Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Vítalía er hætt á öllum samfélagsmiðlunum: „Þetta er spill­ing og ekk­ert annað“

Vítalía Lazareva
Vítalía Lazareva Mynd: Instagram-skjáskot

Vítalía Lazareva er hætt á öllum samskipta­forritum. Ekki tilbúin að segja ástæðuna.

Vítalía Lazareva komst í fréttirnar í fyrra en þá sagði hún frá ástar­sambandi sínu við Arnar Grant, líkams­ræktar­frömuð, sem þá var kvæntur. Það sem vakti enn meiri athygli var frásögn hennar af kynferðis­brotum sem hún varð fyrir af hendi vinahópi Arnars, í heita­potti í sumar­bústað eins þeirra í október síðastliðnum.

Sjá einnig: Vítalía með nýjar uppljóstranir í sumar­bústaðar­málinu: „Þórður Már braut á mér manna mest“

Þá sagði hún einnig frá því á Twitter í síðustu viku að hún ætti margt að þakka stuðningi Eggerts Þórs Krist­óferssonar, forstjóra Festis hf. en fréttir höfðu þá borist af skyndi­legum starfs­lokum hans. Samkvæmt heimildum Mannlífs var það meðal annars fyrir tilstilli hlut­hafanna Þórðar Más Jóhannessonar og Hreggviðs Jónssonar að hann var látinn fjúka. Sagði Vítalía í færslunni að Eggert hefði hlustað á sig og stutt sig í málinu. „Einn af þeim fáu mönn­um sem talaði við mig án þess að þekkja mig, hlustaði og gaf mér tæki­færi á að segja mína hlið þegar ÞMJ var bú­inn að leggja allt aðra sögu á borðið hjá stjórn­inni. Ég á Eggerti mikið að þakka og ég vona að hann viti það. Þetta er spill­ing og ekk­ert annað,“ ritaði Vítalía á miðilinn.

Fréttin uppfærð

Þegar frétt þessi birtist í dag var haft eftir mbl.is að færsla Vítalíu hefði verið gagnrýnd af lesendum en það ku ekki vera rétt samkvæmt Vítalíu sem sagði í samtali við Mannlíf að hún hefði fengið afar jákvæð viðbrögð við færslunni. Sagði hún að fólk hafi mært Eggert í hástert í athugasemdunum.

Þá sagði Vítalía Mannlífi aukreitis að hún væri hætt á öllum samfélags­miðlunum, Facebook, Instagram og Twitter. Aðspurð hvort hún hefði fengið nóg af þeim neitaði Vítalía því. Sagði hún ástæðurnar aðrar en vildi ekki tíunda þær frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið