Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Elías missti af skipi sínu og það fórst: „Svakalegt áfall fyrir mig og náttúrlega allt samfélagið“

Elías missti af skipi sínu og það fórst: „Svakalegt áfall fyrir mig og náttúrlega allt samfélagið“
Elías Krist­ins­son sjó­maður.|Eva

„Ég slapp ótrú­lega vel einu sinni; öll skips­höfnin mín fórst,“ segir Elías Svavar Krist­ins­son í við­tali við Reyni Trausta­son þar sem þeir koma víða við. „Það var nú þannig að ég var á loðnu þegar þetta var. Ég hafði verið stýri­maður á báti þarna á Eski­firði sem hét Hafaldan. Það voru góðir menn og miklir vinir mínir sem áttu þann bát; þetta var um 150 tonna bátur. Svo seldu þeir hann og keyptu minni bát. Þetta var í apríl og loðnu­ver­tíðin að hætta og þá voru bát­arnir oft bundnir; það voru engin önnur verk­efni. Þeir vissu að ég væri á lausu og höfðu strax sam­band við mig og ég fór með þeim um borð og var með þeim tvo til þrjá túra. Svo kom 10 daga páska­stopp og þeir ámálg­uðu að ég kæmi og ég sagði að það væru allar líkur á því; ég hefði ekk­ert annað að gera. Nema það að í páska­stopp­inu hringdi Arnbjörn, skip­stjóri á Hólmatindi, og bað mig um að koma á Hólmatind. Ég sagð­ist vera búinn að lofa þeim en hann sagði að við yrðum löngu komnir þá. En svo varð það bara ekki þannig. Þegar við vorum komnir í land þá voru þeir farnir og komnir á net við Ing­ólfs­höfða. Þannig að ég fór bara annan túr. Ég held það hafi verið í þeim túr að hann fórst með manni og mús þessi bátur; hét Hrönn. Ég held það hafi verið sex um borð.“

Þetta var svaka­legt áfall fyrir mig og nátt­úr­lega allt sam­fé­lagið.

Svona er stutt á milli lífs og dauða.

„Já, þetta er til­viljun. Þetta er svo ótrú­leg til­viljun. Hann fórst inni í Reyð­ar­firði. Það var vit­laust veður.

Þetta var svaka­legt áfall fyrir mig og nátt­úr­lega allt sam­fé­lagið. Þetta voru ein­stakir menn; alveg ótrú­lega fínir menn og vinir manns.“

Hringormar

Elías Svavar Krist­ins­son fædd­ist á Selja­nesi og var þriggja ára þegar flutt var á Dranga. Hann er búinn að vera sjó­maður frá því hann var um tví­tugt.

„Ég var að vinna á slippnum á Akureyri að læra ketil- og plötu­smíði. Ég var blankur; ég var í iðn­skól­anum og fór túr á tog­ara. Þeir urðu nokkrir; svo fór ég vestur á Ísafjörð.“

Lentir þú í ein­hverjum ævin­týrum á sjónum?

„Já, fjölda mörgum ævin­týrum.“

Hvað stendur upp úr þegar þú lítur um öxl; hvar var mesta hættan og hvar var mesta gleðin?

„Ég var í Norð­ur­sjónum og það var mikil gleði þega við komumst í land þar; lönd­uðum í Danmörku. Svo vorum við fasta­gestir í Leirvík á Hjaltlandi. Það var tals­vert mikil gleði þar. Heima­mönnum fannst það heldur mikið.“

Já, það var svo­lítið sleg­ist. Mikið drukkið.

Voruð þið fyr­ir­ferð­ar­miklir, Íslend­ing­arnir?

„Já, frekar. Og það voru allra þjóða kvik­indi, Rússar og Norðmenn.“

Mikið drukkið og sleg­ist?

„Já, það var svo­lítið sleg­ist. Mikið drukkið.“

Elías kláraði náms­tím­ann hvað varðar plötu­smíð­ina en hann kláraði aldrei iðn­skól­ann. „Ég tók aldrei prófið.“

Hann fann sig á sjónum.

„Svo þvæld­ist ég austur á land og var á síld­ar­skipum þar í Norð­ur­sjónum og aðeins á tog­ara; Hólmatindi,“ segir Elías en hann var búinn að nefna Hólmatind áður. „Það var fyrsti tog­ari sem var keyptur til lands­ins og ég var þar. Skut­tog­ari. Svo fór ég í Stýri­manna­skól­ann. Tók fyrsta bekk og svo annan bekk 12 árum seinna.“

Hvernig stóð á því?

„Maður var bara að búa og basla með börn og var blankur. Þetta var bara þannig. Ég starf­aði samt sem stýri­maður mestan þann tíma. Á und­an­þágu. Svo var farið að taka fyrir þær og þá fór ég í Stýri­manna­skól­ann í Vest­manna­eyjum.“

Og ég er alveg viss um að ég hafi líka fengið þetta.

Talið berst að hringormi; að manni sem smit­að­ist.

„Já, það var einn sem gerði það. Reyndar held ég að ég hafi smit­ast líka. Ég var alveg að drep­ast lengi. Við vorum að éta hrogn; spraut­uðum þeim ofan í glas. Tókum hrá hrogn og sumir settu kanel út í þetta og átu þetta. Ég fékk mikla kvið­verki sem ég fékk aldrei skýr­ingu á. Og ég er alveg viss um að ég hafi líka fengið þetta. Svo fatta þessir ormar að þeir eiga ekki heima þarna og skríða ann­að­hvort niður úr manni eða upp úr. Það er annað hvort.“

Það hlýtur að vera svaka­legt að fá þetta upp úr sér.

„Já, menn hafa vaknað við þetta. Þetta er alþekkt,“ segir Elías og segir að til­fellum hafi fjölgað um helm­ing frá því að fólk byrj­aði að borða sushi.

Fá aldrei nóg

Elías er á strand­veiðum. Er ekk­ert vit í þessu?

„Það er ekk­ert vit í þessu; það er alveg satt. Útgerð­ar­að­il­arnir tala um fyr­ir­sjá­an­leika. Þeir segja að kvóta­kerfið verði að hafa fyr­ir­sjá­an­leika. Við höfum akkúrat engan fyr­ir­sjá­an­leika. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann gefur kannski út kvóta tveimur dögum áður en veiðar byrja.“

Heild­ar­kvóta. Og svo byrjar kapp­hlaup.

„Svo byrjar kapp­hlaup og kannski bætir hún við. Kristján bætti nú við í fyrra og bjarg­aði svona fram yfir miðjan ágúst. En við vitum ekki neitt.“

Þetta byrjar í maí og þið megið fara fjóra daga í viku nema þegar eru rauðir dagar og þið megið veiða hvað 800 kíló í róðaríi?

„770. Af óslægðu.“

Svo er þetta einn pottur þannig að það getur allt í einu verið stopp allt dótið.

„Eins og þetta lítur út núna þá verður stoppað í end­aðan júlí.“

Það er alltaf verið að taka af þeim!

Þá er bara ver­tíðin búin.

„Já. Ef Svandís bætir ekki við. Ég hef enga trú á að hún geri það.“

Hefur þú ekki trú á Svandísi?

„Nei, ég hef ekki trú á henni. Ég hef bara enga trú á henni.“

Þetta eru umhverf­is­vænar veiðar til þess að gera og þetta færir líf í sjáv­ar­plássin. Hvernig myndir þú vilja sjá þetta?

„Ég myndi vilja láta bæta við þetta kerfi. Ég vil ekk­ert láta slátra stór­út­gerð­inni. En það er stundum þetta við­kvæði hjá þeim að það sé aldrei nóg hjá þeim. Fá aldrei nóg. Ef það er verið að taka ein­hvern afla og setja í þennan pott þá er verið að taka af þeim! Það er aldrei talað um þjóð­ina í þessu.“

Það stendur í lög­unum að þetta sé sam­eign þjóð­ar­innar.

„Það er alltaf verið að taka af þeim! Stundum finnst mér þeir veru­leikafirrtir en þeir vilja stundum ekki reyna að ná sátt við almenn­ing. Til dæmis væri sáttin það að þeir létu frá sér ein­hvern kvóta svo menn gætu stundað færa­veiðar í kringum landið.“

Hvað er úthlutað miklum kvóta í dag á smá­bát­ana í kringum landið? Strand­veið­arnar?

„Þetta eru um 10.000 tonn.“

Mætti það ekki fara í 15.000 og menn væru sáttir?

„Jú, 15-20.000 tonn. 30.000 tonn. Hvað er það? Stór­út­gerðir eru nokkrar útgerðir. Þetta eru yfir­leitt sömu útgerð­irnar. Þeir eru með loðnu­kvóta, þeir eru með mak­ríl­kvóta, kolmuna­kvóta, síld­ar­kvóta, karfa og ufsa. Stór­út­gerð­irnar eru með allar fisk­teg­undir. Við þurfum bara þorsk. Og við viljum ekk­ert taka síld­ina af þeim; þó það væri gaman að gera það. Og mak­ríl­inn.“

Það verður kannski seint að þeir bæti svona dug­lega við en það gæti mjatl­ast eitt­hvað.

„Það vantar bara sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra með bein í nef­inu. Það er bara málið.“

Elías seg­ist vera búinn að stunda þetta jafn­vel í fimm sumur frá Norð­ur­firði.

Þetta er besta sum­arið.

„Verðið. Lang­besta verðið.“

Er það út af stríð­inu eða hvað er það sem veldur?

„Það er stríðið.“

Eins dauði er ann­ars brauð.

„Það á að loka allan inn­flutn­ing frá Rússum og þeir voru stórir í fiski og þeir eru að end­ur­nýja allan sinn fiski­skipa­flota og verk­smiðjur. Ofboðs­lega glæsi­leg skip.“

Framliðinn hundur

Á meðal þess sem Reynir og Elías tala um eru Dranga­skörð. Drauga­gangur þar.

„Ég hef reyndar aldrei séð draug þarna en ég dreg ekki til­vist drauga í efa ef það eru sann­söglir menn sem segja mér frá því. Mér dettur það ekki í hug.“

Elías segir sög­una af draugi í skörð­unum.

„Ég man ekki hver sagði mér þetta en hann var að sækja fólk sem labb­aði úr Dranga­vík yfir að Dröngum; ætl­aði bara að fara yfir skörðin. Hann var á báti og sá í Kálfs­gerði þrjá menn. Einn græn­klæddur. Svo komu þeir niður og hann fór að huga að bátnum; skjóta út báti til að sækja þá á land. Svo þegar þeir voru komnir um borð þá spurði hann hvað hefði orðið um þann þriðja sem var með þeim. Þá var honum sagt að það hafi eng­inn verið með þeim.“

Við vitum ekki allt.

„Þetta var alla­vega sann­sög­ull maður sem sagði mér þetta.·

Svo er hundur þarna á þvæl­ingi.

„Já, það er hundur þarna. Fram­lið­inn hundur. Hann hefur oft sést.“

HÉR er hægt að sjá við­talið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ