Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hústökufólk á Vatnsstíg: „Þetta er ein tilraun til þess að bjarga heimilunum“

Hústökufólk á Vatnsstíg: „Þetta er ein tilraun til þess að bjarga heimilunum“
Frá Vatns­stíg. Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Lögregla réð­ist í umtals­verðar aðgerðir til þess að koma hús­töku­fólki út úr gömlu húsi í miðbæ Reykja­víkur í apríl árið 2009. Það var hópur ungs fólks sem hafði sest þar að og hugð­ist stofna félags- og lista­mið­stöð. Eftir að lög­regla hafði gefið fólk­inu tæki­færi til þess að fara út úr hús­næð­inu án árang­urs, réð­ist hún inn í húsið – meðal ann­ars vopnuð keðju­sög. Hús­töku­fólkið sat sem fast­ast allt til enda og skvetti meðal ann­ars máln­ingu á lög­reglu­menn.

Eigandinn sagðist hafa áhyggjur af eldhættu

„Þann 11. apríl 2009 hefur eig­andi yfir­gef­ins húss við Vatns­stíg 7 sam­band við lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lýsir áhyggjum sínum yfir því að fólk sé búið að koma sér þar fyrir. Eig­and­inn lýsir því að ekk­ert raf­magn sé á hús­inu né vatn, og það hafi verið dæmt óíbúð­ar­hæft. Hann segir að með hús­töku­fólki skap­ist eld­hætta. Af henni hafi hann áhyggjur, enda ábyrgur sem eig­andi húss­ins.“

Svo hljóðar frá­sögn í sjón­varpi mbl.is af upp­hafi atburð­anna í apr­íl­mán­uði árið 2009 í miðbæ Reykja­víkur.

Umfjöll­unin var gerð árið 2012 og er aðgengi­leg hér: Glíma hús­töku­fólks og lög­reglu.

Aðal­varð­stjóri lög­regl­unnar sem rætt var við í mynd­skeið­inu, Arnar Rúnar Mart­eins­son, sagði tölu­verðan fjölda hafa safn­ast saman við húsið þegar lög­reglu bar að garði.

„Þetta var tölu­verður mann­fjöldi þarna og þeir áttu greini­lega von á því að lög­reglan kæmi þarna og þeir ætl­uðu að verja húsið. Við vorum ekk­ert að flýta okkur sér­stak­lega, en höfðum auga með þessu og slökkvi­liðið vissi af þessu, þannig að við vorum til­búin að bregð­ast fljótt við.“

Hóp­ur­inn er sagður hafa þrifið húsið þegar hann flutt­ist þangað inn og hafi að því loknu efnt til opins húss. Hús­töku­fólkið sagð­ist ætla sér að stunda listir í hús­inu, halda þar fyr­ir­lestra, nám­skeið og annað. Það var þeirra skoðun að betra væri að húsið fengi hlut­verk í stað þess að það drabb­að­ist niður, en það hafði staðið autt um nokk­urt skeið á þessum tíma og var ekki í góðu ásig­komu­lagi.

Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Að fólk taki húsin sín sjálft

Meðal þeirra sem höfð­ust við í hús­inu var lista­konan Steinunn Gunn­laugs­dóttir. „Í heild­ina held ég að við höfum haft þá hug­mynd að fara þarna inn, stofna félags­mið­stöð, félags­rými þar sem fólk gæti komið. Fólk sem er í and­stöðu við rík­is­valdið og ríkj­andi ástand. Við vissum nátt­úru­lega að við vorum að ögra. Þarna var nátt­úru­lega ný rík­is­stjórn nýtekin við, bráða­birgða­rík­is­stjórn – vinstri stjórn. Við vissum að við vorum líka að ögra þeim, því þarna var rosa­lega mikið verið að tala um að bjarga heim­il­unum og allar þessar klisjur. Og við sögðum: Já, þetta er ein til­raun til þess að bjarga heim­il­unum. Að fólk taki bara húsin sín sjálft.“

Þau sem sest höfðu að í hús­inu dvöldu þar yfir páska­helg­ina. Samkvæmt frá­sögn Stein­unnar var þar mik­ill gesta­gangur. Lögregla hafi ekki látið sjá sig fyrr en að morgni mið­viku­dags­ins 15. apríl.

„Við ákváðum að það væri sniðugra að leyfa fólk­inu að vera þarna og koma svo um morg­un­inn. Þá voru þrír þarna á verði fyrir utan húsið og áttu að passa það, en það var eng­inn fjöldi,“ sagði Arnar Rúnar.

Á meðan lög­regla hafði frestað aðgerðum sat hús­töku­fólk og aðrir vinir og vanda­menn ekki auðum höndum, líkt og fram kemur í mynd­skeið­inu. Virki var reist umhverfis húsið, sem búið var til úr hinum ýmsu hús­gögnum og munum úr húsum í kring sem einnig stóðu auð á þessum tíma. Eldur var kveiktur í tunnu og fólk safn­að­ist saman í kring með hrópum og köllum.

Steinunn sagði það ekki bein­línis hafa komið á óvart þegar hús­töku­fólkið sá fjölda lög­reglu­manna á vett­vangi. Hún sagði dag­inn eft­ir­minni­legan.

Þegar lög­regla réð­ist í aðgerð­irnar var göt­unni lokað í báða enda og slökkvi­lið við­búið.

Samkvæmt lög­reglu var fólk­inu ítrekað boðið að koma út úr hús­inu án afleið­inga. Því varð það ekki við. Eftir loka­við­vörun hófust aðgerð­irnar og lög­regla lagði til atlögu með hjálma á höfðum og skyldi í höndum. Hús­töku­fólkið sletti máln­ingu út um glugga á lög­reglu­menn­ina.

Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Enduðu á að nota keðjusög

Fólkið hafði safn­ast saman á efstu hæð húss­ins og lög­reglu­menn not­uð­ust við hin ýmsu verk­færi til að athafna sig inn­an­dyra og reyna að kom­ast að fólk­inu, og koma því út. Í ljós kom að neglt hafði verið fyrir stiga­opið upp á efstu hæð­ina og búið að koma rúmi þar fyrir ofan á. Í gegnum göt var svo ýmsu hellt yfir eða kastað í lög­reglu, til dæmis máln­ingu, ávöxtum og grjóti.

„Þetta var í raun­inni heil­mikil aðgerð,“ sagði Arnar Rúnar. Að lokum brá lög­regla á það ráð að fara með keðju­sög inn í húsið og saga í sundur lok­una fyrir stiga­op­inu.

„Þeir voru að saga upp á milli lapp­anna á okkur,“ sagði Steinunn í upp­rifjun sinni.

Hún sagði til að mynda að strákur sem hafð­ist við á efstu hæð­inni hafi fengið sög­ina upp á milli fót­anna.

Til stóð að rífa húsið á Vatns­stíg. Lögregla hafði því ekki áhyggjur af því að skemma þar inn­an­stokks­muni, glugga og fleira. „Við þurftum ekk­ert að vanda okkur neitt sér­stak­lega mikið. Það var vitað,“ sagði Arnar.

Að lokum sag­aði lög­regla sig í gegnum stiga­opið og beitti síðan piparúða á hús­töku­fólkið til þess að fá það til þess að fara frá opinu. Því næst var fólkið hand­tekið uppi í ris­inu.

„Þeir komu þarna inn, búnir að þamba Red Bull allan morg­un­inn og alveg sturl­aðir af pirr­ingi,“ sagði Steinunn. „Þannig að þegar þeir komu inn voru þeir ekk­ert sér­stak­lega glæsi­legir. Útbíaðir í ein­hverju skyri og jógúrti, slökkvi­tæk­is­dufti, máln­ingu og eitt­hvað. Og alveg rosa­lega pirraðir.“

Steinunn Gunn­laugs­dóttir. Skjáskot úr mynd­skeiði mbl.is

Kærði lögreglu fyrir árás

16 ein­stak­lingar voru hand­teknir inni í hús­inu. Fleiri í við­bót voru hand­teknir fyrir utan húsið, meðal ann­ars fyrir að reyna að hindra störf lög­reglu. Alls voru því 22 hand­teknir í aðgerð­unum þennan dag. Samkvæmt lög­reglu hlaut eng­inn alvar­leg meiðsli en einn hinna hand­teknu hafi þó kvartað vegna eymsla.

Steinunn sagð­ist hafa kært lög­reglu fyrir árás. „Rétt áður en við komum út, þá tekur hann utan um hárið á mér og lemur hausnum á mér utan í dyra­staf. Sem verður til þess að ég vankast og fæ eflaust ein­hverss­konar heila­hrist­ing. Ég var vönkuð mjög lengi og kastaði upp í fanga­klef­anum. Það brotn­aði upp úr tönn hjá mér og ég var án lækn­is­hjálpar og án nokk­urrar aðstoðar eða eft­ir­lits í marga klukku­tíma niðri á lög­reglu­stöð.“

Rík­is­sak­sókn­ari rann­sak­aði málið en það var fellt niður og ásak­an­irnar ekki taldar á rökum reistar, líkt og segir í umfjöllun um málið.

Arnar Rúnar sagði að betra væri að hafa fjöl­miðla­fólk með mynda­vélar á lofti í kringum ýmiss konar mót­mæli, því lög­regla hefði lent í því að vera sökuð um að beita miklu harð­ræði. „Þegar mynd­irnar frá fjöl­miðlum eru sýndar kemur í ljós að það vantar eitt­hvað inn í frá­sögn­ina hjá þeim sem eru að saka okkur um það.“

Lögregla þurfti að fara í fleiri aðgerðir vegna hús­töku­fólks á þessum mikla umróta­tíma í íslensku sam­fé­lagi. Engar aðgerð­anna voru þó jafn umfangs­miklar og þær á Vatns­stígnum þennan apr­íldag.

„Ég er mjög ánægð með að við skyldum gera þetta og ég myndi gera þetta aftur ef mér finnd­ist það vera réttur tími eða rétt fólk sem væri til í það með mér. Ég veit ekki hverju þetta skil­aði út í sam­fé­lagið en þetta var alla­vega full­kom­lega rétt­mæt ákvörðun akkúrat á þessu spennu­þrungna mómenti í sam­fé­lag­inu,“ sagði Steinunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ