Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Halldór Kristján Baldursson teiknari: Stundum í lagi að fara létt yfir strikið

Halldór Kristján Baldursson teiknari ræðir við Reyni Traustason meðal annars um afleiðingar þess að danskir teiknarar teiknuðu skop­myndir af Múhameð spámanni og minnst er á tabú sem þarf að hugsa um. Hann tók við af Sigmund á Morgun­blaðinu sem hann segir að hafi verið sitt „idol“ þegar hann var strákur. Davíð Oddsson varð svo ritstjóri og segir Halldór að það hafi blasað við að pólitík þeirra á leiðara­síðunni hafi ekki runnið vel saman. Halldór hætti síðar á Morgun­blaðinu og fór yfir á Frétta­blaðið. Hann teiknaði skopmynd af Davíð eftir að hann hóf störf á sama vinnustað og segi Halldór að almennt megi stundum fara létt yfir strikið.

„Einhvern tímann á tímabili fékk maður skot frá kvóta­fólkinu. Það fannst ég vera að misskilja svolítið. Veiði­gjöld og eitthvað þannig. Sendu mér bréf út af því. Ég reyni að skoða hluti frá mörgum hliðum og reyni oftast ekki að fella endanlegan dóm heldur súmmera upp málið,“ segir Halldór Kristján Baldursson teiknari í viðtali við Reyni Traustason.

Það er verið að drepa teiknara úti í heimi.

„Já, þessir dönsku teiknarar voru hérna á árshátíð í kringum 2007-8 og fóru mjög leynt og þorðu ekki að koma í viðtöl,“ segir Halldór en árið 2006 birtist í Jyllandsposten skopmynd af Múhameð spámanni sem múslímar voru ekki sáttir við.

Það var búið að gefa á þá veiði­leyfi. Þetta er rosalegt hatur. Skildir þú hvað er á bak við þetta?

„Ég skil ekki af hverju fólk gaf skop­myndinni þetta vægi.

Ef við förum í grunn­söguna þá var verið að gefa út bækur í Danmörku um trúar­brögð og það var búið að gefa út eina um Búdda og þessi höfundur vildi gera bók um Múhameð. Það hófst herferð gegn því af því að það má ekki teikna Múhameð og Jyllandsposten fékk teiknara til að teikna Múhameð í nafni tjáningar­frelsisins. Þannig að þetta var einhvers konar ögrun gagnvart því að þessi viðkomandi höfundur í landi sem metur tjáningar­frelsið mikils fékk ekki að gefa út bókina sína. Og það var nýr veruleiki fyrir Dani. Jyllandsposten fór út í þetta. Síðan gleymdist þessi forsaga með þessa bók. Og ritstjóri Jyllandsposten sagði „hver vill teikna Múhameð? Okkur finnst það mikilvægt til þess að leggja áherslu á tjáningar­frelsi teiknara.“ Síðan var þessu tekið sem mikilli ögrun frá þeim sem eru íslams­trúar. Þetta bar blásið út og það var bætt við ljótari myndum. Í súpunni sátu síðan þessir teiknarar á endanum. Margar af þessum myndum eru mjög saklausar. Aðrar hafa dálítið rasískt yfirbragð. En alltaf þarf maður að hugsa hver er það sem ræður hvað við megum teikna; hvenær getur þú fært ný gildi yfir á samfélagið því við teiknum auðvitað ekki hvað sem er. Ég er ekkert að teikna alla hvernig sem er. Það er alls konar tabú í gangi. Og þarna var búið að bæta við tabú sem við vorum nýbúin að losna við varðandi kristnina; það mátti gera grín að kristninni sem mátti ekki einhverjum örfáum áratugum áður. Hvað þá öldum áður. Það hefur verið dauðasök einhvern tímann.“

Það er hluti af okkar sam­fé­lagi svo­lítið að takast á við þessi tabú.

Jesús með brjóst.

„Já, akkúrat. Þá er kominn nýr flötur sem er trans­umræðan sem er viðkvæm í dag.“

Þetta er jarð­sprengju­svæði. Það eru tabú sem þú þarft alltaf að hugsa um.

„Já, það eru tabú. Það er hluti af okkar samfélagi svolítið að takast á við þessi tabú og reyna að melta hvað er viðeigandi að gera og hvað ekki. Stundum vill maður kannski brjótast aðeins út úr því. Það eru ekki allir sammála. Það eru ekki allir sammála hvað er bannað og hvað er ekki bannað. Svona í prinsippinu viljum við meira frelsi.“

Halldór hefur teiknað Múhameð. Þá var Múhameð kominn til himna. „Það voru tvær myndir. Ég man ekki hvernig þær voru. Maður dælir út mynd eftir mynd eftir mynd og það er kannski tilviljun hvað það er sem fólk grípur,“ segir teikn­arinn og bætir við að það skipti almennt máli hver sér myndina og ákveður að móðgast og gera frétt úr því; móðgast samkvæmt sínum gildum.

Geðheilsan eða lífsbaráttan

Halldór Kristján Baldursson er Reyk­víkingur. Byrjaði ungur að teikna.

„Maður byrjaði að mótast svolítið á bernsku­árunum. Barna­skólaárin teljast vera mjög mótandi. Ef ég rifja upp þá sem voru með mér í skóla; þeir eru jafnvel að gera eitthvað svipað og þeir voru að gera í 11 ára bekk. Ég er búinn að rannsaka þetta aðeins. Þetta rataði aðeins inn í loka­verkefnið mitt í list­kennslu­fræðunum,“ segir Halldór sem er nýútskrifaður með meistaranám. „Þar skoðaði ég svolítið sjálfan mig og mína mennta­sögu í samhengi við list­kennslu­fræðin og fór að rifja upp skóla­gönguna. Það kom í ljós að allir gaurarnir sem voru með mér í bekk eru meira og minna að gera það sama. Það er einn hjá Pfizer í dag og hann var nördinn í bekknum; lærði rosalega vel og kunni allt – alla stærð­fræði og líffræðina að sjálfsögðu. Svo voru þrír með 10 í smíði og mjög flinkir og þeir fóru allir út í þetta. Ég var gaurinn sem var að teikna myndir; fékk eitthvað út úr því að teikna skemmtilegar myndir. Það eru til myndir frá því ég var 11 ára. Mér finnst að mér hafi átt að fara meira fram þegar ég horfi á þetta. Ég festist í að gera skemmtilegar myndir af kennurunum og maður fékk smáhlátur.“

Ég ólst upp við ákveðna rót­tækni.

Halldór segir að fyrsta djobbið hafi hann fengið 12 ára gamall. „Það kom í gegnum mág minn sem var að prenta Stétta­baráttuna þegar ég var 12 ára. Ég teiknaði mynd í tilefni af 1. maí og þar var mynd af útifundi og það var einn hundur að horfa á. Þeir voru ekkert ánægðir með þetta í stjórn kommúnista­hreyfingarinnar. Ég hélt alltaf að þetta hefði birst en ég fletti þessu upp einhvern tímann, blaðinu, af því að nú getur maður fundið þetta en ég fann hvergi þessa mynd. Mér skilst að hún hafi verið ritskoðuð út. Þetta voru Marx-Lenínistarnir. Eldri systkini mín voru í þessu. Ég ólst upp við ákveðna róttækni og þá kom hin hliðin inn – áhugi á pólitík sem fór þá inn í skop­myndirnar sem er sambland af list og húmor þeim megin og svo pólitíkinni hinum megin.“

Það hefur alltaf verið þannig að þú ert með boðskap. Þetta er ekki bara eitthvað djók.

„Nei, það verður að vera í þessum myndum. Ég fer vítt og breitt. Ég tek bæði þessi pólitísku átakamál og svo er ég aðeins í því sem fólk er að glíma við frá degi til dags. Ég tek stundum geðheilsuna með eða lífs­baráttuna á breiðari grund­velli.“

Einhver kergja

Halldór byrjaði að teikna fyrir Viðskipta­blaðið í kringum 1994. „2005 fór ég að gera þetta daglega fyrst fyrir Blaðið ef einhver man eftir því sem var fríblað sem kom í samkeppni við Frétta­blaðið og 24 stundir. Síðan rann það inn í Moggann. Ég kom inn á Moggann með Ólafi Stephensen sem var ritstjóri 24 stunda og tók síðan við Mogganum. Þannig að ég er eiginlega eini maðurinn sem fékk vinnu í miðju hruni. Þetta var akkúrat í október 2008 sem ég fór þarna yfir.“

Þú tókst við af Sigmund.

„Ég tók við af Sigmund sem var mitt „idol“ í sjálfu sér. Ef þú talar um æskuna þá hugsa ég að á einhverjum tíma­punkti 11-12 ára hafi ég viljað verða næsti Sigmund.“

Sem þú varðst svo.

„Ég bjóst ekkert þannig við því. Ég bjóst frekar við að verða arkitekt eða eitthvað. Það var ákveðið að hann teiknaði áfram í sunnudags­blaðið og ég átti að teikna á virkum dögum. En það var einhver kergja í kringum þetta. Einhverjir vildu ekki missa Sigmund sinn og hann var kannski ekki mjög sáttur heldur. Það kom verr út heldur en þetta stóð til. Ég held að þetta hafi verið passlegt fyrir hann að kúpla niður í eina mynd á þessum tíma.“

En það varð ekkert.

„Hann hætti þá. Og ég tók þá við.“

Maður sá á net­inu að það voru ein­hverjir fúlir.

Varðstu fyrir einhverjum ónotum?

„Nei, ekkert persónu­lega. Maður sá á netinu að það voru einhverjir fúlir. Maður skilur það ef manni fer að þykja vænt um eitthvað sem hefur alltaf verið. Fólk sem er íhalds­samt vill ekkert sleppa því sem hefur alltaf verið á staðnum. Það má ekki breyta borginni og það má ekki breyta lífinu á neinn hátt.“

Að skrifa með strokleðri

Svo kom Davíð Oddsson á Moggann.

„Davíð tók við; ætli það hafi ekki verið 2009. Það var auðvitað mikill styr í kringum það. Hann með sína forsögu auðvitað. Það fór ekkert vel í alla. Það var ekkert verið að ýta mér í burtu en það blasti hins vegar við að okkar pólitík á leiðara­síðunni rann ekkert rosalega vel saman. Ég var á þessum tíma mjög Evrópu­sinnaður og klassískt frjáls­lyndur svolítið; með einhverja sýn á lífið þannig. Hann er miklu íhalds­samari maður. Icesave var þarna og mismun­andi skoðanir á hvað átti að gera í því máli. Eiginlega fór manni að líða illa við að teikna mynd og svo voru Staksteinar við hliðina á að segja eitthvað þveröfugt. Ég var mjög hress með að fara yfir á Frétta­blaðið 2010.“

Hann var að skrifa með strokleðri.

Halldór teiknaði Davíð í Morgun­blaðið eftir að Davíð settist þar í ritstjórnar­stólinn. „Ég teiknaði Davíð; þetta er svolítið hart þegar ég hugsa um það eftir á. Textinn var Davíð endur­skrifar söguna. Hann var að skrifa með strok­leðri. Ég hélt samt vinnunni áfram. Í eitt og hálft ár allavega.“

Var þetta ekki bara kjarni málsins?

„Jú, við skrifum öll söguna. Við lifum öll í sitthvorri sögunni svolítið. Við erum með okkar sögu. Og við skrifum okkar sögu. Hún stangast á við eitthvað annað. Sumt eru auðvitað stað­reyndir. En mikið snýst um að velta upp viðhorfum í samhengi við okkur sjálf. Og hann kom auðvitað með allt aðra sýn en ég.“

Þetta er gamla sagan hálffullt / hálftómt. Sumir sjá það hálftómt. Aðrir hálffullt. Þannig að þú fórst ekkert ósáttur frá Davíð eða Mogganum?

„Nei, hann er nátt­úrlega svo dular­fullur, karlinn. Ég hitti hann bara tvisvar þarna á þessum tíma.“

Það var ekki oftar.

„Nei, og það var vinsamlegt.“

Maður hafði á tilfinningunni að hann hefði húmor fyrir eins og þegar Spaug­stofan var að djöflast á honum og einhverjum teikningum því að flestir skilja það að með því að þú ert teiknaður þá skiptir þú máli. Er það ekki?

„Jú, það er klassískt viðhorf í pólitíkinni að vilja komst í mynd. Af því að pólitíska skop­myndin á svo djúpar rætur. Hún er alveg 2-300 ár aftur í tímann; kannski um aldamótin 1800 sem þetta form skapast. Á þeim tíma voru ráðamenn kannski í vandræðum með það og reyndu jafnvel að banna það eins og í Frakk­landi og setja lög um að það megi ekki gera skopmynd af einhverjum nema með leyfi viðkomandi. En smám saman vann þetta sér sess sem hluti af því að vera viðurkenndur; vald þitt sé viðurkennt myndi ég halda. Þannig að eftir því sem þú ert oftar í mynd því fleiri valdastig færðu væntanlega. Hann hefur held ég alveg skilið það þannig. Ég býst við því.“

Sumum finnst þeir sjálfir ein­hvern veg­inn algildur mæli­kvarði á hinar hrein­ustu dyggðir sam­an­ber þetta Múhameð­s­mál; teikn­ing­arnar.

Halldór segir að stundum finnist sér vera í lagi að fara létt yfir strikið. „Stundum þarf fólk að hafa þol fyrir því að eitthvað sé kannski ekki nógu gott, eitthvað gangi aðeins of langt og eitthvað sé ekki því að skapi. Fólk verður að hafa þol fyrir því en þannig er veru­leikinn. Skop­myndir verða að fá að gera þetta líka. Sumum finnst þeir sjálfir einhvern veginn algildur mæli­kvarði á hinar hreinustu dyggðir samanber þetta Múhameðsmál; teikningarnar. Þeim finnst að þeirra hreina sýn á tilveruna og algilda, góða sýn eigi bara að ráða og að það eigi ekki að gefa því séns að einhverjir aðrir geti haft að hluta til rétt fyrir sér.“

Fjölbreytt verkefni

Jú, Halldór er nýútskrifaður með kennslu­réttindi.

„Ég hef kennt í mörg ár; ég hef gert meira en að gera þessar skop­myndir í blöðin. Ég hef mynd­skreytt fjölda bóka og auk þess kennt teikningu lengst af í Myndlistar­skóla Reykja­víkur síðustu 15 árin og Lista­háskólanum eitthvað. Ég kláraði Myndlista- og handíða­skólann á sínum tíma og nennti alls ekki að vera í meira námi; mér fannst þetta bara orðið fínt. Það var þessi tilfinning að það væri alltaf verið að segja manni hvað maður átti að gera og maður sat bara á einhverjum stól. Maður er kannski svolítið undir­settur sem nemandi. Manni fer að líða þannig. En þetta snýr öðruvísi að manni þegar maður er kominn á sextugsaldur. Þetta er síðasti séns að fara í skóla ef maður hefur áhuga á því.“

Aðal­starfið er að teikna. „Ég er með fjórar myndir í Frétta­blaðinu í viku og eina í Viðskipta­blaðinu.“ Svo mynd­skreytir hann jú bækur – nokkrar á ári – og svo eru það alls konar verkefni svo sem fyrir auglýsinga­stofur. Og svo hefur hann kennt módel­teikningu á kvöld­námskeiðum og mynd­skreytingu.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað