Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hafdís lýsir hryllingi heilbrigðiskerfisins: „Svona menn eigi að taka eina vakt á bráðamóttöku“

Hafdís lýsir hryllingi heilbrigðiskerfisins: „Svona menn eigi að taka eina vakt á bráðamóttöku“

„Arna Guð­munds­dóttir, for­maður Lækna­fé­lags Reykja­víkur, segir að við búum við afar gott heil­brigð­is­kerfi á Íslandi og eftir því sem efna­hagur okkar batn­aði þá náðum við að halda heil­brigð­is­kerf­inu á pari við það besta í heimi! Nei mig langar að æla!“

Þetta segir Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir, einka­þjálf­ari og marg­faldur Íslands­meist­ari í fit­ness, í færslu á Facebook sem vakið hefur athygli og hún hefur gefið Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að vitna í. Hún segir að reynsla sín af heil­brigð­is­kerf­inu sé ein­fald­lega hræði­leg. Starfs­fólk geri sitt allra best við hörmu­legar aðstæður. Aðstæður sem sé ein­fald­lega ekki hægt að bjóða Íslend­ingum upp á.

Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir.

Hafdís hvetur þá sem segja heil­brigð­is­kerfið gott að prófa að taka eina vakt á Land­spít­al­anum. „Mér finnst að svona menn eigi að taka eina helg­ar­vakt niðri á bráða­mót­töku og segja okkur síðan hversu dramat­ísk við erum að tala niður heil­brigð­is­kerfið okkar, því það sé með því besta í heim­inum,“ segir Hafdís.

Hún seg­ist yfir­leitt fá svip­aðar mót­tökur. „Nú er ég búin að vera inn og út af spít­al­anum síðan í byrjun maí og hafa veik­indin mín snar­versnað síð­ustu þrjár vikur. Þar sem lítið er um pláss og mann­skap upp á spít­ala hefur rútínan verið að verkja­stilla mig og senda mig heim. Morfín og park­odin forte er nestið mitt heim og virð­ist eng­inn spá í fram­hald­inu eða afleið­ing­unum á þeim við­bjóð!,“ segir Hafdís.

Hún seg­ist ekk­ert þrá meira en að losna undan verkjum. „Ég við­ur­kenni það að eftir þriggja vikna verkja­köst er and­lega hliðin í molum og eina sem ég þrái er verkja­laus dagur… Ég hef alltaf reynt að halda mig frá verkja­lyfjum en það er margt sem breyt­ist hjá manni í svona veik­indum. Ég átti nokkuð góða og verkja­minni helgi og fannst mér til­valið að full­nýta helg­ina og eyða henni með vin­konum mínum og vinum sem ég fékk nú heldur betur í and­litið,“ segir Hafdís.

„Sjónin hvarf, ég stóð ekki í fæt­urnar vegna skjálfta og beið eftir að ég myndi líða útaf! Verkirnir hellt­ust yfir mig, blóð­þrýst­ing­ur­inn rauk upp þrátt fyrir tvö blóð­þrýst­ings­lyf og var ekk­ert annað í stöð­unni en að hringja á sjúkra­bíl.“

Hafdís segir að eina sem hægt var að bjóða henni var að leggj­ast í hæg­inda­stól. „Sjúkra­bíl­inn kemur og er mér skutlað upp á bráða­mót­töku sem var yfir­full af sjúk­lingum og var mér komið fyrir í lazyboy fram á gangi sem var yfir­fullur af sjúk­lingum. Þar sat ég hágrát­andi enda hræðslan og upp­gjöfin búin að ná yfir­hönd. Eftir tvo og hálfan tíma kemur síðan hjúkr­un­ar­fræð­ingur og læknir að skoða mig, ég fer í blóðprufur og þau mæla blóð­þrýst­ing­inn sem er ennþá tölu­vert hár og er ég greind með krist­ala flökkt eða þeim fannst það vera eina skýr­ingin fyrir sjón­trufl­unum og svima og er ég enn og aftur send heim,“ segir Hafdís.

„Heil­brigð­is­kerfið á Íslandi er hræði­legt og aðstæður niðra spít­ala eru ömur­legar!! Starfs­fólkið er allt að gera sitt besta en það er tak­markað sem þau geta gert þegar að aðstæður eru eins og þær eru! Nú er það bara í mínum höndum að finna út úr þessu og leita mér aðstoðar þar sem heil­brigð­is­kerfið okkar sér ekki um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ