Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fangelsi – þyngsti dómur sem Íslendingur hefur hlotið

Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fangelsi – þyngsti dómur sem Íslendingur hefur hlotið
Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.
Magga og Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Aðstand­end­ur ís­lenskr­ar konu sem hlaut 37 ára fang­els­is­dóm í Banda­ríkj­un­um fyr­ir tvö banka­rán settu af stað söfn­un árið 2016, þegar hún var 26 ára svo hægt væri að kanna mögu­leika á end­urupp­töku máls­ins fyr­ir banda­rísk­um dóms­stól­um. Dóm­ur­inn er sá þyngsti sem Íslend­ing­ur hef­ur hlotið, svo vitað sé. DV fjall­aði um málið fyrst miðla hér á landi, en Auður Ösp, blaða­maður tók við­tal við Söndru á þeim tíma. Í þessum flokk, bak­sýn­is­spegli er unnið út frá heim­ildum úr málum sem áttu sér stað í for­tíð­inni. Í þessu erf­iða máli skal tekið fram að allar heim­ildir eru unnar út frá opin­berum heim­ildum. DV fjall­aði um málið fyrst árið 2016 og vekur Mannlíf athygli á því út frá þeim heim­ildum.

Ákærð vegna tveggja bankarána

Sandra Sigrún var 24 ára gömul þegar dóm­ur­inn féll í hennar máli árið 2014. Sandra var ákærð fyrir að hafa rænt tvo banka í Virgínu­ríki árið 2013. Einnig var hún ákærð fyr­ir rán, sam­ráð um að fremja rán, notk­un skot­vopna í glæp­sam­leg­um til­gangi og skot­vopna­eign í ólög­leg­um til­gangi, þrátt fyr­ir að hafa ekki verið með vopn á sér.

Dómarinn var varla búinn að sleppa orð­unum þegar Sandra Sigrún hrynur niður. Hún grætur og öskrar að sögn móður hennar í sam­tali við DV. Lög­reglu­maður sparkar í hana og skipar henni að standa á fætur. Magga hleypur að þeim og segir honum að hann sparki ekki í barnið hennar. Hann lítur á hana og segir blákalt: „She´s mine.“ Hún er fangi og þar með eign rík­is­ins, segir í grein sem Auður Ösp tók saman á DV.

„Að horfa upp á hana þarna er það það versta og ógeðs­leg­asta sem ég hef nokkurn tím­ann upp­lifað í líf­inu,“ segir Margrét þegar hún lýsir einu erf­ið­asta augna­bliki ævi sinnar.

Var efnilegur námsmaður með bjarta framtíð

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Þegar Sandra var fimmtán ára var hún ungur og efni­legur náms­maður með bjarta fram­tíð en missti tökin á líf­inu og sökk á kaf í fíkni­efna­neyslu. Magga telur að þar hafi tvö atvik skipt sköpum. Sandra hafði þá orðið fyrir alvar­legu kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu manns sem var kvæntur frænku hennar. Áfallið og van­líð­anin í kjöl­far þess áttu eftir að hafa langvar­andi áhrif.

Í DV segir móðir Söndru: „Síðar þetta sama ár lenti hún í alvar­legu bílslysi, þá var keyrt á hana og hún mjaðm­ar­brotn­aði illa. Henni var ávísað mjög sterkum verkja­lyfjum og varð fljót­lega háð þeim. Ég vissi áður að hún hafði verið að fikta við áfengi en þarna byrj­aði vanda­málið fyrir alvöru, fyrst verkja­lyf og svo harð­ari efni. Þegar hún var komin út í kóka­ínn­eyslu bað hún mig um hjálp og óskaði eftir að ég myndi senda hana eitt­hvert þar sem hún gæti fengið hjálp. Hún vissi það sjálf að vanda­málið væri alvar­legt. Hún fór tvisvar í með­ferð þetta ár en það dugði ekki til.“

Ekki er óal­gengt að ung­menni sem leið­ast út í neyslu og glæpi hafi sem börn verið greind með ein­hvers konar þroskarask­anir, hegð­unarörð­ug­leika eða náms­erf­ið­leika. Sú var ekki raunin með Söndru.

Móðir hennar heldur áfram að segja frá dóttur sinni í sam­tali við DV: „Það voru aldrei nein vand­ræði. Henni gekk alltaf mjög vel í skóla, enda er hún afskap­lega vel gefin og klár. Hún var for­vitin og henni fannst skemmti­legt að grúska í hlut­unum og vildi vita hvernig allt virk­aði. Henni fannst til dæmis óskap­lega gaman að taka í sundur hluti, eins og klukkur og tölvur, og setja síðan saman aftur. Skólinn sam­þykkti hana í sér­stakt pró­gramm sem komið var á fyrir krakka sem voru klárir í tölvum þar sem þeim var kennt að byggja og búa til tölvur.

Fjölmargar fíkniefnameðferðir

Sandra Fenton með fjöl­skyldu. Mynd/skjá­skot

Ekki varð meira úr skóla­göngu hjá Söndru eftir þetta og lenti hún að sögn Möggu á hrak­hólum; fékk vinnu tíma­bundið á hinum og þessum stöðum en gekk illa að halda sér frá dóp­inu. „Á sumum vinnu­stöðum hérna úti þarf fólk að gang­ast undir eit­ur­lyfja­próf til að fá að halda vinn­unni og það stóðst hún auð­vitað aldrei.“

Næstu árin tóku við fjöl­margar fíkni­efna­með­ferðir sem skil­uðu litlu. Sandra sökk djúpt í kóka­ínn­eyslu. Hún átti eftir að leið­ast út í afbrot með­fram neysl­unni og hlaut nokkra styttri dóma fyrir smá­vægi­leg brot á borð við fíkni­efna­vörslu, búð­ar­hnupl og hraðakstur. „Það var alltaf verið að taka hana fyrir eitt­hvað, en aldrei voru þetta þó alvar­leg brot, engin ofbeld­is­brot eða neitt þannig. Hún fór fyrst í fang­elsi 22 ára og sat þá inni í sex mán­uði. Henni var síðan hleypt út á ökkla­bandi og á þeim tíma kynnt­ist hún barns­föður sínum. Þá tóku við nokkrir góðir mán­uðir þar sem hún var edrú.“

Sonur Söndru, Rylan, kom síðan í heim­inn árið 2011. Hann hefur reynst ömmu sinni og afa mik­ill gleði­gjafi. Á tíma­bili leit loks­ins út fyrir að allt væri að ganga vel en þegar son­ur­inn var tíu mán­aða, í nóv­em­ber 2011, féll Sandra á ný og í þetta sinn sökk hún eins djúpt ofan í hyl­dýpið og hugs­ast gat. Hún hafði hitt mann­inn sem hafði nauðgað henni. Það varð henni gjör­sam­lega um megn.

„Það bara fór með hana, það opn­að­ist fyrir ein­hverja gátt og það blossuðu upp allar gömlu og ljótu minn­ing­arnar. Hún réði ein­fald­lega ekki við þetta. Þarna leidd­ist hún út í þennan mikla við­bjóð sem heróín er, og það er eins og sagt er: það eru bara tvær leiðir út úr heróíni. Fangelsi eða dauði.“

Bílstjórinn var heróínsalinn

Banda­rískir frétta­miðlar greindu frá því þann 13. ágúst 2013 að ung kona hefði gengið inn í útibú banka í hafn­ar­borg­inni Norfolk í Virginíu, krafið gjald­ker­ann um pen­inga og gefið í skyn að hún væri með vopn. Hún hafi flúið út með pen­ing­ana þar sem 33 ára karl­maður beið fyrir utan á flótta­bíl. Þau hefðu síðan keyrt yfir til Chesapeake-borgar og rænt þar annan banka á sama hátt. Umrædd kona var Sandra Sigrún. Bíl­stjór­inn var heróínsal­inn hennar, maður að nafni Duane P Goodson.

Þetta er dóttir mín sem þið eru að lýsa eftir

Sandra Sigrún Fenton. Mynd/skjá­skot.

Síðla parts þennan sama dag hringdi eldri dóttur Möggu í hana og sagði henni að kveikja á sjón­varp­inu. Þar blöstu við upp­tökur úr örygg­is­mynda­vélum bank­ans í Norfolk. Það var ekki um að vill­ast hver var þar á ferð.

„Ég vissi þá hvar Sandra var því þennan dag átti hún bók­aðan tíma hjá skil­orðs­full­trúa í dóms­húsi borg­ar­innar og pabbi hennar og strák­ur­inn hennar voru þar með henni. Ég hringdi á lög­regl­una og sagði þeim ein­fald­lega: „Þetta er dóttir mín sem þið eruð að lýsa eftir. Þið verið að fara núna og ná henni áður en hún sleppur.“

Sandra hefur ætíð haldið því fram að pilt­ur­inn hafi þvingað hana til verkn­að­ar­ins. Ekki er við annað að styðj­ast en hennar frá­sögn og segir Magga enga ástæðu til að draga það í efa.

Fangelsið rukkar fanga um leigu

Síðan dómur féll hefur Sandra setið inni í Fluvanna Correctional Center for Women – rík­is­reknu kvenna­fang­elsi sem stað­sett er í Troy, rúm­lega 90 kíló­metra fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni Richmond.

„Það eru tvær mann­eskjur í hverjum klefa, sem er læstur klukkan tíu á hverju kvöldi. Á dag­inn haf­ast þær við í dag­stofu þar sem þær horfa á sjón­varpið og geta svo stundað ein­hverja vinnu. Sandra fékk starf við að þrífa klef­ana fyrir 30 sent á tím­ann. Hún hefur líka verið að stunda nám í raf­virkjun,“ segir móðir hennar í sam­tali við Auði Ösp, blaða­mann á DV.

Fang­elsið rukkar fanga um leigu fyrir vist­ina, 30 doll­ara á mán­uði, og þá þurfa fang­arnir að greiða auka­lega ef þeir vilja auka nær­föt eða und­ir­föt innan undir fanga­bún­ing­inn. Allar nauð­synja­vörur á borð við sápu og tann­krem þurfa fang­arnir að greiða sjálfir dýru verði. Vinna í fang­els­inu er af skornum skammti og þannig fékk Sandra aðeins 30 sent á tím­ann fyrir þrif á klefum. Hún þarf því að reiða sig á fjár­stuðn­ing utan frá.

Minna er um eit­ur­lyfja­neyslu heldur en gengur og ger­ist almennt í fang­elsum enda eft­ir­litið gíf­ur­legt. Reglu­lega eru gerðar rass­íur þar sem klefum er snúið við og leitað á öllum föngum. Sömu­leiðis er föngum gert að ber­hátta sig eftir hverja heim­sókn sem þeir fá og leitað á lík­ömum þeirra. Nið­ur­læg­ingin er mikil.

For­eldrar Söndru reyna hvað þeir geta til að gera daga hennar í fang­els­inu bæri­lega, enda lítil afþrey­ing í boði önnur en sjón­varps­gláp. En þar inni kostar allt pen­inga „ Sandra er að eðl­is­fari afskap­lega glettin og skemmti­leg og hefur gaman af svo mörgu. Hún hefur unun af að teikna og mála þannig að við höfum sent henni pen­inga svo hún geti keypt tré­liti og máln­ingu og hún hefur teiknað mjög skemmti­legar myndir. Hún teiknar mikið á vasa­klúta, þar sem hún fær ekki pappír,“ segir móðir Söndru í sam­tali við Auði Ösp á DV.

Magga segir fanga­verð­ina mis­jafna í fram­komu sinni við fang­ana, á meðan sumir komi fram við þá af virð­ingu séu aðrir sem leggi sig fram um að gera þeim lífið leitt. Hún segir við­horf og fram­komu fanga­varð­anna til fang­anna að mestu leyti afar ómann­úð­lega. Þeir hiki ekki við að láta reiði sína og gremju bitna á föng­unum. Sömu­leiðis nýti þeir óspart tæki­færið til að flagga valdi sínu.

„Þeir nýta það óspart að taka ýmiss konar rétt­indi af föng­unum þegar þeir fá tæki­færi til þess. Í nokkur skipti sem ég hef hringt og kvartað þá hefur það umsvifa­laust verið látið bitna á henni.“

Var neydd til að taka þátt í ráninu

Aðal­heiður Ósk Þor­steins­dótt­ir, frænka Söndru Sigrún­ar, sagði í sam­tali við mbl.is að ekki hafi verið tekið til­lit til sér­stakra aðstæðna Söndru Sigrún­ar. Hún hafi verið neydd til að taka þátt í rán­inu.

„Í júlí 2013 kom sá sem seldi Söndru heróín heim til henn­ar og náði í hana, hún taldi sig vera að kaupa meira efni. Hann gaf henni efni og keyrði með hana dágóða stund áður en hann fór með hana að banka. Þar tók hann fram byssu og sagði að ef hún færi ekki þar inn og rændi bank­ann myndi hann drepa hana ásamt for­eldr­um henn­ar og syni. Þenn­an leik end­ur­tók hann í öðrum banka og tók all­an pen­ing­inn fyr­ir bæði rán­in,“ sagði frænka hennar.

Sandra var hand­tek­in sam­dæg­urs og var mjög sam­vinnu­þýð við lög­regl­una að sögn Aðal­heiðar Óskar. „Sandra gaf upp mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar sem urðu til þess að sá sem hafði hótað henni líf­láti náð­ist tveim­ur sól­ar­hring­um seinna, með byss­una og all­an pen­ing­inn. Sandra var með mjög lé­lega lög­fræð­inga í þess­um mál­um. Þeir réðu ekki við þessi mál og því fór sem fór,“ segir Aðal­heiður á þeim tíma sem málið var í hámæli.

Binda von­ir við end­urupp­töku máls­ins

Sandra Sigrún Fenton. árið 2011 með syni sínum. Mynd/skjá­skot.

Ný­lega kom í ljós að maður­inn sem var hand­tek­inn ásamt Söndru Sigrúnu í tengsl­um við rán­in var fund­inn sek­ur um að hafa framið morð árið 2007. Von­ast fjöl­skyld­an til þess að þess­ar upp­lýs­ing­ar muni ýta und­ir hugs­an­lega end­urupp­töku máls­ins.

„Ef engu verður breytt mun Sandra sitja í fang­elsi þar til hún verður rúm­lega 60 ára,“ seg­ir Aðal­heiður Ósk. Fjöl­skyld­an hef­ur hafið söfn­un fyr­ir end­urupp­töku á máli Söndru Sigrún­ar í Banda­ríkj­un­um.

Hægt er að leggja fjöl­skyld­unni lið með því að leggja inn á söfn­un­ar­reikn­ing 0565-26-130260, kt. 081062-5879.

Heim­ildir:

Auður Ösp. 26. ágúst 2016. Sandra Sigrún dæmd í 37 ára fang­elsi í Banda­ríkj­unum: Öskrin og grát­ur­inn nísti inn að beini- Hlaut þyngsta dóm sem Íslend­ingur hefur hlotið – Í klefa með morð­ingja. DV.

Innlent. 26.októ­ber.2016. Valið stóð á milli banka­ráns eða líf­láts. Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ