Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Þúsundir Íslendinga: „Geta látið manni líða vel eða jafnvel hræðilega“

Þúsundir Íslendinga: „Geta látið manni líða vel eða jafnvel hræðilega“

„Af hverju er það þannig að flestar nýjar bygg­ingar – íbúð­ar­hús­næði, skrif­stofur og aðrar stórar bygg­ingar í borgum – þurfa að vera svona lát­lausar og ljótar? Hvers vegna erum við svona ákveðin í því sem sam­fé­lag að breyta borgum okkar í enda­lausa röð af gler- og stál­kössum, þegar flestir vilja vera í og við eldri götur og hús, bæði Íslend­ingar og ferða­menn? Er það vegna þess að við erum með ein­hvers­konar ímynd um það hvernig fram­tíðin eigi að vera? Þegar til dæmis við á Íslandi aug­lýsum  Reykja­vík fyrir ferða­mönnum sýnum við alltaf myndir af gamla bænum, en ekki af Hafn­ar­torgi eða svæð­inu í kringum Smára­lind.“

Reynir Ragn­ars­son er 24 ára stjórn­mála­fræð­ingur frá Háskóla Íslands sem hefur látið arki­tektúr og borg­ar­skipu­lag sig varða. Hann fann enga síðu eða hóp á Íslandi sem var að ræða um þessi mál­efni og ákvað því að nýta sam­fé­lags­miðla og graf­íska hönnun til að höfða til Íslend­inga og von­andi skapa ein­hvers­konar umræðu:

„Það góða við Ísland er að þetta er lítið land og ef þú vilt virki­lega koma hug­myndum þínum á fram­færi þá getur þú gert það. Ég var líka bara for­vit­inn um hvað Íslend­ingum fynd­ist um hvernig borgin okkar hefði þró­ast og hvernig þeir myndu bregð­ast við instagram síð­unni minni: arki­tektur.island. Myndu þeir vera sam­mála mér, algjör­lega á móti mér, eða væri þeim jafn­vel alveg sama?“

Hann telur ekki nauð­syn­legt að hafa sér­stakan áhuga á arki­tektúr til að sjá hversu margar bygg­ingar hafa verið reistar frá sjötta ára­tugnum sem hafa elst mjög illa. Ekki er það út af því að þeim er ekki haldið við, heldur frekar útaf hönn­un­inni sjálfri, hvorki tíma­lausar né fal­legar og slíkar bygg­ingar verða strax ljótar eftir tísku­breyt­ingar, segir Ragnar. Hann veltir fyrir sér, af hverju?

Getur látið manni líða vel eða jafnvel hræðilega

Reynir ólst upp á Íslandi til 9 ára ald­urs, þar til hann flutti til Suður-Kali­forníu með fjöl­skyld­unni sinni. Hann flutti frá Banda­ríkj­unum til Íslands 21 árs, árið 2018 til að læra við Háskóla Íslands. Hann segir að þótt hann sé ekki lærður arki­tekt þá hafi hann alltaf haft auga fyrir umhverf­inu og sé í raun mjög við­kvæmur fyrir því. Honum finnst umhverfið ann­að­hvort geta látið manni líða vel eða jafn­vel hræði­lega. Hann er mjög hrif­inn af fínni list, fínum götum, fínum arki­tektúr, nátt­úr­unni og dáir það hvernig Sviss­lend­ingar hafa byggt upp sínar borgir. Hann telur Sviss­lend­inga vita hvernig á að fegra lands­lag sitt og borgir, allt frá því hvernig þeir setja upp girð­ingar hjá sér í það hvernig þeir byggja upp þjóð­veg­ina sína.

Eins og fyrr segir ólst Reynir upp í Banda­ríkj­unum, en þegar hann ferð­að­ist fyrst til Evrópu tal­aði hann um að honum hafi liðið eins og hann væri að stíga inn í ein­hvers konar „drauma­land.“

„Þarna eru borgir sem voru hann­aðir til að líta vel út, ekki bara til að þjóna til­gangi. Hver ein­asta bygg­ing sem hann gekk fram­hjá var með ákveðna sögu. Jafnvel nýbgg­ingar voru byggðar í ákveðnum stíl með menn­ing­una í huga til að passa inn í umhverfi sitt.“

Hann upp­lifði að bygg­ing­arnar hefðu eins­konar „sjálfs­mynd“ sem borg­arar gætu verið stoltir af og fundið að þeir séu hluti af, sam­an­borið við hina dæmi­gerðu banda­rísku borg með sína versl­un­ar­mið­stöðvar, bíla­stæði, hrað­brautir og lát­lausa skýja­kljúfra, sem eru eins í flestum borgum, aðeins til að kom­ast frá hús­inu sínu á skrif­stof­una.

Neikvæð skilaboð frá arkitektum

Það sem kom Reyni mest á óvart voru við­brögðin sem hann fékk við síð­unni. 90% af skila­boð­unum hafa verið mjög jákvæð og þá sér­stak­lega frá fólki sem hefur látið á sér kræla í þjóð­fé­lag­inu og í lista­heim­inum. Upp­á­halds­skila­boðin eru þegar hann fær skila­boð frá fólki sem hefur upp­lifað sig sem þau einu sem hugsa á þessum nótum, en þau eru það alls ekki. Hann seg­ist hafa liðið svona þegar hann bjó til síð­una í fyrstu. Af þeim fáu nei­kvæðu skila­boðum sem hann hefur fengið, hafa flest þeirra verið kurt­eis skila­boð frá arki­tektum eða nem­endum úr arki­tekta­skólum. Hann fagnar allri umræðu, en almennt séð eru flestir þakk­látir fyrir að hafa loks­ins fundið síðu og hóp þar sem fólk getur tjáð sig um þessi mál. Flestir eru ekki með menntun í arki­tektúr, á meðan margir arki­tektar hafa litið á gagn­rýni mína sem árás á þá per­sónu­lega.

Hvers konar samfélag viljum við?

Arki­tektúr skiptir máli fyrir betra sam­fé­lag og eitt það mik­il­væg­asta sem þarf að hafa í huga þegar hugsað er um hvers konar sam­fé­lag við viljum, því hvað er sam­fé­lag, ef ekki umhverfið sem við búum í?

„Húsið, gatan, hverfið…já borgin öll er það sem við búum í og er allt í kringum okkur. Ef arki­tektúr og borg­ar­skipu­lag er ekki fal­legt þá verðum við öll að lifa með því og þess vegna er arki­tektúr ekki bara eitt­hvað sem arki­tektar ættu að hafa um að segja heldur allir borg­ar­búar. Ef þú vilt til dæmis ekki hlusta á hip-hop, þá þarftu ekki að gera það og ef þér líkar ekki við ákveðið mál­verk, þá þarftu ekki að hengja það upp á vegg­inn þinn. En arki­tektúr er ekki þannig, vegna þess að ef meiri­hluti fólks finnst til­tekin bygg­ing ljót, en þeir sem hönn­uðu hana flott, þá höfum við ekk­ert slíkt val og verðum að lifa með því. Hafn­ar­torg er eitt dæmi um það. Þar hefur það sýnt sig vel hvað almenn­ings­á­litið um feg­urð hefur lítið að segja um hvernig umhverfið okkar þró­ast.“

Taka það besta úr fortíðinni og búa til eitthvað nýtt

Reynir talar um að; „arki­tektúr sem myndi henta Íslandi betur er sá sem nýtir alla þá þætti sem rann­sóknir hafa sýnt að fólki finn­ist fal­legt og eykur á vellíðan okkar. Þá erum við að tala um að byggja með sam­hverfu í huga, hlýjum bygg­ing­ar­efnum fremur en gler og stál og huga að góðri notkun á smá­at­riðum og svo fram­vegis.“

Hann talar um að finn­ast ekki allt gam­alt betra og allt nýtt verra, heldur er það þannig að eldri stílar nýttu þessa þætti vel og þess vegna eru þessar bygg­ingar enn fal­legar í dag.

„Þannig ættum við ekki að leit­ast við að afrita for­tíð­ina, heldur taka það besta úr for­tíð­inni og búa til eitt­hvað nýtt. Það eru mörg dæmi um allan heim þar sem arki­tektar hafa sótt inn­blástur frá stílum úr for­tíð­inni og bætt sínum eigin hug­myndum við til þess að búa til eitt­hvað nýtt. Svo­kall­aðir end­ur­vakn­ing­ar­stílar (e. revi­val styles).“

Reynir talar um að ríkj­andi tísku­straumar í arki­tekt­úrnum í dag séu gjör­ó­líkir þeim atriðum sem nefnd er hér að ofan:

„Það er að mestu leyti gler og stál, oft ósam­hverf röð glugga og und­ar­leg form og hönn­unin virð­ist hafa orðið ein­stak­lings­bundn­ara. „Það er að segja, það er meira um að arki­tekt­inn sýni hversu und­ar­lega hann getur hannað bygg­ingu, í stað þess að reyna að búa til eitt­hvað sem flestum mun finn­ast fal­legt.“

Hvaða hverfi eru fallegust á Íslandi?

Hvert eru flestir ferða­menn að fara til að taka myndir og hvert vilja flestir Íslend­ingar fara í göngutúr í Reykja­vík og þá fáum við svarið okkar. Reynir spurði fylgj­endur sína hvaða hverfi þeim fynd­ist fal­leg­ast á Íslandi og flestir sögðu gamla vest­ur­bæ­inn, Oddeyri á Akureyri og gamla Hafn­ar­fjörð. Þessir staðir deila sama almenna stílnum og það er engin ástæða fyrir því af hverju við getum ekki haldið áfram með þá þróun með öllum þeim auð og tækni sem Ísland hefur í dag, sam­an­borið við 1921. Enn og aftur, ekki afrita for­tíð­ina heldur byggja á því sem við höfum og búa til eitt­hvað betra.

Hvað hafa „klassískar“ byggingar sem nýjar eru ekki með?

Reynir hefur skoðað rann­sóknir sínu máli til stuðn­ings og nefnir nýlega norska rann­sókn þar sem vís­inda­menn not­uðu sýnd­ar­veru­leika­tækni til að sjá hvers konar arki­tektúr Osló­ar­búum þótti fal­leg­astur og völdu lang­flestir klass­ískt og hefð­bundið umhverfi fram yfir það sem ein­kenn­ist af nútíma­legri bygg­ingum. Spurn­ingin er þá hvað hafa „klass­ískar“ bygg­ingar sem nýjar eru ekki með? Rann­sókn­inni sýnir að bygg­ingar sem búa yfir sam­hverfu, réttri notkun á smá­at­riðum, nátt­úru­legu yfir­borð (e.facades) eru allt þættir sem ýta undir vellíðan fólks.

Aukin breytileiki í útliti bygginga auki á vellíðan okkar

Hér á Íslandi hefur til dæmis Páll Jakob Líndal, doktor í umhverf­is­sál­fræði við HÍ, sýnt að aukið flækju­stig í útliti bygg­inga eykur líkur á því að fólk upp­lifi sál­fræði­lega end­ur­heimt í slíku umhverfi og að aukin hæð bygg­inga dragi úr þessum líkum. Með öðrum orðum má segja að aukin breyti­leiki í útliti bygg­inga auki á vellíðan okkar, en aukin hæð bygg­inga dragi úr henni. En bara upp að ákveðnu marki, því ef breyti­leiki í útliti verður of mik­ill þá fer hann að hafa nei­kvæð áhrif á líðan okkar. Önnur rann­sókn frá honum sýndi að gróður í götum eykur líkur á upp­lifun sál­fræði­lega end­ur­heimt – þar skiptir magn gróð­urs máli; meiri gróður, meiri jákvæð áhrif.

Með allt þetta í huga getum við ekki lengur sagt að þetta sé bara „smekks­at­riði“ og algjör­lega hug­lægt, við vitum hvað fólki finnst almennt flott og hvað er gott og hvað er slæmt. Þegar ég heim­sótti Pál sýndi hann mér til dæmis nið­ur­stöður frá nem­endum sínum. Þeir urðu að fara út og taka myndir af því hvaða staður þeim þætti fal­leg­astur í borg­inni fyrir göngu­ferðir og hver sá væri sá ljót­asti. Nær allir fal­legu stað­irnir voru á götum sem ein­kennd­ust af eldri húsum með miklum gróðri en „ljótu stað­irnir“ voru í hverfum eins og Borg­ar­túni, Skeif­unni og sumum nýrri úthverfum.

Þetta snýst bara um peninga

Þetta er vissu­lega marg­þætt mál og ekki hægt að benda á einn aðila varð­andi þessa þróun.

„Sumir segja að þetta snú­ist bara um pen­inga, en það er auka­at­riði því sparn­aður hefur alltaf verið mark­mið í gegnum tíð­ina. Þannig að þessi rök segja okkur í raun ekki mikið.“

Reynir talar um að betra sé að horfa á sög­una og virða fyrir sér hvernig vissir stílar eins og módern­ismi hafi orðið svona ráð­andi innan arki­tekt­úrs­ins síðan á sjötta ára­tugnum, en hann er nán­ast orð­inn að sam­heiti yfir arki­tektúr í dag. Ef þú prófar að leita eftir

„architecture“ í leit­ar­vél google, þá er hægt að sjá hvað átt er við:

„Nútíma arki­tektúr hefur lagt meiri og meiri áherslu á að nota færri smá­at­riði, minni sam­hverfu og bara minna af öllu. Þetta er ekk­ert sem er sér­stakt fyrir Ísland. Við getum sagt að Ísland sé bara að fylgj­ast með þró­un­inni sem er í gangi í heim­inum og herma eftir því. Kannski ættum við að reyna að búa til okkar eigin stíl, með okkar eigin efnum.“

Krafa um að íbúar fái að velja á mili mis­mun­andi til­lagna

Stjórn­mála­menn með völd þurfa að taka upp þessa umræðu og nálg­ast arki­tektúr eins og sam­fé­lags­mál. Arki­tektúr og skipu­lags­mál hafa áhrif á vellíðan okkar og mótar veru­leika okkar næstu ára­tug­ina. Þegar við byrjum á því getum við farið að krefj­ast þess að íbúar fái að velja á milli mis­mun­andi til­lagna á við­kvæmum og sýni­legum svæðum þannig að þeir sem eru með völd byggi ekki bara það sem þeir vilja án þess að nokkur segi neitt. Hvers konar sam­fé­lag myndum við þá fá smá saman? Stjórn­mála­flokkar gætu jafn­vel komið með sína eigin „arki­tekt­úr­stefnu“ segir Reynir.

Ekki litið á þessi mál sem pólítísk eða samfélagsmál

„Ég held að flestir finni það djúpt hjá sér að þróun borg­anna okkar gæti verið svo miklu betri. En vegna þess að þetta er mál sem hefur ekki verið litið á sem póli­tískt sam­fé­lags­mál, þá sætta sig flestir við það og halda áfram með lífið. Ef skipu­lags­mál koma upp þá snýst málið aðeins í kringum þétt­ingu og þá sem eru með eða á móti því; en það sem ég er að segja er að byggðin sjálf skiptir jafn miklu máli og þétt­ingin og það er ein­fald­lega ekki nóg að tala aðeins um þétt­ingu, en ekki hvernig þessar nýju bygg­ingar og hverfi verða. Það gæti líka fengið þá sem eru á móti þétt­ingu, til að styðja það, ef áætl­unin er að búa til fal­legt borg­ar­um­hverfi með arki­tektúr, sem meiri­hlut­inn vill.“

Fegurð er hugtak sem er ekki einu sinni rætt

„Mér finnst eins og við lifum á tímum þar sem útlit bygg­inga er ekki einu sinni á borð­inu þegar stjórn­völd tala um áætl­anir um að byggja eitt­hvað. Fegurð er hug­tak sem er ekki einu sinni rætt vegna þess að það er ein­fald­lega haldið fram að feg­urð sé ein­ungis smekks­at­riði ein­stak­lings. Við vitum frá rann­sóknum að þetta er frekar vill­andi hugsun. Þannig já, við leggjum mikla áherslu á að byggja til dæmis þús­undir nýrra íbúða eða nýtt sjúkra­hús á mjög stuttum tíma, en minni áherslu á hvernig það mun líta út.“

Voru mistök

„Það góða við borg­ar­um­hverfið er að við bjuggum það til og við getum breytt því ef við viljum. Og það fyndna er að flestar þess­ara ljótu bygg­inga sem voru byggðar á milli sjötta og sjö­unda ára­tug­ar­ins voru ekki byggðar til að end­ast og geta verið teknar niður jafn hratt og þær voru byggðar. Við erum nú þegar að sjá þennan við­snún­ing í Evrópu, þar sem fólk er að átta sig á því að hinar miklu breyt­ingar sem áttu sér stað á seinni hluta 20. aldar, þar sem mörg gömul hverfi og bygg­ingar voru teknar niður og ein­föld kassa­hverfi byggð í stað­inn, voru kannski mis­tök. Nú þegar við á Íslandi og í vest­ræna heim­inum erum komin á það stig sem við erum á í dag, þá getum við byrjað að hugsað um hluti eins og feg­urð og við sjáum hvers konar feg­urð er tíma­laus og hvað er bara lát­laust og eld­ist illa. Að þessu sögðu held ég að við verðum að byrja að leyfa fólki að kjósa um stórar til­lögur. Auðvitað getur almenn­ingur ekki kosið um hverja ein­ustu bygg­ing­ar­á­ætlun, en við ættum að minnsta kosti að geta valið á milli mis­mun­andi til­lagna. Lítum til dæmis á það sem gerð­ist á Selfossi, þar sem sumar áætl­anir voru um að mið­bær­inn yrði fullur af gler- og stál­kössum sem gætu verið hvaðan sem er. Íbúarnir völdu áætlun í hefð­bundnum íslenskum stíl. Ímyndaðu þér, ef við hefðum gert það sama með Hafn­ar­torg, Höfða­torg og aðra mik­il­væga staði.“

Ekki hægri eða vinstri mál

Því miður hefur eng­inn flokkur í raun talað um þetta vanda­mál, vegna þess að aðeins einn ákveðin stjórn­mála­maður – og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra – hefur talað um þetta áður, þá þýddi það ein­hvern veg­inn að þú værir aðdá­andi hans ef þú varst með slíkar skoð­anir um arki­tektúr. Hann á auð­vitað ekki málið og þetta er ekki hægri eða vinstri mál.“

Þurfum félagslega og lýðræðislega nálgun

Reynir segir að „það er lítið talað um þetta í fjöl­miðlum vegna þess að áður fyrrr var ekki litið á arki­tektúr eins og önnur sam­fé­lags­mál. Ef þú ert ekki arki­tekt, hvers vegna ættir þú þá að hugsa eða tala um arki­tektúr, hefur stundum verið sagt. Við þurfum félags­lega og lýð­ræð­is­lega nálgun á arki­tektúr eins og með öll önnur mál sem snerta sam­fé­lagið. Þannig í grunnin held ég að það hafi ekki verið mikið rætt um þetta í fjöl­miðlum ein­fald­lega vegna þess að það hefur ekki verið mikið rætt um þetta í sam­fé­lag­inu. Blaða­menn, rétt eins og allir aðrir, virð­ast hafa sætt sig við það sem er í gangi og ein­beitt sér að öðrum málum.“

Fengið mörg jákvæð skilaboð

„Ég stofn­aði síð­una mína á instagram:arki­tektur.island í maí 2021 og á þeim tíma hefur hann vaxið mjög hratt. Fjöl­miðlar hafa sýnt síð­unni athygli og ég hef per­sónu­lega fengið mörg jákvæð skila­boð sem gleðja mig svo mikið vegna þess að ég sá að það var ekki bara ég sem hugs­aði svona heldur þús­undir Íslend­inga.“

Hann nefnir að; „eftir að reikn­ing­ur­inn varð vin­sæll þá gagn­rýndu nokkrir arki­tektar mig sem ákváðu að stofna reikn­ing sem heitir @islenskur_arkitektur sem eins konar PR her­ferð gegn mér. Þar á meðal fyrr­ver­andi borg­ar­skipu­leggj­andi fyrir Reykja­vík sem sak­aði mig um að „þykj­ast vera arki­tekt.“

En það und­ir­strikar aðeins það sem ég sagði um hvernig margir arki­tektar fara í vörn, frekar en að spyrja sig hvað þeir geti gert betur fyrir okkur.“

Viðtalið er end­ur­birt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Húsið var reist árið 2014
Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum