Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Úlfar Önundarson jarðsunginn í dag: „Sannarlega maður sem setti sinn svip á samfélagið“

Úlfar Önundarson jarðsunginn í dag: „Sannarlega maður sem setti sinn svip á samfélagið“
Úlafr Önund­ar­son og Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, á góðri stundu. Titanic í bak­sýn. Mynd: Facebook.

Úlfar Önund­ars­son, verk­taki og þús­und­þjala­smiður, verður bor­inn til grafar í dag frá Flat­eyr­ar­kirkju. Hann var fæddur á Flateyri og starf­aði þar mestan sinn starfs­aldur. Hann var ekki síst þekktur fyrir smíði vand­aðra skipslík­ana sem um ára­bil voru á lón­inu við inn­keyrsl­una í þorpið. Þekktast þeirra er vænt­an­lega Titanic.

„Ein af mínum fyrstu minn­ingum um Úlla var að sjá hann skrúfa. Hann var að passa okkur bræður í Sand­gerði, pabbi og mamma höfðu skot­ist eitt­hvað með Stínu og Önna for­eldrum Úlfars. Við vorum að gera bíla úr mekkanói. Allar götur síðan man ég eftir Úlfari skrúfa og smíða, hann var ófeim­inn við að láta vaða í hvað það sem honum datt í hug,“ skrifar Guð­mundur Sig­urðs­son, félagi hans, að leið­ar­lokum á Facebook.

„Flest sner­ist það með ein­hverjum hætti um vélar og tæki, skrúfur og bolta. Hefur lík­lega verið í gen­unum, Önundur faðir hans var róm­aður vél­stjóri og eft­ir­sóttur. Það fór líka þannig að Úlfar og bræður hans tveir Páll og Barði, hafa helgað dísel­vél­inni allt sitt líf“.

Man að ungur bjó Úlli reið­hjólið sitt flautu og stefnu­ljósum sem stýrt var með járn­saga­blöðum rétt eins og flaut­unni í Fisk­borg­ar­vöru­bílnum og vafa­laust fleiri bílum. Allt smíðað frá grunni og lóðað saman og vafið ein­angr­un­ar­bandi.

Talandi um flautu á reið­hjóli, 1966 fór ég í sveit um skamma hríð hjá Halldóri á Kirkju­bóli í Bjarna­dal á meðan for­eldr­arnir fóru suður að sækja sér nýjan Skoda bíl.
Pabbi fékk lán­aðan Moskvich bíl Önna Páls til að keyra mig í sveit­ina. Úlli kom með og sat vinstra­megin aftur í, hann var með reið­hjólaflautu með sér og laum­að­ist til að gera rifu á glugg­ann og setja flaut­una út og skrúf­aði svo upp aftur þannig að flautan hékk á vírnum í rof­ann. Svo var byrjað að flauta og flauta. Pabbi skildi ekki neitt í neinu hvergi bíl að sjá en samt var sem ein­hver vildi kom­ast fram úr.

Svo sprakk út hlátur í aft­ur­sæt­inu og málið þar með upp­lýst. Þetta er fyrsta sem ég man af stríðni Úlla en hann átti góð­lát­lega stríðni í stærri skömmtum en ger­ist og gengur. Eins og flestir vita er fátt sem kryddar ver­öld­ina eins vel og skemmti­leg stríðni.

Úlfar varð fyrsti lyft­ara­stjór­inn á Flateyri þegar Hjálmur hf. keypti Hyster gaslyft­ara um eða laust eftir 1970. Það þótti virð­inga­staða í frysti­hús­inu enda um mikla tækni­bylt­ingu að ræða.

Minn­is­stæð er mér lang­ferð sem Úlli fór á þessu hæg­fara tæki langt inn á Strönd til að sækja Broncojeppa Palla bróður síns. Eitthvað hafði bilað í jepp­anum, brotnað undan honum aft­ur­hjól eða eitt­hvað slíkt. Úlli lyfti honum upp að aftan og ýtti bílnum þannig lík­lega innan úr Grísavík sem leið lá út á Flateyri. Þetta apparat var fjaðra­laust, hús­laust og alls­laust og veg­ur­inn hol­óttur mal­ar­vegur.

Þegar Úlli hafði aldur til fékk hann sér vöru­bíl og stofn­aði í fram­haldi af því verk­taka­fyr­ir­tækið Vest­ur­fell í Hnífsdal.
Þar starf­aði ég hjá honum við veg­ar­gerð, snjó­ruðn­ing og allan fjand­ann annan er til féll. Það var skemmti­legur tími og þar lit­aði stríðnin hans heldur betur hvers­dag­inn.
Þá bjó ég hjá honum, Stein­unni konu hans og börn­unum tveimur á Stekkj­ar­göt­unni. Þar var líka verk­stæð­is­húsið Milljón og var þar oft mikið líf, glens og gáski.

Um ára­bil rak hann verk­stæði í Hafn­ar­firði og það hefur Kolbeinn Ósk­ars­son gröfu­kall sagt mér að eng­inn hafi náð að skipta um stimpla í gröf­unni hans á skemmri tíma en Úlli.
Í áranna rás hefur Kolli ein­lægt dáðst að lagni og færni Úlla í við­gerðum og redd­ingum. Á þessu verk­stæði smíð­aði kapp­inn sér öfl­ugan og mik­inn fjalla­bíl sem hann fór á um gjör­vallt hálendi Íslands hvort heldur var að sumri eða vetri.

Síðar kom hann sér upp Lincoln Continental limósínu sem notuð hefur verið við hátíð­leg tæki­færi á Vest­fjörðum og almennt þegar eitt­hvað stórt stendur til.

Úlfar var ekki alveg ókunnur Lincoln bílum, ungur átti hann Íburð­ar­mik­inn Lincoln 1964 með sjálfs­morðs­hurðum og öllum íburð­ar­pakk­anum sem Banda­ríki norður Ameríku buðu uppá.
Ein­hverju sinni var ég hjá honum í garð­inum við Sand­gerði þegar hann var að bóna bíl­inn, hann var með ákveðnar skoð­anir á því hvernig maður ætti að beita tvist­inum en minn­is­stæð­ust er mér ein­lægni Ásu Álfs­dóttur ömmu Úlla þegar hún var að spegla sig í lakk­inu og hafði á orði hvort ætti að keyra brúð­hjónum svo glans­andi fínn fannst henni bíll­inn.

Þekktast þess­ara skipa er vafa­laust far­þega­skipið fræga, Titanic

Úlli gerði sér upp snot­urt hús á Flateyri með bíl­skúra sem ná yfir tvær götur. Þar hefur hann heldur betur verið iðinn við hand­verk. Líkast til er hann hvað þekkt­astur fyrir þann fjölda skipslík­ana sem hann hefur smíðað í þess­ari skipa­smíða­stöð sinni.

Ófáir ferða­menn hafa komið við hjá honum til að dást að smíð­inni auk þess sem hann hefur verið með fjölda þess­ara skipa á floti á sumrum fyrir fólk að dást að.

Þekktast þess­ara skipa er vafa­laust far­þega­skipið fræga, Titanic sem hvert manns­barn kann deili á.

Fram til síð­asta dags var Úlfar í véla- og bíla­út­gerð ásamt því að smíða skip.

Þetta voru ein­stakir bræður, Úlli, Palli og Barði. Ljúfir í lund­erni og skemmti­legir eins og þeir eiga kyn til. Stína Önna Páls móðir þeirra og Önni Páls voru mikið og kært sóma­fólk sem maður ein­hvern veg­inn þekkti alltaf og bara af ljúf­mennsku. Ásu ömmu þeirra kynnt­ist í heim­sóknum með mömmu og ömmu svo hef ég hlustað á útvarps­þátt sem Illugi Jök­uls­son var með um Álf Magn­ús­son langafa þeirra bræðra. Þannig að fjöl­skyldan er mér ekki ókunn.

Það var mikið áfall að frétta af and­láti Úlfars fyrir aldur fram, mér var veru­lega brugðið og vil votta Stein­unni, Einari og Kristínu, Palla og Barða og öllum ætt­ingjum og vinum mínar bestu sam­úð­ar­kveðjur.

Úlfar Önund­ar­son var sann­ar­lega maður sem setti sinn svip á sam­fé­lagið og langt því frá að honum verði gerð skil í einni svona færslu. Hér vantar að vonum margt. Man meira að segja eftir honum spila á trommur á barna­balli í Sam­komu­hús­inu á Flateyri.

Til að fyr­ir­byggja allan mis­skiln­ing þá er Sand­gerði hús á Flateyri en ekki þorp á Suð­ur­nesjum,“ skrifar Guð­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ