræð­is­legt.

Þú heldur áfram hrein­dýra­rækt­inni á Græn­landi?

„Já, þangað til að ég dey og ég ætla ekki aftur í sel­veiðar. Þegar þú ert búinn að lifa á því að þurfa deyða dýr til við­ur­væris, þá með tím­anum ferðu að líta á þetta öðru­vísi augum. Ég hugsa það, að ef ég hefði lifað í mild­ara lofts­lagi, þá væri ég örugg­lega græn­metisæta.“

Hægt er að horfa á við­talið hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum