Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gjaldtaka í öllum jarðgöngum landsins: „Hljómar þetta afskaplega illa fyrir okkur“

Mynd / samsett
Mynd / sam­sett

Fyrir­hugaður kostnaður að Fjarðar­heiðar­göngum er 47 milljarðar króna. Innviðar­ráðherra boðar frumvarp þess efnis að gjaldtaka verði tekin upp í öllum jarð­göngum landsins sem standa eigi undir framkvæmda­kostnaði Fjarðar­heiðarganga og annarra framtíðar jarðganga.

Í kvöld­fréttum Stöðvar 2 var varpað ljósi á málið. Fjarðar­heiðargöng verða lengstu veggöng á Íslandi heilir 13,3 kíló­metrar og er svo fjárfrek að 17,7 milljarða króna framlög samgöngu­áætlunar ná hvergi nærri upp í heildar­kostnaðinn.

Á Seyðis­firði búa 669 manns og er því áætlaður kostnaður á hvern íbúa um það bil 66 til 70 milljónir króna. Fullyrðir Sigurður Ingi gríðar­legan samfélags­legan ávinning af göngunum.

Óljós ávinningur

Í kjölfarið hefur Jón Björn Hákonarson bæjar­stjóri í Fjarða­byggð sagt að fyrir­huguð gjaldtaka komi íbúum svæðins afskaplega illa. Frétta­stofa RÚV ræddi við bæjar­stjórann í hádegis­fréttum.

„Íbúar þurfa að fara á milli hverfa til að sækja þjónustu, sækja vinnu, sækja menntun. Þá er þetta náttúru­lega, hljómar þetta afskaplega illa fyrir okkur í þeirri mynd eins og þetta er birt núna. Og það er gríðar­lega mikilvægt að innviða­ráðherra og innviða­ráðuneytið skoði það mjög vel hvað útfærslur þeir ætla í þessu frumvarpi.“

Þá bendir Jón Björn jafnframt á að vega­kerfið sé þegar skattlagt með álagningu eldsneytis. Margir sem sæki atvinnu daglega þurfi jafnvel að fara í gegnum tvenn jarðgöng. Þessi hópur verði því tvískattlagður.

Jón Björn segir að lokum: „ Og það getur ekki gengið hvort sem það er um Fjarða­byggð að ræða eða annars staðar á landinu. Þannig að við verðum að horfa á það kerfi sem er á bak við þessar samgöngu­framkvæmdir í heildi sinni. Þannig að það sé einhver svona við getum sagt jafnræði í því hvernig við þurfum að sækja okkur þjónustu aðra og hvað við greiðum fyrir.“

Ekki náðist í Sigurð Inga, innviða­ráðherra við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram