Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kommentin krufin – Höfundur athugasemdar um Svölu: „Hann var að slást og selja dóp hérna á Spáni“

Kommentin krufin – Höfundur athugasemdar um Svölu: „Hann var að slást og selja dóp hérna á Spáni“
Svala Björg­vins Mynd / Unnur Magna

„Nú, hinn mað­ur­inn lenti í stein­inum af því að hann var að slást og selja dóp hérna á Spáni, eftir því sem ég best veit,“ segir Una, aðspurð um athuga­semd sem hún rit­aði á Facebook í tengslum við nýtt sam­band Svölu Björg­vins­dóttur.

Um er að ræða athuga­semd undir frétt Frétta­blaðs­ins, sem birt var á Facebook-síðu mið­ils­ins, um það að tón­list­ar­konan Svala Björg­vins­dóttir væri komin í nýtt ást­ar­sam­band. Svala sagð­ist þar vera mjög ham­ingju­söm.

Við frétt­ina skrif­aði Una: „Vonandi ekki annar dóp­sali, en það er þó alltaf betra að fá dópið frítt.“

Svala ákvað að hunsa ekki athuga­semd Unu, heldur skrif­aði á móti: „Elsku þú. Rosalega ertu óvið­eig­andi! Ég hef aldrei á ævi minni tekið eit­ur­lyf og ég drekk ekki einu sinni áfengi, von­andi líður þér vel að tala svona um per­sónu sem þú þekkir ekki neitt. Sendi þér faðm­lag því þú þarft greini­lega á því að halda.“

Athuga­semd Svölu vakti mikil við­brögð og hafa yfir 700 manns brugð­ist við henni. Mikið af athuga­semdum hafa verið skrif­aðar undir færslu Unu og virð­ast flestir telja hana hafa gengið of langt með ummælum sínum. „Til ham­ingju með mesta óþarfa og smekklausa komment dags­ins,“ segir einn aðili til að mynda.

Mynd/skjá­skot: Facebook-Frétta­blaðið

Mannlíf ákvað að slá á þráð­inn til Unu fyrir lið­inn „Kommentin krufin“ og fá að heyra frá henni sjálfri hvað hafi vakið fyrir henni þegar ummælin voru rituð og hvað hún ætti þar við. Skemmst er frá því að segja að Una var ekki sér­stak­lega kát með sím­tal blaða­manns.

„Tékkarðu á öllum hinum athuga­semd­unum líka?“ spyr Una. „Ég bara sagði þetta og ég hef ekk­ert meira um það að segja, sorrí.“

Þannig að þú stendur við þessi ummæli?

„Já. Það er mjög gott að fá dópið frítt ef þú notar það. Hún seg­ist ekki nota það, það er gott. En ég vona að strák­ur­inn sé ekki annar dóp­sali. Hvað er að því að ég voni það? Það er ekk­ert athuga­vert við það!“

En þú sást að hún svar­aði þér?

„Já, já.“

Og henni þótti þetta óvið­eig­andi athuga­semd.

„Já, já.“

En þér finnst það ekki?

„Nei, en ef hún vill mis­skilja hana þá er henni það vel­komið. Það kemur mér ekk­ert við hvernig þið lesið út úr því sem ég skrifa. Ekki meira heldur en hvað þið hafið áhyggjur af því hvernig fólk les frétt­irnar ykkar.“

Hvernig myndir þú vilja að lesið yrði út úr athuga­semd­inni?

„Bara eins og ég orða það. Vonandi er þetta ekki annar dóp­sali. Hvað er að þér? Af hverju ætti ég að meina eitt­hvað annað en stendur þarna?“

Una sagð­ist þá standa við orð sín í athuga­semda­kerf­inu. Hún sagði það ekki skipta sig máli hvernig fólk læsi út úr ummæl­unum.

Aðspurð sagð­ist hún allt eins geta við­haft ummælin í per­sónu.

„Já, afhverju ekki? Guð minn góður, ekki vona ég það að þessi strákur sé ein­hver dóp­sali! Hvað er að þér?“

Fólk er ein­dregið hvatt til þess að muna að aðgát skal höfð í nær­veru sálar – og að athuga­semda­kerfi eru opin­ber vett­vangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ