Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Björgvin segir Sigurð Inga leggja til gjöld „til þess að bæta í hripleka fjármálastjórnun sína“

Björgvin segir Sigurð Inga leggja til gjöld „til þess að bæta í hripleka fjármálastjórnun sína“
Björgvin Valur Guð­munds­son

Björgvin Valur Guð­munds­son, kenn­ari og áhuga­maður um forn­leifa­rann­sóknir á Stöðv­ar­firði, skrif­aði í gær færslu á Facebook þar sem hann tal­aði um hug­myndir Sigurðar Inga Jóhann­es­son inn­við­a­ráð­herra um gjöld í göng Íslands. Gaf Björgvin Valur Mannlífi góð­fús­legt leyfi til birt­ingar á færsl­unni.

Sjá einnig: Gjald­taka í öllum jarð­göngum lands­ins: „Hljómar þetta afskap­lega illa fyrir okkur“

Björgvin Valur, sem hefur fyrr á árum verið í fram­boði fyrir Sam­fylk­ing­una og verið áber­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni, gagn­rýnir hug­myndir Sigurðar Inga og þá „for­heimsk­andi póli­tík sem stunduð er hér á landi“ eins og hann orð­aði það.

„Sigurði Inga inn­við­a­ráð­herra og for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins tókst í vik­unni að fá upp á móti sér alla þá sem þurfa reglu­lega að aka um jarð­göng til þess að sinna brýnum erindum eins og t.d. mat­ar­inn­kaupum eða fara til læknis. Þetta gerði hann með því að leggja til, að til dæmis mann­eskja sem býr á Breið­dals­vík og er vön að aka til Reyð­ar­fjarðar til þess að kom­ast í næstu almenni­legu „lág­vöru­verðs­verslun“ og borgar 340 krónur fyrir hvern lítra af elds­neyti sem hún notar á leið­inni, þurfi bráðum að greiða veg­gjald til þess að fara um Fáskrúðs­fjarð­ar­göng og fjár­magna þar með um leið næstu jarð­göng á Íslandi.“

Björgvin Valur talar því næst um Seyð­firð­inga sem hann segir hafa móðg­ast per­sónu­lega vegna gagn­rýn­innar enda hafa þeir beðið eftir Fjarð­ar­heið­ar­göng­unum um ára­bil.

„Seyð­firð­ingar tóku því síðan per­sónu­lega þegar hús­mæður og -feður í þess­ari stöðu mót­mæltu þessu (kannski full harka­lega sum okkar) en ég held að við sem búum dreift og þekkjum vondar sam­göngur á eigin skinni, höfum ekki verið að veit­ast að Seyð­firð­ingum heldur ráð­herr­anum og hinni for­heimsk­andi póli­tík sem er stunduð á Íslandi.“

Þá kemur Björgvin Valur inn á kaup Síld­ar­vinnsl­unar í Nes­kaups­stað á Vísi í Grinda­vík sem kunn­gjörð voru fyrir stuttu. Vill færslu­höf­undur meina að þetta hafi farið fyrir brjóstið á fólki, að til sé svona mik­ill pen­ingur í land­inu eða „eitt fyr­ir­tæki geti keypt annað skuld­sett fyr­ir­tæki“ á meðan fólk á Breið­dals­vík, Stöðv­ar­firði og Fáskrúðs­firði „greiði fyrir næstu sam­göngu­mann­virki í land­inu um leið og þær skreppa af bæ til þess að kaupa í mat­inn.“

„Það vildi nefni­lega svo til að um leið og Sigurður Ingi opin­ber­aði þessa hug­mynd sína, þá keypti eitt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á Íslandi annað fyrir upp­hæð sem væri hægt að klára um það bil 75% af Fjarð­ar­heiða­göngum fyrir, m.v. áætl­anir Vega­gerð­ar­innar.

Það var eig­in­lega þetta sem fór (og fer) fyrir brjóstið á fólki; að það skuli vera til svona mikið af pen­ingum í land­inu að eitt fyr­ir­tæki geti keypt annað skuld­sett fyr­ir­tæki um leið og ráða­menn ætla að láta hús­mæður (og guð fyr­ir­gefi mér fyrir að segja þetta) á hinum fag­ur­grænu Fram­sókn­ar­engjum, Breið­dals­vík, Stöðv­ar­firði og Fáskrúðs­firði, greiða fyrir næstu sam­göngu­mann­virki í land­inu um leið og þær skreppa af bæ til þess að kaupa í mat­inn.“

Að lokum talar Björgvin Valur um vilja­leysi íslenskra stjórn­valda til að sækja pen­inga þangað sem þeir eru og kemur einnig með kenn­ingu um hug­myndir Sigurðar Inga.

„Það er vilja­leysi íslenskra stjórn­valda til þess sækja pen­inga þangað sem þeir eru en um leið pönk­ast á almenn­ingi með fár­an­legum gjald­tökum til þess að bæta í hrip­leka fjár­mála­stjórnun sína sem reitir fólk til reiði og verður þess vald­andi að það segir og skrifar hluti sem særa þá frekar sem þegar eru í sárum.Annars grunar mig að þessum hug­myndum Sigurðar Inga sé ætlað að gera útaf við hug­mynd­ina um Seyð­is­fjarð­ar­göng akkúrat svona; fólk mun mót­mæla þeim og þá geta stjórn­völd hætt við þær og sagt: Sorrí en við höfum ekki efni á þessum göngum.

Sækjum pen­ing­ana þangað sem þá er að finna en ekki í halla­rekstur heim­il­anna.“

Færslan vakti tals­verða athygli en Egill Helgason, fjöl­miðla­maður spurði Björgvin Val í athuga­semdum út í svokölluð T-göng um Mjóa­fjörð.

„Segðu mér eitt sem aust­firð­ingur – eru T-göng um Mjóa­fjörð ekki betri hug­mynd en hin ógn­ar­löngu Fjarð­ar­heið­ar­göng?“

Upp úr spurn­ingu Egils spruttu líf­legar umræður sem hægt er að lesa undir færslu Björg­vins Vals hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð