Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ragna Árnadóttir, í stjórn IFRC: „Það er ekki hægt að þóknast öllum, enda ekki til þess ætlast“

Ragna Árnadóttir, í stjórn IFRC: „Það er ekki hægt að þóknast öllum, enda ekki til þess ætlast“
Ragna Árna­dóttir

„Ég hef verið sjálf­boða­liði hjá Rauða kross­inum á Íslandi í meira en 11 ár og þar af var ég vara­for­maður stjórnar í átta ár. Ég var kölluð til að sinna þessu alþjóð­lega verk­efni og ákvað að slá til, enda mik­ill heiður og ánægju­legt að geta gert gagn á þennan hátt. Það er áhuga­vert að vinna með fólki hvaðanæva að úr heim­inum og hver heims­álfa á sinn full­trúa í stjórn­inni svo þetta er afskap­lega fjöl­breytt,“ segir Ragna Árna­dóttir. Rauði kross­inn á Íslandi hlaut nýverið kjör til stjórnar Alþjóða­sam­bands Rauða kross­ins og Rauða hálf­mán­ans (IFRC Govern­ing Board) á aðal­fundi IFRC og er Ragna full­trúi Rauða kross­ins á Íslandi og verður sjálf­boða­liði í stjórn­inni næstu fjögur ár. Rauði kross­inn á Íslandi hefur einu sinni áður átt full­trúa í stjórn IFRC en Guðjón Magn­ús­son læknir sat í stjórn­inni á árunum 1989-1993.

Í stjórn­ar­set­unni felst tæki­færi af hálfu Íslands til að móta stefnu IFRC til fram­tíðar.

„Ég var kjörin í stjórn IFRC sem full­trúi Rauða kross­ins á Íslandi. IFRC er sam­band allra lands­fé­laga Rauða kross­ins og Rauða hálf­mán­ans um heim allan, alls 192 félög. Í stjórn­inni sitja for­seti, fimm vara­for­setar og full­trúar frá 20 lands­fé­lögum. Hlutverk stjórn­ar­innar eru meðal ann­ars að vera ráð­gef­andi milli aðal­funda IFRC, ráða fram­kvæmda­stjóra IFRC og sjá til þess að ákvörð­unum aðal­fundar sé fram­fylgt. Í stjórn­ar­set­unni felst tæki­færi af hálfu Íslands til að móta stefnu IFRC til fram­tíðar og tryggja eft­ir­fylgni við mark­mið alþjóða­hreyf­ing­ar­innar um mannúð og óhlut­drægni um allan heim.“

Ragna segir að Rauði kross­inn hafi algjöra sér­stöðu. „Starfið er borið uppi af millj­ónum sjálf­boða­liða sem þekkja best þarfir á sínum svæðum og njóta alþjóð­legs stuðn­ings við að mæta þeim þörfum. Samhliða er byggð upp aukin stað­bundin þekk­ing og geta til að sinna hjálp­ar­starfi. Á átaka­svæðum er Rauði kross­inn því miður stundum einu alþjóð­legu hjálp­ar­sam­tökin sem geta sinnt þolendum vegna sér­stöðu sinnar sem hlut­lauss aðila á átaka­svæðum. Samhliða því að sinna lífs­bjarg­andi mann­úð­ar­að­stoð er rætt við þá sem berj­ast og þeir fræddir um alþjóð­leg mann­úð­ar­lög sem eru lög sem gilda í stríði til þess að koma í veg fyrir enn frek­ari hörm­ungar af völdum átak­anna.“

Ekki hægt að þóknast öllum

Ragna hefur víða komið við á starfs­ferl­inum og má nefna að hún var skrif­stofu­stjóri laga­skrif­stofu í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu í sjö ár auk þess að vera stað­geng­ill ráðu­neyt­is­stjóra um tíma. Hún var svo lánuð stutt­lega til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins áður en hún var skipuð ráð­herra. Hún var dóms- og kirkju­mála­ráð­herra 1. febr­úar 2009 til 10. maí 2009, dóms­mála- og mann­réttinda­ráð­herra 10. maí 2009 til 2. sept­em­ber 2010, skrif­stofu­stjóri Lands­virkj­unar 2010–2012, aðstoð­ar­for­stjóri Lands­virkj­unar 2012–2019 og skrif­stofu­stjóri Alþingis frá 2019.

Hvað stendur upp úr á þeim tíma þegar hún var ráð­herra og hvað lærði hún af þeim tíma? „Þetta var mikil reynsla og ótrú­legir tímar. Ég var með gott fólk í kringum mig í ráðu­neyt­inu sem veitti mér ómet­an­lega aðstoð og hjálp. Margar erf­iðar ákvarð­anir lágu fyrir og flókin álita­mál. Í slíkum til­vikum er gott að geta hugsað málin vel út frá öllum hliðum en það gefst reyndar ekki alltaf tími til þess í stjórn­mál­unum. Þá er bara að taka því. Það er ekki hægt að þókn­ast öllum, enda ekki til þess ætl­ast.“

Kerfið getur verið býsna þung­lama­legt og slig­andi.

Hvað Lands­virkjun varðar segir Ragna að það hafi verið mjög  áhuga­vert og skemmti­legt að vinna í Lands­virkjun og kynn­ast atvinnu­líf­inu. „Ég vann með góðu og kláru fólki og lærði mikið. Umhverfi fyr­ir­tækja og stofn­ana er enn sem komið er býsna ólíkt þótt ýmsir sam­eig­in­legir fletir séu fyrir hendi. Það er ýmis­legt í atvinnu­líf­inu sem stofn­anir geta tekið sér til fyr­ir­myndar. Kerfið getur verið býsna þung­lama­legt og slig­andi. Oft á það sér skýr­ingar í þeim miklu kröfum sem eru gerðar til þess en ekki alltaf.“

Og núna er Ragna skrif­stofu­stjóri Alþingis. „Starfið er mjög fjöl­breytt. Það snýst meðal ann­ars um rekstur á vinnu­staðnum Alþingi en starfs­fólkið er alls um 140 tals­ins, að starfs­fólki þing­flokka með­töldu. Þing­menn­irnir eru sem kunn­ugt er 63 þannig að hér er oft mik­ill erill. Það er ýmis þjón­usta sem fylgir því að reka lög­gjaf­ar­sam­komu allan sól­ar­hring­inn, allan árs­ins hring. Síðan snýr starfið líka að þing­hald­inu sjálfu en fjöldi funda og mála sem fjalla þarf um er ansi mik­ill. Svo erum við að byggja nýtt nefnda- og skrif­stofu­hús sem verður tekið í gagnið á næsta ári sem er mikil fram­kvæmd. Þannig að það er óhætt að segja að það sé fjör í vinn­unni.“

Ragna er fyrsta konan til að gegna þessu starfi. Hvaða þýð­ingu hefur það fyrir hana? „Það er bara skemmti­legt. Ég er ekki full­komn­ari fyrir það eitt að vera kona og þarf þess ekki heldur.“

Ég hef mik­inn áhuga á fólki og mann­legum sam­skiptum.

Hvernig myndi Ragna lýsa sér sem stjórn­anda? „Stjórnun snýst um að vinna með fólki. Ég hef mik­inn áhuga á fólki og mann­legum sam­skiptum og nýt þess að vinna bæði í litlum hópum og stórum. Mannleg sam­skipti geta verið mjög flókin og það gerir þau einmitt svo áhuga­verð.“

Út úr þægindarammanum

Ragna ólst upp í Reykja­vík, Danmörku og Kópavogi. Hún segir að það hafi farið lítið fyrir sér. „Ég átti góða vini, æfði sund og var í skát­unum. Einu draum­arnir voru senni­lega dagdraumar; það var nóg af þeim. Annars ætl­aði ég alltaf að verða kenn­ari enda komin af miklu skóla­fólki.“

Hvernig er lífs­stíll­inn og hver eru áhuga­málin í dag? „Ég er í krefj­andi starfi og huga vel að heils­unni, bæði lík­am­legri og and­legri. Mér finnst gaman að vera á skíðum og að veiða. Ég er líka að reyna að kom­ast á það stig í golfi.“

Ég var ekki eins feimin og ófram­færin og ég hélt.

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað hana mest? Hvað gerð­ist, hvernig tókst hún á við það og hvaða áhrif hefur það haft á hana? „Ráð­herra­hlut­verkið rak mig út úr þæg­ind­ara­mm­anum. Ég komst að því að ég gat farið í beina útsend­ingu án þess að fá hjarta­á­fall og gat komið fram opin­ber­lega án þess að verða mér til skammar. Ég var ekki eins feimin og ófram­færin og ég hélt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ