Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hanna Katrín grunuð um peningaþvott í Svíþjóð: „Hún hrökk við og brosið hvarf af andlitinu“

Hanna Katrín grunuð um peningaþvott í Svíþjóð: „Hún hrökk við og brosið hvarf af andlitinu“
Hanna Katrín Frið­riks­son mat­væla­ráð­herra

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­kona Við­reisnar, segir á Facebook farir sínar ekki sléttar af flug­velli í Stokk­hólmi. Þar hugð­ist hún eiga í gjald­eyr­is­skiptum en það gekk ekki betur en svo að starfs­fólk var farið að gruna hana um pen­inga­þvott. Yfir­maður leyfði henni, þó með sem­ingi, að kaupa 200 evrur á um 30 þús­und krónur. Hann sagði að næst yrði hún lík­lega ekki svo heppin.

„Smásaga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og annarri spill­ingu. Mér hálf­leidd­ist þarna á flug­vell­inum í Stokk­hólmi enda 4 tíma bið í næstu vél á fund for­sætis­nefndar Norð­ur­landa­ráðs á Álandseyjum. Þegar ég gekk fram á bás þar sem boðið var upp á gjald­eyr­is­skipti ákvað ég að slá til og kaupa 200 evrur (ca 32.000 ísl.kr.) Allt gekk vel í upp­hafi og ég svar­aði sam­visku­sam­lega hverri spurn­ing­unni á fætur annarri, enda hver vill ekki aðstoða í bar­átt­unni við pen­inga­þvætti og annað slíkt. Þar til kom að spurn­ing­inni, við hvað starfarðu?,“ lýsir Hanna Katrín.

Þá fyrst fóru Svíar að gruna hana um græsku, enda algeng í hennar stétt. „Ég sver það, mér sýnd­ust koma rauðar glær­ingar úr tölvu stúlkunnar þegar hún sló inn svarið; stjórn­mála­maður. Í það minnsta hrökk hún við, við við­brögðin á skjánum og brosið hvarf af and­lit­inu. Augna­blik sagði hún og lét sig hverfa. Inn um hálf­lok­aðar dyr sá ég hana í áköfum sam­ræðum við eldri mann, lík­lega yfir­mann. Þau komu svo bæði fram skömmu síðar og töl­uðu sín á milli yfir tölv­unni um mig líkt og ég væri ekki á staðnum. Enda mögu­lega stór­pen­inga­þvotta­kona. Þessi upp­hæð er undir við­mið­unum, sagði hann. Svo þú sleppir þessu í gegn. En skráðu þetta í kerfið og ef hún (ég) reynir þetta aftur þá gómar kerfið hana. Svo fór yfir­mað­ur­inn og stúlkan kláraði að afgreiða mig. Ég er ennþá með 200 evr­urnar í vesk­inu, var eitt­hvað rög við að nota þær,“ segir Hanna Katrín.

Þetta atvik mætti afskrifa sem sænska sér­visku en svo er ekki. Dóttir hennar fékk stuttu síðar harka­legri með­ferð af öðrum banka. „Kvöldið eftir að ég kom heim eftir áhuga­verða og skemmti­lega ferð til Álandseyja vildi önnur dóttir mín ræða skrít­inn póst sem hún hafði fengið frá við­skipta­banka sínum. Nefni­lega þann að ef hún skil­aði ekki inn skatt­skýrslum síð­ustu tveggja ára innan tveggja vikna frá dag­setn­ingu pósts­ins yrði öllum banka­við­skiptum lokað á hana. Þegar hún sendi inn athuga­semd á bank­ann vegna þess­ara harka­legu skila­boða kom í ljós að ástæðan var að hún er Politically Exposed Person í gegnum stór­vara­sama móður hennar. Skatt­skýrsl­urnar voru sendar og náms­stúlkan fær því enn að geyma sum­ar­hýruna sína í bank­anum.“

Svo virð­ist sem starf Hönnu Katrínar geri hana geisla­virka meðal banka. „Viku síðar reyndi hin dóttir mín að milli­færa sum­ar­hýruna sína af íslenska reikn­ingnum sínum yfir á reikn­ing sinn í banda­ríska bænum þar sem hún stundar nám. Það gekk nú aldeilis ekki smurt fyrir sig, enda mjög grun­sam­leg aðgerð hjá Politically Exposed Person. Eftir nokkur tölvu­póst­sam­skipti hrökk það í lag og náms­stúlkan fær að nota pen­ing­ana sína,“ segir Hanna.

Þessu var þó ekki lokið. „Og víkur þá sög­unni að fjórða og síð­asta fjöl­skyldu­með­limnum, henni Ragn­hildur minni. Þegar hljóm­sveitin hennar Ukul­ellur er að kom­ast yfir barm heim­frægðar og vill fara að rukka inn aðgangs­eyri eins og slíkar hljóm­sveitir gera, hald­iði ekki að pen­inga­þvotta­konan ég þvælist fyrir enn og aftur. Ragn­hildur er í stjórn Ukulella (allar alvöru hljóm­sveitir hafa stjórn) og þarf því að gefa upp allar helstu upp­lýs­ingar eins og þær hvað mak­inn er að bar­dúsa dags dag­lega. Og af því að mak­inn er ég og Ragn­hildur þar með Politically Exposed Person þá stendur í kerf­inu að veita Ukul­ellum leyfi til að tengja korta­posa við reikn­ing hljóm­sveit­ar­innar.  Ég er samt ennþá vel­komin á næstu Ukul­ellu­tón­leika og passa bara að mæta með seðla. Ætli þær tækju við evr­unum mínum? Nið­ur­staðan hér er að ég er lyk­il­mann­eskja í því að hindra mútur og spill­ingu hér á landi og jafn­vel víðar. Ég og mitt fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ