Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðni skaut drykkjufélaga sinn til bana – Kona hans hringdi stuttu síðar í lögregluna

Guðni skaut drykkjufélaga sinn til bana – Kona hans hringdi stuttu síðar í lögregluna
Höfn í Horna­firði Mynd: south.is (átt hefur verið við myndina)

Þeir Stefán Egilsson og Guðni Ósk­ars­son sátu við drykkju eitt laug­ar­dags­kvöld heima hjá Guðna á Höfn í Horna­firði. Snemma morg­un­inn eftir sinn­að­ist mönn­unum og henti Guðni Stefáni út. Stuttu síðar hlóð Guðni hagla­byssu sína og skaut í átt að Stefáni. Annað skotið hæfði hann í brjóstið og er talið að Stefán hafi lát­ist sam­stundis. Árið var 1973.

Morg­un­blaðið sagði svo frá morð­inu á Stefáni Egils­syni þann 30. jan­úar 1973:

Höfn í Horna­firði: 33 ára maður skot­inn til bana 41 árs drykkju­fé­lagi hans skaut hann með hagla­byssu, eftir að þeim hafði sinnazt



33 ÁRA gam­all maður, Stefán Egilsson, til heim­ilis að Volaseli í Lóni í Austur-Skafta­fells­sýslu, var skot­inn til bana á Höfn í Horna­firði um kl. 07 á sunnu­dags­morg­un­inn. Gerðist þetta í hús­inu nr. 23 við Miðtún, á heim­ili þess manns, er verkn­að­inn framdi, Guðna Ósk­ars­sonar. Höfðu menn­irnir setið þar að drykkju alla nótt­ina, en sinnazt um morg­un­inn, með þessum afleið­ingum. Guðni var síð­degis á sunnu­dag fluttur í flug­vél frá Horna­firði til Reykja­víkur og situr hann nú í gæzluvarðhaldi í Hegn­ing­ar­hús­inu í Reykja­vík. Hefur hann verið úrskurð­aður í allt að 90 daga gæzluvarðhald á meðan rann­sókn máls­ins fer fram, og gert að sæta geð­rann­sókn. Var hann yfir­heyrður í fyrra­dag og í gær og hefur játað á sig verkn­að­inn. Segist hann hafa verið mikið drukk­inn, er þetta gerð­ist. — Sýslu­mað­ur­inn í Skafta­fells­sýslum, Einar Oddsson, stjórnar rann­sókn máls­ins.

Stefán Egilsson var aðeins 33 ára að aldri er hann lést

Menn­irnir tveir þekkt­ust vel og höfðu setið að drykkju alla aðfar­arnótt sunnu­dags á heim­ili Guðna. Er á leið urðu þeir ósáttir, svo að til átaka kom á milli þeirra, og seg­ist Guðni hafa hent gesti sínum út. Að því búnu tók hann hagla­byssu nr. 12, sem hann átti, hlóð hana og skaut tveimur skotum úr henni, að því er hann sjálfur segir. Virðist annað skotið hafa hæft Stefán í brjóstið svo að hann hlaut bana af. Er talið að hann hafi iátizt sam­stundis. Kona skot­manns­ins hringdi þegar á lög­regl­una og sagði frá hvað gerzt hefði. Kom Guðni síðan sjáifiur í sím­ann og sagð­ist hafa skotið mann til bana. Lög­reglan kom strax á stað­inn og hand­tók hann og hafði í gæzlu, þar til hann var fluttur flug­leiðis til Reykja­víkur síð­degis samia dag. — Einar sýslu­maður, fer í dag austur til Horna­fjarðar til að halda áfram rann­sókn máls­ins. Stefán Egilsson var ein­hleypur. Hann hafði starfað að bif­reiða­við­gerðum. Guðni Ósk­ars­son er 41 árs fjöl­skyi­du­maður, bif­reiða­stjóri að atvinnu.

Guðni var fund­inn sekur um morðið í nóv­em­ber sama ár en hann við­ur­kenndi alltaf brotið. Hlaut hann níu ára dóm fyrir glæp­inn. Morg­un­blaðið fjall­aði um dóm­inn í blaði sínu:

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir morð

Í GÆR var kveð­inn upp í Sakadómi Skafta­fells­sýslu dómur í máli Guðna Ósk­ars­sonar bif­reiða­stjóri, Miðtúni 23, Höfn, Horna­firði, en hann hafði verið ákærður fyrir að hafa myrt Stefán Egilsson frá Volaseli í Lóni á heim­ili sínu á Horna­firði að morgni sunnu­dags­ins 28. jan sl. Var Guðni dæmdur í níu ára fang­elsi og til greiðslu alls sak­ar­kostn­aðar, þ.á.m. 90 þús. kr. málsvarn­ar­launa til Jónasar A. Aðal­steins­sonar hrl., og 90 þús. kr. máls­sókn­ar­kostn­aðar til rík­is­sjóðs. Gæzluvarðhaldsvist Guðna frá 28. jan sl. kemur til frá­dráttar fang­els­un­inni. Guðni var dæmdur skv. 211. grein hegn­ing­ar­laga. sem svo hljóðar: Hver, sem sviptir annan mann lífi, skal sæta fang­elsi, ekki skemur en 5 ár, eða ævi­langt. Dóminn kvað upp Einar Oddsson, sýslu­maður. Við rann­sókn máls­ins á sínum tíma ját­aði Guðni á sig verkn­að­inn. Þeir Stefán höfðu þekkzt vel og sátu heima hjá Guðna að drykkju aðfar­arnótt sunnu­dags­ins. Er á leið urðu þeir ósáttir. svo að til átaka kom á milli þeirra, og kvaðst Guðni hafa hent gesti sínum út. Að því búnu tók hann hagla­byssu, sem hann átti, hlóð hana og skaut tveimur skotum á eftir Stefáni. Beið Stefán sam­stundis bana af, er annað skotið hæfði hann. — Var Guðni hand­tek­inn á heim­ili sínu skömmu síðar, án mót­þróa og hefur hann setið í gæzluvarðhaldi síðan. Hann er rúm­lega fer­tugur, fjöl­skyldu­maður. Stefán Egilsson var 33 ára að aldri, ein­hleypur. Hann hafði starfað við bif­reiða­við­gerðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ