Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Héraðsdómur neitar að leita til EFTA í tveimur vaxtamálum

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði þeim kröfum Neyt­enda­sam­tak­anna að leita ráð­gef­andi álits EFTA-dóm­stóls­ins í tveimur af þremur málum, í vaxta­mál­inu svo­kall­aða. Einu vafa­at­riði hefur þó verið vísað til dóm­stóls­ins. RÚV greinir frá þessu.

Neyt­enda­sam­tökin höfð­uðu þrjú mál á hendur Arion banka og Lands­banka, til þess að láta reyna á lög­mæti skil­mála lána með breyti­lega vexti. Um er að ræða neyt­enda­lán sem tekin voru á mis­mun­andi tímum þegar mis­mun­andi lög voru í gildi. Neyt­enda­sam­tökin ósk­uðu til að byrja með eftir ráð­gef­andi áliti EFTA-dóm­stóls­ins, þar sem lögin sem reynir á í mál­inu eru inn­leið­ing Evr­óputil­skip­unar. Hér­aðs­dómur hafn­aði þeim kröfum í tveimur af þremur málum. Í þriðja mál­inu ákvað dóm­ari þó að óska eftir ráð­gef­andi áliti EFTA-dóm­stóls­ins vegna eins vafa­at­riðis er varðar lán sem var tekið eftir að lög um fast­eigna­lán tóku gildi árið 2017.

Sú spurn­ing sem dóm­ari varpar til EFTA-dóm­stóls­ins fjallar um það hvort skil­málar Lands­bank­ans um breyti­lega vexti sam­ræm­ist ákvæði sem mælir fyrir um að við­mið­un­ar­vextir lána sem bera breyti­lega vexti, þurfi að vera skýrir, aðgengi­legir, hlut­lægir og sann­próf­an­legir fyrir neyt­and­ann.

Í hinum tveimur mál­unum telur dóm­ur­inn fyr­ir­liggj­andi dæmi hjá dóm­stólnum nægi­lega leið­sögn.

„Það er mik­il­vægt að taka fram að í hvor­ugri afstöðu dóms­ins, það er að segja að hafna ósk um álit eða spurn­ingu hans til EFTA dóm­stóls­ins, felst afstaða til meg­in­krafna í mál­inu, um að skil­mál­arnir verði dæmdir ólög­legir,“ segir Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna. „Málunum verður haldið áfram í hér­aðs­dómi eins og ekk­ert hafi í skorist í þeim málum sem ekki þarfn­ast leið­bein­ingar EFTA dóm­stóls­ins. Hinu mál­inu er frestað þar til nið­ur­staða fæst hjá EFTA dóm­stólnum.“

Neyt­enda­sam­tökin héldu í mála­ferlin vegna mats þeirra á að skil­málar lána með breyti­legum vöxtum séu ólög­legir. Það sé vegna þess að ákvarð­anir bank­anna um vaxta­breyt­ingar séu mats­kenndar og ógagn­sæjar.

„Það sem er svo mik­il­vægt við að fá ráð­gef­andi álit EFTA dóm­stóls­ins er að við teljum þann dóm­stól hafa yfir­burð­ar­þekk­ingu á þessum lögum þar sem margoft hefur reynt á þau og nið­ur­staðan þar verið á þá leið sem sam­tökin hafa haldið fram í Vaxta­mál­inu,“ segir Breki.

Afborg­anir lána á óverð­tryggðum, breyti­legum vöxtum hafa farið hratt hækk­andi að und­an­förnu, í kjöl­far verð­bólgu og hækkun stýri­vaxta Seðla­banka Íslands.

Mannlíf ræddi við Breka Karlsson, for­mann Neyt­enda­sam­tak­anna, um þetta og tengd mál, í febr­úar síð­ast­liðnum. Þá tal­aði hann meðal ann­ars um óskýrar vaxta­á­kvarð­anir bank­anna.

„Það væri nú ágætt ef það væri, eins og lög gera ráð fyrir, skýrt hvernig vextir bank­anna tækju breyt­ingum. En það er því miður ekki þannig. Þess vegna þurftum við að fara í þetta dóms­mál,“ sagði Breki.

Eins og þekkt er orðið hafa við­skipta­bank­arnir skilað ofur­hagn­aði und­an­farið.

Í við­tal­inu í febr­úar sagði Breki meðal ann­ars að nú sem aldrei fyrr væri þörf á því að bæði bank­arnir og önnur fyr­ir­tæki myndu draga úr arð­sem­is­kröfum. Hann sagði árs­reikn­inga sýna að það væru fleiri en bank­arnir sem væru að skila miklum hagn­aði, það ætti við um ótal fyr­ir­tæki líka.

„Nú er bara komið að því að atvinnu­lífið sýni þá still­ingu sem atvinnu­lífið krefst alltaf af laun­þegum þegar laun­þegar eru að semja um laun og kjör. Það er það sem við getum gert; að krefja fyr­ir­tæki um ráð­deild og að þau rói sig aðeins í arð­sem­is­kröfum.“

Breki sagði að ef fyr­ir­tækin og bank­arnir svör­uðu þessu kalli væri vel hægt að halda út þetta tíma­bundna ástand sem nú væri uppi.

„Annað er ávísun á óróa í haust þegar kjara­samn­ingar eru lausir – ef það á að velta þessu enda­laust inn í verð­lagið og halda í þessar háu arð­sem­is­kröfur. Slíkt höfr­unga­hlaup hefur aldrei skilað neinu nema auk­inni van­sæld,“ sagði hann. „Það vill eng­inn þann óstöð­ug­leika sem þessu mun fylgja. Hann er engum til góðs.“

Fréttin hefur verið upp­færð.

Í fyrri útgáfu þess­arar fréttar var því haldið fram að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefði hafnað kröfum Neyt­enda­sam­tak­anna í Vaxta­mál­inu svo­kall­aða. Þetta er ekki rétt, heldur hafn­aði dóm­ur­inn þeirri ósk lög­manna að leitað yrði ráð­gef­andi álits EFTA-dóm­stóls­ins í öllum mál­unum þremur. Í einu mál­anna ákvað þó hér­aðs­dómur að leita til dóm­stóls­ins vegna eins vafa­at­riðis er varðar lán sem var tekið eftir að lög um fast­eigna­lán tóku gildi árið 2017. Vaxta­málið heldur áfram fyrir hér­aðs­dómi og þriðja málið bíður álits EFTA-dóm­stóls­ins áður en áfram verður haldið. Fréttin hefur verið leið­rétt í sam­ræmi við þetta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð