Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Sterk vinátta dauðvona stúlku og íslensks hests: „Hann fylgir henni hvert sem hún fer“

Sterk vinátta dauðvona stúlku og íslensks hests: „Hann fylgir henni hvert sem hún fer“
Joan og hest­ur­inn Hrafn. Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Joan var sautján ára gömul stúlka búsett í Danmörku, sem hafði ekki verið spáð lang­lífi. Það sem reynd­ist henni dýr­mæt­ast af öllu voru tengsl sem hún mynd­aði við hesta, sem virt­ust vart sjá sól­ina fyrir stúlkunni. Það var eins og hest­arnir gæfu henni ein­hverja nýja lífs­orku, en ein­stök sam­bönd manna og dýra hafa löngum verið þekkt, auk þeirra krafta­verka sem þau virð­ast stundum geta haft í för með sér.

Fjallað var um málið í Vísi, laug­ar­dag­inn 5. ágúst árið 1972. Joan bjó á búgarði á Norður-Sjálandi ásamt fjöl­skyldu sinni; for­eldrum sínum Mogens og Ebbu Petersen, og bróður sínum Bjerre, árinu eldri en Joan og þar með átján ára á þessum tíma. Fjöl­skyldan flutt­ist á búgarð­inn, sem var nokkuð afskekktur, til þess að geta verið í friði með hesta sína í nálægð við nátt­úr­una, en fjöl­skyldan var með fá dýr að hest­unum und­an­skildum. Upp­á­halds­hestur Joan reynd­ist vera íslenskur hestur að nafni Hrafn, sem ans­aði engum nema henni. Hrafn kom upp­haf­lega frá Mos­fells­sveit.

„Joan hafði áður átt hest, sem hét Lykke, en þegar sá hestur veikt­ist og séð varð að hann kæmi ekki til með að verða til mik­illa nota framar, tók Joan sig til og safn­aði fyrir öðrum,“ segir í frétt Vísis.

Var ekki hugað líf

Þegar fréttin er skrifuð hafði fjöl­skyldan búið á búgarð­inum Myrehulm í 10 ár, og komið sér upp góðu hesthúsi þar. Sjö árum fyrr, þegar fjöl­skyldan hafði verið búsett þar í þrjú ár, var dóttirin Joan talin dauð­vona. Hún var með hættu­legan sjúk­dóm og læknar töldu lífslíkur hennar litlar. Sjúk­dómnum er í frétt Vísis lýst þannig að útgangur kirtla og svita­holur stífl­uð­ust, vegna þess að vök­vinn var of þykkur. Þetta orsak­aði síðan keðju­verkun ýmissa auka­kvilla og gerði Joan einnig mót­tæki­legri fyrir hinum ýmsu sjúk­dómum. Því má ætla að ónæm­is­kerfið hafi verið veikt.

Þegar þau Mogens og Ebba töldu dóttur sína, þá í kringum tíu ára gamla, eiga skammt eftir ólifað brugðu þau á það ráð að gefa henni hest­inn Lykke, til að gleðja hana. For­eldr­arnir vissu sem var, að Joan væri mikið fyrir hesta.

„Og það furðu­lega gerð­ist, það var sem hest­ur­inn veitti henni nýjan þrótt, og Joan virt­ist hress­ast að mun. Stuttu seinna var Joan gef­inn annar hestur, sem heitir Tommi, en hann er gam­all sirkus­hestur, sem ekki var lengur tal­inn fær um að gera listir i sirku­snum. Og stuttu síðar bætt­ist svo Hrafn, uppáhalds­hest­ur­inn hennar í hópinn,“ segir í frétt Vísis.

Joan ásamt hest­inum Tomma, sem hafði sann­ar­lega ekki gleymt því sem hann hafði lært í sirku­snum.

Óhlýðni Hrafn

Líkt og áður sagði var Hrafn íslenskur hestur frá Mos­fells­sveit. Joan hafði hitt mann að nafni Fritz Haug í Hilleröd í Danmörku, en Fritz þessi hafði flutt íslenska hesta inn til Dan­merkur og lum­aði einmitt á hesti sem hann taldi að gæti átt vel við Joan.

„Hrafn var ekki hlýðinn hestur, og erfitt að eiga við hann, að minnsta kosti var það ekki á hvers manns færi að reyna að tjónka við hann. En Fritz Haug full­yrti að Joan og Hrafn ættu eftir að koma til með að verða góðir vinir, og hún fékk að fara með hann heim til reynslu. Og Fritz Haug hafði reynzt sann­spár, þeim kom alveg ágæt­lega saman, hest­inum og hinni 17 ára gömlu stúlku.“

Í grein­inni kemur fram að eng­inn fékk að fara á bak Hrafni nema Joan. Hún virt­ist hafa eitt­hvað sér­stakt lag á honum og ein­stök teng­ing til staðar á milli þeirra tveggja.

„Það getur meira að segja verið hættu­legt fyrir aðra að koma nálægt honum, en við Joan er hann eins og lamb. Hann fylgir henni hvert sem hún fer, tryggur og þol­inmóður, næstum eins og hundur sem fylgir manni.

Þegar Joan á síð­asta ári vann tvö verð­laun á dansk-íslenzku hestamóti, þurfti hún þó að hafa sig alla við að gæta hests­ins, því að svo villtur virð­ist hann í raun og veru.

Og þrátt fyrir það að enn er ekki vitað hve Joan getur lifað lengi vegna sjúkdómsins, hafa hest­arnir þrír veitt henni allt það bezta sem henni fannst hún geta fengið.“

Eftir því sem blaða­maður Mannlífs kemst næst lést Joan þann 29. októ­ber árið 1986, þá 31 árs.

Mynd/skjá­skot tíma­rit.is

Heim­ildir:
Vísir – Íslenzkur hestur er ungri dauð­vona stúlku í Danmörku allt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ