Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjármálaráðuneytið gagnrýnir Lilju: „Endurgreiðslur fara hækkandi í samkeppnislöndum“

Fjármálaráðuneytið gagnrýnir Lilju: „Endurgreiðslur fara hækkandi í samkeppnislöndum“
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Samsett mynd.

End­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar eru gagn­rýndar í bréfi til atvinnu­vega­nefndar af fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Í bréf­inu segir að frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur menn­ing­ar­ráð­herra sé ófjár­magnað og sam­ráð hafi skort við samn­ingu þess.

Lilja sagði í fram­sögu­ræðu sinni á Alþingi þar sem hún fjall­aði um breyt­ingar á lögum um tíma­bundnar end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á Íslandi að: „Mikill áhugi sé á þessum áformum rík­is­stjórn­ar­innar, bæði hér heima fyrir og ekki síður erlendis. Þannig bíða nokkur stór og áhuga­verð erlend verk­efni, sem reiðu­búin eru að hefja tökur á þessu ári, eftir form­legri ákvarð­ana­töku stjórn­valda og umræddri laga­breyt­ingu.“ Ráðherra sagði mikið til þess unnið að afgreiða frum­varpið sem lög frá Alþingi fyrir þing­lok á vor­þingi.

Lilja kynnti frum­varpið um miðjan maí. Frum­varpið felur í sér að hlut­fallið af kostn­aði við kvik­mynda­gerð hér­lendis sem ríkið end­ur­greiðir hækkar úr 25 pró­sentum í 35 og að verk­efnin séu stór í sniðum. Þar er gerð krafa um að fram­leiðslu­kostn­aður hér sé yfir 200 millj­ónir, töku­dagar hér að minnsta kosti 30 og starfs­fólkið að minnsta kosti 50.

Tillaga um að efla alþjóðlega samkeppnishæfi

Til­lög­urnar eru í sam­ræmi við þær áherslur sem fram koma í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar um að efla alþjóð­lega sam­keppn­is­hæft stuðn­ings­kerfi við fram­leiðslu kvik­mynda- og sjón­varps­efnis.

Jafn­framt er frum­varpið í sam­ræmi við áherslur og aðgerðir í kvik­mynda­stefnu fyrir Ísland til árs­ins 2030, sem gefin var út í októ­ber 2020.

Í frétt RÚV segir að Starfs­hópur hafi verið skip­aður til að vinna frum­varpið, en vegna þess að því hafi verið flýtt hafi það alfarið verið unnið í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, en ekki í því sam­starfi sem til hafi staðið.

Atvinnu­vega­nefnd Alþingis tekur málið fyrir á morgun og fær á fund til sín gesti frá Við­skipta­ráði og fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Í aðdrag­anda fund­ar­ins sendi ráðu­neytið nefnd­inni bréf þar sem bent er á „nokkra van­kanta á frum­varp­inu.“

Veikleikar í núverandi kerfi

„Þeim löndum fer sífellt fjölg­andi sem bjóða upp á sér­stakar end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar og hefur hlut­fall end­ur­greiðslu farið hækk­andi á und­an­förnum árum í helstu sam­keppn­is­löndum Íslands. Þannig er það víða komið upp í 35%, t.d. á Írlandi og Möltu. Skotland, Bretland og Kanada hafa einnig verið nefnd sem lönd sem við eigum í harðri sam­keppni við á þessu sviði,“ sagði ráð­herra í fram­sögu sinni og sagði mik­il­vægt að hækka hlut­fallið fyrir stærri verk­efni til að tryggja að Ísland verði áfram sam­keppn­is­hæft sem töku­staður kvik­mynda og sjón­varps­efnis. Það eflir inn­lenda menn­ingu og land­kynn­ingu sam­hliða því sem það eflir og styrkir íslenska kvik­mynda­iðn­að­inn og aðrar skap­andi greinar.

Í bréfi til atvinnu­vega­nefndar kemur meðal ann­ars fram að frum­varpið sé ófjár­magnað, bæði á yfir­stand­andi ári og á tíma fjög­urra ára fjár­mála­á­ætl­unar og engar fjár­heim­ildir til staðar til að mæta því.

Þótt bent sé á það í frum­varp­inu að í fjár­mála­á­ætlun hækki fjár­heim­ildin um 300 millj­ónir var­an­lega þá sé það til að bregð­ast við veik­leikum í núver­andi kerfi, en dekki ekki fyr­ir­hug­aða hækkun á end­ur­greiðslu­hlut­fall­inu.

Ráðu­neytið bendir einnig á að það hafi aðeins fengið þrjá daga til að fara yfir frum­varpið, en yfir­leitt sé gert ráð fyrir tveimur vikum í slíkt verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ